Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta er allt annað skip en ég byrj-
aði á hjá Gæslunni fyrir rúmlega 60
árum, það eru um 4.000 tonn á
milli,“ segir Sigurður Árnason, fyrr-
verandi skipherra hjá Landhelgis-
gæslu Íslands, um stærðarmuninn á
Víkingi, fyrsta skipinu sem hann
vann á fyrir Landhelgisgæsluna
1948, og varðskipinu Þór sem kom í
fyrsta sinn til Reykjavíkur í gær.
Landhelgisgæslan bauð fyrrver-
andi skipherrum sérstaklega að
skoða skipið eftir komu þess til
Reykjavíkur í gær. Sigurður Árna-
son starfaði á öllum skipum Gæsl-
unnar, loftförum og í stjórnstöð frá
1948 til 1992 og þar af sem fastráð-
inn skipherra 1959 til 1992. „Þegar
ég kem um borð í þetta skip dettur
mér fyrst í hug varðskipið Óðinn
sem síðar varð Gautur, fyrsta varð-
skipið sem ég var á, en það var um
86 tonn og smíðað á Akureyri. Það,
eins og önnur skip Gæslunnar, var
afburðaskip og ég lenti með af-
burðaskipsmönnum í gegnum tíð-
ina, sem bjargaði málunum, en við
hefðum ekki ráðið við flotann eins
og hann er núna. Það gerir þetta
skip, en ég kem eins og villuráfandi
sauður um borð. Þetta er það stórt
og mikið að það tekur sólarhring að
átta sig á farartækinu. Við kæmum
Maríu Júlíu fyrir hérna á aft-
urdekkinu.“
Þór er 4.049 brúttótonn og gang-
hraðinn 18 hnútar. Sigurður var síð-
ast á Tý og segir ólíku saman að
jafna. Hann bendir líka á að nú fari
gæslan öll fram á djúpmiðum og
miklu betur fari um mannskapinn í
Þór en á gömlu skipunum.
Sumarið 1948 leigði Gæslan rek-
netabátinn Víking, sem var 37 tonn
og gerður út frá Keflavík. Sigurður
fylgdi með sem fyrsti mótorvélstjóri
og eftir það varð ekki aftur snúið.
„Það er himinn og haf á milli þess-
ara skipa,“ segir hann.
Betra en systurskipið
Halldór Nellett, skipherra og
framkvæmdastjóri aðgerðasviðs
Landhelgisgæslunnar, hefur fylgst
með gangi mála frá byrjun. Hann
bendir á að þrír skipstjórnarmenn,
hann, Sigurður Steinar Ketilsson og
Einar Valsson, hafi kynnt sér
norska varðskipið Harstad, systur-
skip Þórs, í október 2006, rætt við
nánast alla um borð um það sem
betur mætti fara og farið að flestum
ábendingum þeirra. „Við gerðum
gott skip ennþá betra,“ segir hann.
„Þetta er geysilega mikið skip,
allt sem ég hef séð er stórbrotið og
ég hefði vel þegið að vera aðeins
yngri,“ segir Höskuldur Skarphéð-
insson, fyrrverandi skipherra, sem
byrjaði 1958 hjá Gæslunni. „Það er
stórkostlegt að fá þetta skip í hend-
urnar og án þess að öfunda þá er ég
ánægður fyrir þeirra hönd.“
Morgunblaðið/Ómar
Við Miðbakka Nýja varðskipið Þór kom í fyrsta sinn til Reykjavíkur í blíðunni gær og beið margmenni komu skipsins á hafnarbakkanum auk þess sem margir fylgdust með því í nágrenninu.
Ólýsanleg breyting á 60 árum
Skipherrar Landhelgisgæslunnar hrósa varðskipinu Þór í hástert og segja ólíku saman að jafna
Sigurður Árnason byrjaði á 37 tonna skipi hjá Gæslunni en nýja skipið er 4.049 brúttótonn
Brú Halldór B. Nellett og Höskuldur Skarphéðinsson.Gamlir skipsfélagar Haukur Jónsson bryti heilsar Sigurði Árnasyni um borð í Þór.
Margt var um manninn á Miðbakka
þegar varðskipið Þór lagðist að
bryggju. Allir biðu með mikilli eft-
irvæntingu eftir skipinu en sumir
meira en aðrir. Þar voru fjölskyldur
áhafnarinnar fremstar í flokki.
„Þetta er ágætis afmælisgjöf,“
sagði Páll Geirdal Elvarsson, yfir-
stýrimaður á Þór. Hann átti 25 ára
starfsafmæli hjá Landhelgisgæslu
Íslands 24. október og fagnaði því
með sínum við komuna, en Kolbrún
Rut Pálmadóttir, eiginkona hans, og börn þeirra, Ísa-
bella Dís Geirdal Pálsdóttir 4 ára og Pálmi Geirdal Páls-
son 8 ára, færðu honum blóm í tilefni dagsins.
Páll var að heiman í um 8 vikur. Það er lengsta fjar-
vera frá fjölskyldunni síðan
börnin fæddust. „Það er gott
að hitta pabba aftur, eitt
stórt plús,“ sagði Pálmi. „Það
er bara yndislegt, alveg æði
enda hefur þetta verið langur
tími,“ bætti Kolbrún við og
Páll tók í sama streng, en Ísa-
bella Dís hélt sig til hlés.
Páll var á Tý og segir mun-
inn á skipunum ótrúlega mik-
inn. „Þetta er krefjandi verk-
efni,“ segir hann um breytta stöðu og bætir við að það
taki tíma að venjast nýjum tækjum og tileinka sér alla
tæknina. „Það er eiginlega ekki hægt að líkja skipunum
saman.“
Fagnaði 25 ára starfsafmæli við komuna
FJÖLSKYLDUR SAMEINUÐUST VIÐ MIÐBAKKA EFTIR LANGAN AÐSKILNAÐ