Morgunblaðið - 28.10.2011, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011
BAKSVIÐ
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Eitt stærsta verkefnið framundan er
að græða sárin sem opnuðust þegar
íslenska efnahagskerfið hrundi,
sagði Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra í gær er hún setti ráð-
stefnu stjórnvalda og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins í Hörpu en á
ráðstefnunni var fjallað um hvaða
lærdóm megi draga af efnahags-
kreppunni og verkefnin framundan.
Einnig þurfi að ljúka sakamálarann-
sókninni, sem staðið hefur yfir á
gerðum óábyrgra fjármálamanna,
endurvekja traust í samfélaginu og
endurheimta þá þjóðarsamstöðu
sem fjaraði undan í hruninu.
Skiptar skoðanir um evruna
Endurreisn bankanna, skulda-
staða Íslands, fjárfestingar og gjald-
eyrishöft voru efst í huga þeirra er
til máls tóku á ráðstefnunni.
Nóbelsverðlaunahafinn og
hagfræðiprófessorinn Paul Krug-
man og Willem Buiter, aðalhagfræð-
ingur hjá Citibank, voru á öndverð-
um meiði þegar kom að evrunni.
Krugman sá ekki hag í upptöku evru
fyrir Íslendinga en Buiter hvatti til
upptöku hennar á meðan á Martin
Wolf, aðalhagfræðingur breska
blaðsins Financial Times, hvatti hins
vegar Íslendinga til að hugsa málið
vel áður.
Ræðumenn voru ekki sammála
þegar litið var yfir farinn veg og rætt
var um gjaldeyrishöftin.
Höft vantraust á krónuna
Jón Daníelsson, prófessor í fjár-
málum við London School of Econo-
mics, taldi að setning gjaldeyrishafta
hefði verið mistök og framkvæmdin í
stíl við sjötta áratug síðustu aldar.
Nær hefði verið að skattleggja þá
sem leysa út bréf sín úr landi og
fleyta krónunni. Með höftunum vær-
um við að segja öðrum þjóðum að
ástandið væri okkur ofviða.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, var einnig á því að gjaldeyris-
höftin hefðu verið dýr mistök sem
fælu í raun í sér vantraustsyfirlýs-
ingu á krónuna og hömluðu hagvexti.
Að mati Krugmans var ótímabært
að afnema gjaldeyrishöftin og Fra-
nek Rozwadowski, fastafulltrúi Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, benti í máli
sínu á að gjaldeyrishöftin hefðu verið
nauðsynleg á sínum tíma enda gert
stjórnvöldum kleift að fjármagna
fjárlagahallann sem fylgdi í kjölfar
hrunsins. Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri tók undir nauðsyn haft-
anna en sagði jafnframt að daginn
sem þeim yrði aflétt yrði fagnað í
Seðlabanka Íslands. Áfram yrði unn-
ið að afnámi þeirra til samræmis við
stefnu stjórnvalda en taka yrði tillit
til ytri þátta.
Lítil merki um hagvöxt
Jón sagði aðaláhyggjuefni stjórn-
valda hljóta að vera að hvorki sæist
aukning í fjárfestingum né útflutn-
ingi í kjölfar falls krónunnar. Fjár-
festing hér hefði verið yfir meðaltali í
Evrópu fyrir kreppuna en í kjölfar
hennar hefði fjárfesting innan Evr-
ópu fallið um eitt prósent. Hér hefði
hún hins vegar fallið um helming.
Stefán Ólafsson, prófessor við fé-
lagsvísindadeild Háskóla Íslands,
sagði framlög til velferðarmála nú
hærra hlutfall af landsframleiðslu en
fyrir hrun og umskipti hefðu orðið
þegar kæmi að tekjudreifingu, litið
aftur til ársins 2008. Svigrúm væri
fyrir meiri skattahækkanir, sérstak-
lega tekjuhærri hópa.
Nemat Shafik, aðstoðarforstjóri
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, vísaði til
orða Stefán og sagði mjög áhrifamik-
ið hvernig íslenskum stjórnvöldum
hefði tekist að verja velferðarkerfið í
kjölfar efnahagshrunsins.
