Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ VarðskipinuÞór er velfagnað þegar það kemur í heimahöfn, fyrst í Vestmannaeyjum og síðan í höfuð- borginni. Nýlegar skoðanakannanir sýna að Landhelgisgæslan nýtur mik- ils álits og trausts með þjóð- inni. Ef aðeins er horft til skemmri tíma er það óneitan- lega vel af sér vikið, því Land- helgisgæslan hefur neyðst til að vera með mörg helstu tæki sín í „útrás“ til að snapa sér fjármuni til að halda sér á floti á þrengingartímum. Þar kann að hafa verið teflt á tæpt vað. Þó er ekki hægt að áfellast stjórnendur Landhelgisgæsl- unnar eða hærra sett stjórn- völd fyrir þessa sjálfsbjarg- arviðleitni. En æskilegt er og nauðsynlegt að Landhelgis- gæslan geti eins fljótt og ger- legt er fengið að sinna sínum mikilvægu verkefnum af full- um styrk. Þeim, sem vit hafa á, ber saman um að hinn nýi Þór sé kostaskip, vel búið tækjum og fái valdið verkefnum við erf- iðar aðstæður sem engin fyrri skipa Gæslunnar hefðu ráðið við, þótt þau hafi oft dugað þjóðinni vel. Forystumenn þjóðarinnar og hún sjálf hafa löngum verið samhent í að tryggja sístækkandi landhelgi í kringum Ísland. Oft var þó við ramman reip að draga, harð- skeytta andstæð- inga, erlendar stórþjóðir, sem sýndu styrk sinn og getu til yfirgangs. Sem bet- ur fer fóru þá menn fyrir þjóð- inni sem guggnuðu ekki né gáfust upp. Og Landhelgis- gæslan, fámenn og vanbúin, ekki síst þegar horft er til getu andstæðinganna, stóð vaktina með einstakri prýði, svo þjóðin fylltist í senn stolti og þakk- læti og gleymir ekki. Slík átök eru að baki, en verkefnin eru enn fjölmörg og þegar leitað er til Landhelg- isgæslunnar um aðstoð er iðu- lega mikið í húfi. Vel þjálfaður mannskapur og öflugur bún- aður Landhelgisgæslunnar ræður þá iðulega úrslitum, og baráttan er stundum upp á líf og dauða. Öflug varðskip og flugfloti til hjálparstarfs og eftirlits eru forsendan fyrir því að gæslu- menn geti staðið sig eins vel í starfi og krafist er og þjóðin hefur vanist á að geta treyst þeim til að gera. Landhelgis- gæslunni og þjóðinni allri er því óskað hjartanlega til ham- ingju með heimkomu Þórs. Megi guð blessa skipið og áhöfn þess og glæsifleyið verða giftudrjúgt. Það er sannarlega fagnaðarefni að hinn nýi Þór sé kom- inn í heimahöfn, til þjónustu reiðubúinn} Varðskipið Þór Endurskoð-unarfyr- irtækið Deloitte hefur reiknað út áhrif af frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða á starf- andi sjávarútvegsfélög. Delo- itte byggir útreikninga sína á gögnum frá stærstum hluta útgerðarinnar í landinu og þess vegna er óhætt að segja að þeir gefi afar trausta vís- bendingu um afleiðingarnar nái stefna ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Áhrifin á efnahag útgerð- arinnar yrðu skelfileg. Eigið fé í greininni mundi gufa upp og gott betur, því það yrði nei- kvætt um meira en eitt hundr- að milljarða króna. Ástæðan er sú að árásir ríkisstjórn- arinnar á aflamarkskerfið hefðu þær afleiðingar að gjald- færa þyrfti allar keyptar afla- heimildir þegar í stað. Ekki er útlitið síður alvar- legt þegar horft er á sjóð- streymi greinarinnar. Að óbreyttum lögum yrði sjóð- streymi næstu fimmtán ára já- kvætt um 150 milljarða króna. Nái áform rík- isstjórnarinnar fram að ganga snýst dæmið við og rúmlega það, því að sjóðstreymið yrði neikvætt um 170 milljarða króna. Frá því að ríkisstjórnin tók við hefur sjávarútvegurinn orðið að halda að sér höndum í fjárfestingum vegna þeirrar óvissu sem stjórnarstefnan hefur skapað. Næði stefnan fram að ganga tæki ekki betra við, því að atvinnugrein með gríðarlegt neikvætt sjóð- streymi ræðst ekki í miklar