Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐANBréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011
Um leið og ég sá hvernig Landeyja-
höfn mundi líta út var ég viss um að
hún yrði ekki í lagi með þessari lög-
un.
Að undanförnu
hafa verið um-
ræður í Morgun-
blaðinu um höfn-
ina. Skipstjórar
Herjólfs hafa tjáð
sig og talið að
eystri hafnar-
garðurinn ætti að
vera utar. Eins
og sést á þessari
mynd.
Í sumar gerði ég síðu á Facebook
sem heitir Endurgerð Landeyja-
höfn. Það var svo mánudaginn 17.
október sem hún var kynnt í Morg-
unblaðinu. Nokkur viðbrögð urðu
við því, flest jákvæð.
Ég hvet til lesturs á pistlum
Gests Gunnarssonar um höfnina
sem ég setti inn á síðuna um þessar
tillögur mínar. Þar segir hann meðal
annars að það þurfi að gera leiði-
garð sem leiðir sandburðinn til vest-
urs.
Staðreynin er að þarna eru
ríkjandi straumar frá austri sem
bera sandinn vestur svo þetta er
leiðin til að losna við sandinn frá
höfninni.
Þar sem ég hef séð hafnir víða og
gengið ýmsa hafnargarða þá er ein-
kennilegt að það hafi ekki verið
byggður svona garður sem lokar
fyrir að hafaldan lendi beint inn í
hafnarmynnið. Ég hef sett myndir
af nokkrum höfnum inn á síðuna
www.facebook.com/Endurgerð
Landeyjahöfn og þar sést að flestar
þeirra eru með slíkan garð nema
höfnin í Hanstholm í Danmörku sem
virðist vera fyrirmynd Land-
eyjahafnar eins og hún var hönnuð.
Rokið í ríkjandi austanáttunum
skapar háar öldur, nokkurra metra,
og gerir hafnarmynnið ófært fyrir
venjuleg skip eins og Herjólf.
Hafaldan æðir beint inn í mynnið og
ýtir sandinum inn.
Dýpi á enda framlengds hafnar-
garðs þarf að vera í það minnsta sjö
metrar til að mynda sog sem gæti
fleytt sandi framhjá. Siglingamála-
stofnun segir ef þetta yrði gert
myndi sandurinn safnast í mynnið.
En það tæki mörg ár að gerast og ef
til þess kæmi yrði að setja upp
dælubúnað sem staðsettur væri í
landi og gæti verið sjálfvirkur og
fylgst með dýpt. Og sandinum dælt
á land því hann er verðmæti.
Það er margt í greinargerð Sigl-
ingamálastofnunar sem er ekki rétt.
T.d. að þarna séu ríkjandi vest-
anáttir. Ég er nú Sunnlendingur að
ætt og veit að þetta er ekki rétt, en
auðvitað eru til tölur um þetta.
Sá hafnargarður eystri sem er nú
við höfnina er á alltof litlu dýpi. Það
er Siglingamálastofnun til varnar að
þetta mátti ekki kosta nema tak-
markað. Ég tel að það þurfi að fara
strax í framkvæmdir til að gera
eystri garðinn lengri og steyptir
yrðu teningar úr fjörusandinum og
sandinum sem dælt væri á land sem
væru burðurinn í þessum nýja
garði. Hann væri með steypuplani
og lýsingu sem gerði siglingu skipa
auðveldari í myrkri. Ég tel að Sigl-
ingamálastofnun eigi að samþykkja
þennan málflutning og hefja fram-
kvæmdir strax. Setja upp litla
steypustöð sem gerir teninga sem
undirstöðu. Sennilega 3-500 milljóna
kosnaður. Og höfnin verður örugg í
nokkra framtíð. Of dýrt er að
sprengja uppi í fjalli.
ÁRNI BJÖRN GUÐJÓNSSON,
húsgagnasmíðameistari með próf
í bylgjufræðum.
Landeyjahöfn og
Siglingamálastofnun
Frá Árna Birni Guðjónssyni
Árni Björn
Guðjónsson
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna lýsir árið 2011 „alþjóðlegt ár
skóga“ sem lið í að fylgja eftir
áherslum og yfirlýsingum, allt frá
ráðstefnunni um umhverfi og þróun
í Ríó árið 1992.
Það er verk-
efni allra sem
vinna undir
merki ársins að
stuðla að aukinni
vitund fólks um
mikilvægi sjálf-
bærrar umhirðu
allra skóg-
argerða, til hags-
bóta fyrir fram-
tíð jarðar. Þótt átakið sé nokkuð
mannmiðlægt og líti einkum til þess
sem er til hagsbóta fyrir núlifandi
og óbornar kynslóðir manna þá er
sérstök áhersla á vernd viðkvæmra
skógarvistkerfa, einkum í hitabelt-
inu þar sem jarðyrkja til mat-
vælaframleiðslu ógnar skógum.
