Morgunblaðið - 28.10.2011, Qupperneq 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011
Samkvæmt skoð-
anakönnunum er mikill
meirihluti þeirra Ís-
lendinga sem taka af-
stöðu til sjálfstæðis
Palestínu hlynntur því
að okkar þjóð hjálpi
Palestínumönnum
áleiðis í baráttunni til
að stofna eigið ríki.
Þó er til lítill hópur
fólks á Íslandi sem er
andsnúinn því að Palestínumenn
njóti sömu mannréttinda og venju-
legir Íslendingar telja sjálfsögð.
Það hlýtur að vekja furðu margra
að þennan hóp skorti mannúð til að
samþykkja að hrakin þjóð í fjarlægu
landi öðlist sjálfsagðan rétt til bú-
setu og eðlilegs lífs í sínu eigin landi.
Tveir úr þessum hópi hafa nýlega
skrifað greinar í Morg-
unblaðið. Skríbentarnir
heita Skúli Skúlason og
Ólína Klara Jóhanns-
dóttir og eru í félaginu
Ísland-Ísrael. Bæði
ráðast þau gegn Pal-
estínumönnum, fólki af
annarri trú en þeirra
eigin, og reyna að
sannfæra lesendur sína
um að hér fari hið
versta fólk sem ætli að
vinna okkur allt til
miska sem það mögu-
lega getur.
Það er athyglisvert að sjá hve
þessi skrif ríma við aðferðir sem
gyðingahatarar fyrri tíma notuðu.
Gyðingum voru eignaðir allir lestir
og illur tilgangur og því var réttlæt-
anlegt að ráðast gegn þeim. Há-
punktur ofsóknanna var helför nas-
ista.
Líkt og Skúli og Ólína byggðu of-
sækjendur gyðinga málflutning sinn
á trúarofstæki og kynþáttahyggju.
Norski fjöldamorðinginn Anders
Breivik var á sömu slóðum í sínum
málflutningi. Hann jós hatri sínu yf-
ir múslima og eignaði þeim allt hið
versta, eins og Skúli og Ólína. Sumir
skrifa – aðrir skjóta.
Gyðingahatarar nútímans
Eftir Hjálmtý V.
Heiðdal » Þó er til lítill hópur
fólks á Íslandi sem
er andsnúinn því að Pal-
estínumenn njóti sömu
mannréttinda og venju-
legir Íslendingar telja
sjálfsögð.
Hjálmtýr V. Heiðdal
Höfundur er kvikmyndagerð-
armaður.
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Ný fjarskiptaáætlun
stjórnvalda 2011-2022
Opinn fundur verður haldinn miðvikudaginn
2. nóvember klukkan 11:50 til 14:00
á Grand Hótel Reykjavík í samstarfi við
Ský - Skýrslutæknifélag Íslands.
Yfirskrift fundarins:
Ný fjarskiptaáætlun stjórnvalda fyrir árin 2011-2022
Dagskrá:
11:50 - 12:05 Afhending gagna
12:05 - 12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 - 12:30 Ávarp innanríkisráðherra,
Ögmundar Jónassonar
12:30 - 12: 50 Kynning á áætluninni:
Sigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri
12:50 - 13:05 Öryggismál og mikilvægi fjarskiptainnviða:
Þorleifur Jónasson og Stefán Snorri
Stefánsson, fulltrúar frá Póst- og
fjarskiptastofnun
13:05 - 13:25 Snertifletir fjarskiptaáætlunar við
upplýsingasamfélagið: Guðbjörg
Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í
forsætisráðuneytinu
13:25 - 13:55 Umræður
13:55 - 14:00 Samantekt: Gunnar Svavarsson,
formaður Fjarskiptasjóðs
Fundarstjóri: Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur í
innanríkisráðuneyti.
Fundurinn er opinn hagsmunaaðilum og áhugamönnum um
fjarskiptamál.
Skráning og upplýsingar um verð er að finna á
www.sky.is.