fjárfestingar. Áður hefur verið sýnt fram á það með tölum hve hættuleg stefna ríkisstjórnarinnar er fyrir fjárhag sjávarútvegsins og þar með efnahag landsins í heild. Fjandskapur stjórn- arliða í garð sjávarútvegsins hefur hingað til komið í veg fyrir að röksemdir hafi haft nokkur áhrif á stefnuna. Því miður er lítil ástæða til að ætla að nýir útreikningar breyti nokkru fyrir þá sem hafa ákveðið að taka rangan kúrs. Nýir útreikningar sýna hrikalegar af- leiðingar stefnu rík- isstjórnarinnar} Sláandi útreikningar A rabíska vorið hefur varað lungann úr árinu. Á þeim tíma hafa tveir þjóðhöfðingjar sagt af sér, einn særðist þegar uppreisnarmenn vörpuðu sprengju á höll hans og annar var tekinn af lífi á almannafæri, lík hans dregið um götur og stræti uns honum var komið fyrir í frystigeymslu þar sem áhuga- samir gátu virt limlestan líkama hans fyrir sér. Svo tilkynnti einn nýlega að hann hygðist láta af embætti, en hann hefur reyndar gert það nokkrum sinnum án þess að standa við orð sín. Enn einn situr sem fastast þrátt fyrir sívaxandi þrýsting frá alþjóðasamfélaginu og murkar lífið úr þjóð sinni á grimmilegan hátt og hefur þurft að breyta knattspyrnuvöllum landsins í fangelsi og pyntingabúðir til að hafa pláss fyrir alla andstæðinga sína. Þá eru ótaldir allir þjóðhöfðingjar þessa heimshluta, sem láta mótmæli og óánægju þegnanna sem vind um eyrun þjóta og treysta á að þetta líði hjá. Engan óraði fyrir því hversu mikil áhrif yrðu af því þegar ávaxtasali í Túnis kveikti í sér um miðjan desem- ber í fyrra til að mótmæla harðræði og yfirgangi lögreglu landsins. Fjöldamótmæli hófust í landinu, fljótlega sagði forseti Túnis af sér og ekki leið á löngu þar til Egypta- landsforseti fetaði í fótspor hans. Það sem á eftir kom er flestum kunnugt. Fólk sem aldrei hafði kynnst öðru en kúgun og valdníðslu sá að það gat haft áhrif á eigið líf. Flest þessara landa eiga það sameiginlegt að hafa litla reynslu af lýðræði, að minnsta kosti eins og mörg okkar þekkja það. Víða hafa kosningar ekki farið fram í árafjöld og margir þjóðhöfðingjar í þessum heimshluta eiga það sammerkt að hafa ríkt í áratugi. Vald þeirra er víða óskorað, þeir virðast hafa full völd yfir auðlindum og efnahag lands síns og lifa í dýrðlegum vellystingurm á meðan stór hluti þjóðar þeirra á vart til hnífs og skeiðar. Verði breyting þarna á, er það mikið fram- faraskref; að efnahagsstjórn þessara landa, sem verið er að reisa úr rústum verði á þann veg að sem flestir geti lifað mannsæmandi lífi og að innviðir samfélagsins verði byggðir upp. Nýrra valdhafa bíður vandasamt verk. Til þeirra eru gerðar miklar væntingar, en fæstir þeirra hafa nokkra reynslu af því hvernig það er að búa við lýðræði. Almenn mannréttindi, eins og þau eru gjarnan skilgreind, eru mörgum þeirra framandi, enda eru margir uggandi um þróun mannréttindamála á þessum slóðum, ekki síst eftir að út spurðist að sjaríalög- um yrði komið á í hinni nýju Líbíu. Hver verður staða kvenna og barna í þessari nýju þjóðfélagsskipan? Vissulega eru þessi lönd langt í burtu frá okkur. En við erum hluti af alþjóðasamfélagi og við berum ábyrgð. Auðvelt er að segja að við eigum nóg með okkar vanda- mál, en við byggjum á langri lýðræðishefð og höfum miklu að miðla. Óskandi væri að við fengjum til þess tækifæri. annalilja@mbl.is Hvað kemur á eftir vorinu? Anna Lilja Þórisdóttir Pistill STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is E f Íslendingar ætla ekki að dragast aftur úr í nútímafjarskiptum þarf ríkið að leita nýrra leiða til þess að fjármagna nýja fjarskiptaáætlun sem stendur til að leggja fyrir Alþingi í næsta mán- uði. Í