Þá notar Allsherjarþing SÞ tæki-
færið og minnir á samninginn um
líffræðilega fjölbreytni, loftslags-
sáttmála SÞ, samninginn um varnir
gegn myndun eyðimarka, sem og
aðra samninga sem máli skipta og
fást við flókin úrlausnarefni er
varða skóga og skógarvistkerfi.
Merki (logo) ársins er hannað um
þemað „Skógar fyrir fólk“ og undir-
strikar að skógar hafa fjölþætt
gildi, m.a.:
* veita skjól og eru mikilvæg bú-
svæði fjölmargra lífvera og upp-
spretta matar og nauðsynlegir fyrir
lyfjagerð
* varðveita gæði ferskvatns
* eru mikilvægir fyrir jarðvegs-
vernd og líffræðilega fjölbreytni
* gegna stóru hlutverki í að við-
halda stöðugu loftslagi og hring-
rásum vatns og næringarefna
* eru vistvænn efniviður, bæði
endurvinnanlegur og til nýsköp-
unar
Allsherjarþingið telur að samtillt
átak þurfi á öllum sviðum til að
auka vitund og styrkja sjálfbæra
umhirðu, vernd og sjálfbæra þróun
allra skógargerða. Með sífellt vax-
andi jarðyrkju höfum við eytt helm-
ingi allra skóga á jörðinni. Kröfur
okkar hafa kallað á stöðugan vöxt á
öllum sviðum. Erum við að eyði-
leggja skóga, „lungu jarðar“, til að
framleiða óþarfa? spyr Yann Arth-
us-Bertrand sem gert hefur stutt-
myndina „Of Forests and Men“
sem valin var kynningarmynd um
heim allan á alþjóðlegu ári skóga.
Í upphafi ársins var skorað á rík-
isstjórnir, svæðisbundnar stofnanir
og hópa að styðja viðburði sem
tengjast árinu, meðal annars með
frjálsum framlögum, og með því að
tengja viðburði á sínum vegum við
árið. Hér á landi hefur Pokasjóður
styrkt nokkur verkefni, m.a. end-
urgerð Pakkhússins í Vatnshorni úr
íslenskum skógviði og ráðstefnuna
„Heimsins græna gull“ sem haldin
var 22. okt. sl. Fleiri hafa stutt ein-
staka verkefni og enn er tími til
stefnu.
Morgunblaðið tileinkaði ári
skóga aukablað 29. apríl í vor með
myndarlegum hætti og Rík-
isútvarpið hefur flutt þætti í tilefni
af ári skóga. Þá mun Sjónvarpið
sýna stuttmynd Yanns Arthus-
Bertrands „Of Forests and Men“
að loknu Silfri Egils nk. sunndag.
Frekari upplýsingar um ár skóga
er að finna á heimasíðunni ar-
skoga2011.is.
K. HULDA
GUÐMUNDSDÓTTIR,
talsmaður á ári skóga.
Alþjóðlegt ár skóga –
til hvers?
Frá K. Huldu Guðmundsdóttur
K. Hulda Guð-
mundsdóttir
Í lok annars fjórð-
ungs þessa árs námu
heildarskuldir rík-
issjóðs um 1.803 millj-
örðum króna. Það eru
ríflega 111,3 prósent af
vergri landsfram-
leiðslu. Og er ekki um
ný sannindi að ræða –
þvert á móti. Skulda-
söfnun ríkissjóðs er,
og hefur verið seinustu
ár, gegndarlaus.
Stjórnmálamenn hafa ár eftir ár
eytt um efni fram og ef svo fer fram
sem horfir blasir algjört greiðslufall
við. Það er öllum orðið ljóst að vinda
þarf almennilega ofan af halla-
rekstri ríkisins og boða straumhvörf
í rekstri ríkissjóðs.
Það er fátt sem bendir til þess að
núverandi ríkisstjórn geti komið
böndum á hallarekstur hins op-
inbera. Þegar allt kemur til alls er
það hún sem hefur rekið ríkið vísvit-
andi með halla í hartnær þrjú ár.
Það sem stendur á milli hallarekstr-
ar og hallalauss rekstrar er ekkert
annað en vilji stjórnmálamanna til
að stemma stigu við
skuldasöfnuninni. Af
störfum núverandi rík-
isstjórnar að dæma er
bersýnilegt að skulda-
byrðinni verði einfald-
lega velt yfir á kom-
andi kynslóðir.
Hvað er þá til ráða?