Ég vissi það og var
reyndar búinn að
skrifa um þetta fyrir
löngu að svona mundu
þau enda afglöp sín.
Þetta skrautlega vel-
ferðarferðalag þeirra
Jóhönnu og Stein-
gríms. Það er lítill
vandi að halda úti
svona ferðalagi þegar
þau geta setið við
þetta í rólegheitum, jafnvel í minni-
hluta á þingi og einstaklega aumk-
unarverðu þrasi við virðulegan for-
seta Íslands.
Ég var löngu búinn að segja að
Steingrímur og Jóhanna myndu
finna sér upp eitthvert bellibragð
og setja allt á fullt seinasta árið í
stjórnarsetunni til að láta fólkið
halda að þetta væru verk vinstri-
stjórnar. Hvað varðar Steingrím
um hvað ríkisendurskoðandi segir?
Bara að afgreiða hann með því að
segja að hann sé asni eða alla vega
með fíflalæti og svo kom Ögmundur
og skar hann úr snörunni (vinur er í
raun reynist).
Það var löngu ljóst að Stein-
grímur og Jóhanna myndu aldrei
treysta sér í kosningar með öll þau
asnaspörk á bakinu sem nú eru þar.
Það var aðeins spurning um hvern-
ig þau reyndu að dylja svikin sem
sennilega eru þau svæsnustu sem
nokkur ríkisstjórn hefur fundið
upp.
Steingrímur og hans lið heldur
áfram, meira segja slær öll met í
sínum gjörðum, hann vogar sér að
opinbera þetta fyrir þjóðinni. Mað-
ur skilur bara ekki
hvað þeim gengur til.
Hann játar aðspurður
að hann ætli ekki að
hlífa mörgum í ár því
nóg verði um peninga
næst.
Miklir peningar séu
væntanlegir og því
muni fjárlög næsta árs
verðaallt önnur. Nú sé
hægt að loka sjúkra-
stofnunum og gildir þá
einu hvar þær eru
staðsettar, frekar illt
að gera en ekkert. Þau gleyma að
nefna fólk sem þúsundatali sár-
vantar nauðþurftir, nær ekki end-
um saman til að geta lifað. Og held-
ur ekki þó að umsóknum um
nauðþurftir hafi aukist um 62% frá
árinu 2006. Þau bíta höfuðið af
skömminni og loka mikilvægum
líknarstofnunum. Þetta er svo brjál-
æðislegur hugsunarháttur, og hvað
þá framkvæmd, að slíkt væri varla
hægt að telja mannlegt. Þarna fara
fremst í flokki Steingrímur J. Sig-
fússon, Jóhanna Sigurðardóttir og
Guðbjartur Hannesson, kennari og
svokallaður velferðarráðherra, en
samt er hægt að kenna þetta allt
við svokallaða norræna velferð.
Stjórn er það ekki því landið er
stjórnlaust. Ég skora á einhvern er
telur sig hafa kjark til að fella þessa
ólukkustjórn að gera það nú þegar
og lofa fólki að komast að sem kann
að stjórna. Að endingu bið ég fólk í
landinu að muna vel hver situr í
stjórnarráðinu 2008 til næstu kosn-
inga. Mér er vel kunnugt um þær
greiðslur sem sveitarfélögin eiga að
greiða en það ber allt að sama
brunni, ríkið er búið að mergsjúga
þau inn að beini og þau eru ekki af-
lögufær með neitt, standa sig jafn-
vel betur en þetta tætingslið sem
kennir sig við velferð og er að berja
saman fjárlögin, á kostnað smæl-
ingjanna.
Reykjavík haustið 2011
Eftir Karl Jóhann
Ormsson »Ég skora á einhvern
er telur sig hafa
kjark til fella þessa
ólukkustjórn að gera
það nú þegar og lofa
fólki að komast að sem
kann að stjórna.
Karl Jóhann Ormsson
Höfundur er fv. deildarstjóri.
Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá
lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í
samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í
bréfum til blaðsins.
Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að
kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að
kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur.
Móttaka aðsendra greina
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is