Ósammála um höft og evru
Bankar ættu að lækka skuldir í 70% og breyta afganginum í hlutafé Staða fjárfestinga ætti að vera
aðaláhyggjuefni stjórnvalda Skipti sköpum við endurreisn að gera lánardrottna og hluthafa ábyrga
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Stór ráðstefna Fjöldi gesta sótti ráðstefnuna í Hörpu sem stjórnvöld og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn efndu til. Með-
al ræðumanna voru nóbelsverðlaunahafinn Paul Krugman og hagfræðingarnir Willem Buiter og Simon Johnson.
Joseph Stiglitz, prófessor við Columbia-háskóla, sagðist
telja að ekki hefði verið þörf á jafn miklum niðurskurði
ríkisútgjalda og raunin varð á eftir fjármálahrunið. Það
væri opin spurning hvort minni niðurskurður hefði leitt
til meiri hagvaxtar og minni fólksflótta til útlanda. Efna-
hagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir Ísland hefði
þó verið mun sveigjanlegri en slíkar áætlanir hefðu ver-
ið áður gagnvart öðrum ríkjum. Krafa um niðurskurð
hefði ekki verið jafn mikil og stjórnvöld hefðu fengið
svigrúm við endurreisnina. Þetta hafi því allt verið skref
í rétta átt.
Stiglitz sagði að sú stefna íslenskra stjórnvalda að
gera lánardrottna og hluthafa bankanna ábyrga fyrir falli þeirra hafi skipt
sköpum við endurreisnina hér á landi. Þó væri ekki enn búið að leysa
vanda fjármálakerfisins. Tveir íslensku bankanna væru í erlendri eigu og
slíkt eignarhald gæti skapað löndum erfiðleika ef hagsmunir þjóðar og
fjármálakerfis færu ekki saman. Þó að enn væri eftir að útkljá ýmsar laga-
deilur þá hefðu Íslendingar hins vegar gert rétt í málum Icesave.
Skorið of mikið niður í ríkisútgjöldum
Joseph Stiglitz
Willem Buiter, aðalhagfræðingur Citigroup, fór mikinn í
gær og sagði m.a. að Ísland hefði áratuginn fyrir hrun
verið dæmi um „sameiginlega sturlun“ þar sem heil-
brigð skynsemi hefði farið lönd og leið. Hann sagðist
ekki skilja hvernig svona lítilli þjóð hefði dottið í hug að
hún gæti stutt þrjá alþjóðlega banka með eignir sem
voru nærri 1.000% meiri en landsframleiðslan.
Buiter hvatti Íslendinga til að taka upp evru og ganga
í ESB; ef hvorttveggja lifði af. „Það myndi þýða að þið
hefðuð enga þörf fyrir sjálfstæðan seðlabanka og fjár-
málaeftirlit og vonandi mun Evrópa þróast í átt að sam-
eiginlegu fjármála- og bankaeftirliti.“
Buiter taldi of miklar skuldir í íslenska kerfinu og þær virkuðu hamlandi
á hagvöxtinn. Ísland þyrfti á einskonar trúarhátíð að halda þar sem „skuld-
ir væru fyrirgefnar“ á 50 ára fresti eða svo. Varðandi innlendu skuldirnar
ætti annaðhvort að afskrifa þær eða breyta þeim í hlutafé. Svonefnd 110%
leið, sem farin væri hér á landi, væri „brjálæði.“ Lækka ætti skuldirnar
niður í 70% og láta bankana breyta afganginum í hlutafé.
Svonefnd 110% leið er „brjálæði“
Willem Buiter
Ástandið hér er mun betra en ætla mætti en það er ekki
tímabært að losa gjaldeyrishöftin þar sem hættan á
gengishruni er enn of mikil, sagði Paul Krugman í gær.
Hann lýsti einnig þeirri skoðun sinni að það kæmi hon-
um spánskt fyrir sjónir að Íslendingar vildu taka upp
evruna og halda svo að hún bjargaði öllu.
Krugman furðaði sig jafnframt á fullyrðingum
margra Íslendinga um að íslenska hagkerfið byggi yfir
nægjanlegum sveigjanleika til þess að yfirstíga erfið
efnahagsáföll án þess að gengi gjaldmiðilsins lækkaði.
Það er að segja að hagkerfið hefði getað komist út úr
bankahruninu 2008 með annaðhvort fastgengisstefnu
eða með aðild að myntbandalagi en það hefði þýtt að endurreisn sam-
keppnishæfni útflutningsiðnaðarins hefði komið til eingöngu með lækkun
launa og annars innlends framleiðslukostnaðar.