Hvernig skal taka á
þessum ólestri? Fyrir
það fyrsta þarf að
skera niður ríkisút-
gjöld – og það all-
rækilega. Raunar þarf
að skilgreina grunn-
hlutverk ríkisvaldsins að nýju og í
kjölfarið selja eignir og fyrirtæki í
eigu ríkisins til einkaaðila. Það þýð-
ir ekki að skera örlitlar sneiðar hér
og þar, heldur þarf að breyta hug-
arfari fólks gagnvart ríkinu og hlut-
verki þess. Þessi niðurskurður yrði
óneitanlega gríðarlega sársauka-
fullur, en er engu að síður bráð-
nauðsynlegur.
Skattahækkanir núverandi
stjórnvalda hafa ekki skilað sínu. Á
það var bent margsinnis, að lausnin
á skuldavanda ríkissjóðs væri ekki
sú að kæfa hagkerfið, heldur að
opna það upp á gátt. Stjórnvöld létu
slíkar ráðleggingar eins og vind um
eyru þjóta og þarf nú öll þjóðin að
súpa seyðið. Staðreynd málsins er
alltént sú að þrátt fyrir íþyngjandi
skattahækkanir frá árinu 2009 hafa
skuldirnar farið stigmagnandi og
nálgast nú hæstu hæðir. Lækkandi
skattar ættu hins vegar að kveikja
neista vonar í brjósti fjárfesta sem
og óþreyjufullra landsmanna.
Ef ekkert verður aðhafst frekar
mun níðþungur skuldaklafi leggjast
á næstu kynslóðir. Börnin okkar og
barnabörn munu þá koma til með að
glíma við eintómar skattahækkanir
og afborganir í fjöldamörg ár.
Bundin í slíka fjötra er torvelt að
eygja von um bjarta framtíð. En
hvað með núverandi ráðamenn?
Þeirra bíða eflaust ljúfir dagar á
góðum eftirlaunum.
Skuldaklafi ríkisins
Eftir Kristin Inga
Jónsson »Ef ekkert verður að-
hafst frekar mun
níðþungur skuldaklafi
leggjast á næstu kyn-
slóðir.
Kristinn Ingi
Jónsson
Höfundur er menntaskólanemi.
Eftir að fólk varð
fyrir alvarlegum auka-
verkunum fóru for-
eldra- og ýmis áhuga-
mannafélög gegn
HPV-bólusetningu að
verða til í Svíþjóð, Ír-
landi og víðar. Þá hafa
læknar í Bandaríkj-
unum verið að mynda
hópa, félög og samtök
gegn bólusetningum
eins og t.d. „Anti-
Vaccine Friendly Doctors“
(novaxdoctors.webs.com) og Int-
ernational Medical Council on Vacc-
ination en innan IMCV eru einnig
hjúkrunarfólk og vísindamenn sem
eru ekki bara á móti HPV-
bólusetningu, heldur öllum bólu-
setningum. Á íslensku er meira að
segja hægt að nálgast yfirlýsingar
frá þeim eins og þessa: „Bóluefni:
Fáðu alla söguna“ með harðri gagn-
rýni gegn bóluefnum (nat-
uralnews.com/SpecialReports/
VaccinesFullStory/v1/Vacc-
ineReport-IS.pdf).
Hvað þarf að fela?
Það líður sjaldan langur tími að
ekki sé komin út einhver ný bók á
netinu eða einhverjar upplýsingar
gegn bóluefnum, en það sem maður
sér ekki erlendis eins og hér er þessi
ljóti yfirgangur innan grunnskól-
anna, þar sem hér er ekki einu sinni
beðið um undirskrift foreldra og for-
ráðamanna fyrir bólusetningunni,
hvað þá beðið um bólusetningar-
skírteinið. Hvað þá að foreldrum séu
veittar nægilegar upplýsingar varð-
andi öryggi, innihaldsefni HPV- eða
MMR-bóluefnanna. Af hverju er al-
menningi ekki kynnt hvaða efni eru
í bóluefnum því þau eru jú flokkuð
undir lyf og það er víst skylda að
hafa upplýsingar með öllum lyfjum
hér á landi? Kannski yrði hætta á
því að foreldrar eða forráðamenn
barna og unglinga myndu ekki láta
bólusetja börnin sín ef þeir fengju
allar upplýsingar og innihaldslýs-
ingar á mannamáli. Fólk ætti einnig
að fá eitthvert ráðrúm til að ákveða
sig, en það getur ekki gert það
vegna þess að það fær engar upplýs-
ingar nema eitthvað sem hinu háa
heilbrigðisbatteríi
þóknast að láta frá sér
í fjölmiðlum. Ef for-
eldri hefur ekki náð að
hringja inn og afpanta
bólusetninguna er
stúlkan allt að því
þvinguð í bólusetn-
inguna undir þeim
þrýstingi sem þekkist í
viðkomandi skóla.