vikunni birti innanríkisráðu- neytið drög að þingsályktun um fjar- skiptaáætlun til tólf ára í skugga þess að fjármagn er ekki til staðar til þess að hrinda henni í framkvæmd. Leitar ráðuneytið nú fjármögnunarleiða. Slík fjarskiptaáætlun var fyrst lögð fram fyrir árin 2005 til 2010 og var þar lögð megináhersla á uppbygg- ingu háhraðanets og að GSM-væða þjóðveg eitt. Í áætluninni sem nú á að leggja fyrir og gilda á til 2022 eru sett frekari markmið um háhraðanet. Þannig er gert ráð fyrir að helmingur heimila og vinnustaða eigi kost á 100 Mb háhraðaneti árið 2014 og að það hlutfall verði komið upp í 99% árið 2022. Símapeningar ekki lengur til Að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, sérfræðings á skrif- stofu innviða hjá innanríkisráðuneyt- inu, standa Íslendingar mjög fram- arlega í þessum efnum á heimsvísu en þeir verði að passa sig að dragast ekki aftur úr. „Við höfum staðið okkur mjög vel sem helgast af því að það voru til fjármunir. Í áætluninni 2005-2010 var tveir og hálfur milljarður af söluvirði Símans settur í hana og það var farið í gríðarlega uppbyggingu á há- hraðaneti á svæðum þar sem fyr- irtækin sáu sér ekki hag í að fara,“ segir Steinunn. Þessum fjármunum er hins veg- ar ekki til að dreifa í dag og því þarf að leita nýrra leiða til að standa undir þeim markmiðum sem ríkið hefur sett sér í fjarskiptamálum. „Það er gríðarlega margt sem er framsýnt í þessari áætlun en við erum bundin eins og allir aðrir af því efna- hagsumhverfi sem er þessa dagana. Aðalatriðið er að halda í við þróunina þó fjármunir séu ekki lengur til stað- ar,“ segir hún. Treysta þurfi á samvinnu við fjarskiptafyrirtækin, skoða alls kyns laga- og reglugerðarbreytingar og vera opin fyrir nýjum fjármögn- unarleiðum til að koma áætluninni í framkvæmd. Á meðal þeirra fjármögnunar- möguleika sem verið er að skoða er frekari útfærsla á tíðnigjaldi sem inn- heimt hefur verið af fjarskiptafyr- irtækjum fyrir að nota tíðnir fyrir net og farsíma. Mega styrkja póstsendingar Fjarskiptaáætlunin nær einnig til póstmála og er meðal annars fjallað um opnun póstmarkaðarins sem yfirvofandi er vegna tilskipunar Evrópusambandsins um afnám einkaréttar á póstþjónustu. Ísland var eitt þeirra ríkja sem fengu leyfi til að fresta því að hún tæki gildi en það rennur út um áramótin 2012 til 2013. Í drögunum að fjarskipta- áætlun kemur fram að þá þurfi að tryggja að neytendur á landsvísu hafi aðgang að póstþjónustu. Geti markaðsöfl ekki tryggt þeim hann mega ríki útnefna alþjónustuveitanda sem stjórnvöld mega styrkja með ríkisstyrkjum, jöfnunarsjóði eða mögu- lega að und- angengnu útboði til þess að dreifa kostnaði við að þjóna afskekktum byggðum. Haldi í við tæknina þrátt fyrir minna fé Morgunblaðið/Ernir Netið Á meðal markmiða sem sett eru fram í fjarskiptaáætluninni er að helmingur heimila og vinnustaða hafi 100 Mb háhraðanet árið 2014. Eftir að póstmarkaðurinn verður opnaður skiptir öllu máli hvernig ríkið hyggst útfæra alþjónustu um landið að sögn Ingimundar Sigurpálssonar, forstjóra Ís- landspósts. Fyrirtækið hefur einkarétt á dreifingu almennra bréfa undir 50 grömmum gegn því að fyrirtækið annist dreifingu til allra lands- manna. Ingimundur segir að síðustu misseri hafi einkarétturinn verið rekinn með tapi og markaðurinn fari minnkandi vegna tæknibreytinga og efnahags- ástandsins. Fyrirtækið sé undir það búið að halda þjón- ustunni áfram enda með öflugt dreifikerfi en spurn- ingin sé helst hver greiði kostnaðinn þar sem hún kosti umtalsverða fjármuni. Alþjónustan kostar mikið EINKARÉTTUR ÚR GILDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.