Þegar kæmi að útflutningsaukningu skiptu þrír þættir máli: Ál, fiskur
og skuldir. Hafa yrði í huga að fiskur og ál eru háð framleiðslutakmörk-
unum. Skuldir settu einnig stórt strik í reikninginn.
Afnám gjaldeyrishafta ótímabært
Paul Krugman
„Ég borða fiskinn. Sérfræðingarnir
hafa sannfært okkur um að það sé al-
veg óhætt og sýkin smitast ekki
áfram,“ segir Þorsteinn Hjaltested á
Vatnsenda sem á sæti í stjórn Veiði-
félags Elliðavatns. Fram hefur komið
að PKD-sýki sem leggst á laxfiska,
hrjáir stórar hluta bleikjunnar í Elliða-
vatni og Vífilsstaðavatni.
Þorsteinn segir að menn hafi tekið
eftir breytingum í vatninu í nokkur ár,
sérstaklega síðustu þrjú ár. Bleikjan
hefur verið á undanhaldi og veiðist lítið
sem ekkert en þeir urriðar sem veiðast
eru stærri en áður. Þorsteinn tengir
þessar breytingar við hlýnandi loftslag
enda sé vitað að betur eigi við urriðann
að vera í hlýrri vötnum en kjör-
aðstæður bleikjunnar séu í kaldari
vötnum.
Vísindamenn telja að PKD-sýkin
eigi þátt í fækkun bleikjunnar í Elliða-
vatni. Þorsteinn segir að þótt fá vötn
hafi verið rannsökuð meira en Elliða-
vatn þurfi að rannsaka það enn betur í
ljósi þeirra breytinga sem nú eru að
verða, til að fá gleggri mynd af því sem
er að gerast.
Breytingar vegna hlýinda?
„Ég hef verið að reyna að skoða
sveiflur sem áður hafa orðið í vatninu,
til að athuga hvort þær tengjast hlý-
indaskeiðum eins og núna. Ég get ekki
fært sönnur á það,“ segir Þorsteinn.
Eftir er að gera upp veiðina í vatn-
inu í sumar. Þorsteinn telur að sýkin
hafi ekki haft áhrif á sölu veiðileyfa,
enn sem komið er, en óttast að um-
ræðan nú geti skaðað. „Ég held þó að
flestir sem hafa stundað „háskóla
fluguveiðimannsins“, eins og Elliða-
vatn er stundum nefnt, viti að það er í
góðu lagi að borða fiskinn og að sýkin
smitast ekki í aðra fiska,“ segir Þor-
steinn. helgi@mbl.is
Óhætt að borða fisk úr Elliðavatni
Morgunblaðið/Golli
Stangaveiði Elliðavatn er eftirsótt veiðivatn á höfuðborgarsvæðinu.
PKD-sýkin er talin eiga þátt
í fækkun í bleikjustofnum vatnanna
Skannaðu kóðann
til að sjá myndskeið
frá blysför við
Hörpu
Hollvinasamtök
líknardeilda
Landspítalans,
Landakoti og
Kópavogi, voru
stofnuð á mið-
vikudaginn. Á
annað hundrað
manns sóttu
stofnfundinn.
Óli Þ. Guðbjartsson, fyrrverandi
skólastjóri, átti frumkvæðið og
stjórnaði fundinum. Í stjórn voru
kosin: Formaður sr. Örn Bárður
Jónsson sóknarprestur, gjaldkeri,
Tryggvi Gíslason, fyrrv. skóla-
meistari, ritari, Oddrún Kristjáns-
dóttir, framkvæmdastjóri og form.
Kvennadeildar RKÍ í Reykjavík,
meðstjórnendur, Helga Guð-
mdsdóttir, fyrrv. forseti Kven-
félagasambands Íslands og Helgi
Ágústsson, fyrrv. sendiherra. Ný
stjórn samþykkti ályktun þar sem
m.a. er skorað á Alþingi að koma í
veg fyrir lokun líknardeildarinnar
á Landakoti og þá skertu þjónustu
sem fyrirséð er að lokunin hafi í för
með sér.
Hollvinasamtök
líknardeilda stofnuð