Yfirgangur látinn
viðgangast
Hvaða heimild í lög-
um hafa heilbrigðis- og
skólayfirvöld fyrir bólusetningum
yfirhöfuð þegar foreldrar hafa ekki
veitt neitt skriflegt leyfi fyrir HPV-
og MMR- og fleiri bólusetningum?
Þögn er ekki það sama og samþykki.
Hvernig stendur á því að þessi yf-
irgangur er látinn viðgangast innan
allra grunnskóla? Það er hins vegar
alveg vitað mál, að ef sett yrðu hér
lög eins og þekkist erlendis í þessu
sambandi, og hvað varðar að prenta
út á íslensku allar helstu upplýs-
ingar með öllum bóluefnum, þá er
ég hræddur um að Haraldur Briem
og félagar myndu bara fara í felur
það sem eftir væri. Í allri herferð-
inni sem staðið hefur yfir fyrir
HPV-bólusetningu er öll áherslan
lögð á að HPV-bóluefnin séu örugg
og komi í veg fyrir um 70% smit-
tilfella. Hvaða tilgangi þjónar HPV-
bóluefnið (gegn u.þ.b. 70% HPV-
tilfella) þegar vitað er til þess að
ónæmiskerfið losar sig við 70%
HPV-sýkinga innan tveggja ára,
90% HPV-sýkinga innan þriggja ára
(CDC 2004 Report to Congress on
Prevention of HPV, hpvforum.com/)
og þegar bólusetningin sjálf gengur
út á ekkert annað en að fá ónæm-
iskerfið til að búa til mótefni? Af
hverju að taka áhættu með notkun
HPV-bóluefnanna (gegn uþb. 70%
HPV-sýkinga) þegar flestar konur
með HPV-sýkingar verða ekki veik-
ar af þeim og í 90% HPV-tilfella þá
losar ónæmiskerfið sig við sýking-
arnar (cdc.gov/std/hpv/stdfact-
hpv.htm) og þegar vitað er til þess
að bóluefnið er ekki 100% öruggt og
ekki fullkannað?
Áhættan meiri en
hugsanlegur ágóði
Eins og vísindakonan dr. Diane
Harper sem rannsakaði bóluefnið
hefur viðurkennt, þá er bóluefnið
ekki 100% öruggt og hefði átt að
rannsaka bóluefnið lengur áður en
almenn bólusetning byrjaði
(Scotsman.com, 2. nóv. 2008), en
menn hér eru ekkert á því og full-
yrða bara að bóluefnið sé öruggt.
Þrátt fyrir að það sé víða vitað að
stór hópur indverskra lækna og
fleiri aðilar hafi gefið út yfirlýsingu
gegn notkun HPV-bóluefnanna
(vaccineriskawareness.com/
Gardasil-and-Cervarix-The-
Cervical-Cancer-Vaccines), eða þar
sem 4 dauðsföll og 120 alvarlegar
aukaverkanir komu upp í klínískum
rannsóknum, þannig að stjórnvöld
ákváðu að hætta öllum HPV-
bólusetningum. En hér láta menn
eins og þeir hafi aldrei heyrt neitt
slíkt og auglýsa að bóluefnið sé
öruggt og alvarlegar aukaverkanir
ekki þekktar. Þá mæla menn hér
með Gardasil-bóluefninu, þrátt fyrir
að öll þessi 463 sérkennilegu tilfelli
sjálfsónæmissjúkdóma („potentially
indicative of systemic autoimmune
disorder(s)“) hafi komið upp í klín-
ískum rannsóknum í Bandaríkj-
unum á 29.323 þátttakendum og þar
sem 37 voru skráðir látnir í
tengslum við bóluefnið, en 255
skráðir með alvarlegar aukaverk-
anir (holyhormones.com/womens-
health/cervical-cancer/hpv-vaccine-
controversy-indias-response-puts-
the-world-to-shame/). Vonandi þarf
ekki fleiri en tvö alvarleg tilfelli hér
eins og komu upp á Spáni (sane-
vax.org/victims-2/cervarix-victims/
cervarix-spain/) til að hætta þessari
HPV-bólusetningu með Cervarix,
þar sem læknar hér virðast auk þess
ekki vilja taka á sig persónulega
fjárhagslega ábyrgð fyrir því að
bóluefnið sé öruggt.
Viðbrögð við alvarlegum
aukaverkunum eftir
HPV-bólusetningu
Eftir Þorstein Sch.
Thorsteinsson » Af hverju er almenn-ingi ekki kynnt
hvaða efni eru í bóluefn-
um því þau eru jú flokk-
uð undir lyf ...
Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson
Höfundur er formaður Samstarfs-
nefndar trúfélaga fyrir heimsfriði og
er meðlimur í félagi áhugamanna um
bóluefni