Morgunblaðið - 28.10.2011, Side 26

Morgunblaðið - 28.10.2011, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011 ✝ Stella RagnaEinarsdóttir fæddist í Lúx- emborg 27. ágúst 1975. Hún lést á heimili sínu í Hol- landi 12. október 2011. Foreldrar henn- ar voru Ásta Gunn- arsdóttir, f. 30. ágúst 1944, og Ein- ar Sigurðsson flug- stjóri, fæddur 6. október 1934, d. 10. desember 1999. Þau skildu árið 1984. Bróðir hennar er Gunnar Óðinn Einarsson en einn- ig átti Stella Ragna tvö systkini samfeðra, Ingibjörgu, sem nú er látin, og Sigurð. Stella Ragna ólst upp fyrstu sex ár ævi sinnar í Lúxemborg en flutti þá heim til Íslands og hóf skólagöngu hér. Stella Ragna útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum Ragna aftur heim og hóf störf á skrifstofu Air Atlanta. Stella Ragna og Fakhar eignuðust sitt fyrsta barn 4. febrúar 2004, sem var drengur og fæddist andvana. Hann var nefndur Elía Orri. Ári seinna, eða 29. janúar 2005, fæddist þeim stúlka, Míra Katrín, sem var augasteinn móður sinn- ar. Stella Ragna og Fakhar skildu. Stella Ragna var mjög listræn og mikið náttúrubarn og hafði áhuga á ýmsum andlegum málefnum. Hun lærði m.a. heilun og jóga og hafði einnig mikinn áhuga á ljósmyndun. Árið 2007 hóf Stella Ragna nám við Há- skóla Íslands og lagði stund á listfræði. Hún útskrifaðist með BA-gráðu vorið 2010 og hélt þá af stað til Hollands í meist- aranám ásamt Míru Katrínu. Síð- astliðið sumar voru þær mæðgur heima á Íslandi og starfaði þá Stella Ragna hjá Listasafni Ís- lands. Stella Ragna var á seinna árinu sínu í meistaranámi úti í Hollandi þar sem hún lést. Útför Stellu Rögnu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 28. október 2011, og hefst at- höfnin kl. 15. við Ármúla árið 1995. Þá hélt hún til Madrid sem au-pair í 1½ ár ásamt því að vinna þar ýmis önn- ur störf sem og að læra spænsku. Hún hóf störf sem flug- freyja hjá Air Atl- anta árið 1997 með aðsetur í Sádi- Arabíu. Hún var síð- an flutt um set til Madrid og flaug þaðan fyrir Atl- anta í tæpt ár. Stella Ragna flutt- ist aftur yfir til Jedda á vegum Air Atlanta þar sem hún fór aft- ur í pílagrímsflug. Þar kynntist hún fyrrverandi eiginmanni sín- um, Fakhar Abbas, ættuðum frá Pakistan. Þau giftust árið 2001. Sama ár fór Stella Ragna til Kan- ada og stundaði nám við Seridan- listaháskólann í Oakville einn vetur. Vorið 2002 flutti Stella Hjarta mitt og annarra ást- vina er kramið þessa dagana og enginn skilur tilganginn með þessari óskiljanlegu gjörð Drott- ins að taka í burtu unga konu í blóma lífsins og skilja eftir litla sex ára dúllu móðurlausa. Þegar sólargeislarnir voru farnir að lækka á lofti haustið 1975 fékk ég þær fréttir að ég hefði eignast litla frænku í Lúx- emborg. Þrátt fyrir að ég væri einungis lítil stelpa sjálf hlakkaði ég gríðarlega mikið til að fá að sjá hana. Ég man alltaf eftir því þegar Ásta kom loksins með hana í litlu hvítu burðarrúmi og ég gat ekki beðið eftir að fá að halda á litlu frænku. Þegar Stella Ragna var sex ára fluttist hún loks til Íslands og frá þeim tíma hafa leiðir okkar legið þétt saman enda ósköp lítil fjölskylda á ferð. Stuttu áður en Stella Ragna fluttist heim frá Lúxem- borg bauð Ásta mér að koma út til þeirra og dveljast þar í einar þrjár vikur yfir sumarið. Þá var Stella Ragna lítil skotta sem mér þótti voða gaman að passa. Hún var með einstaklega fallegt krullað, sítt rautt hár og var allt- af svo mikil dúlla. Það er ým- islegt sem við höfum brallað saman í gegnum tíðina, t.d. var oft farið í mömmó þar sem Stell- urnar tvær, Stella Ragna og Stella María, voru lillurnar og ég og Valli bróðir vorum foreldr- arnir eða ég átti þau öll þrjú. Í mömmó lét ég þær alltaf fara í skólann í þykjustunni og þá breyttist ég úr mömmunni yfir í kennarann og fannst okkur það hinn eðlilegasti hlutur. Þær eru svo ótalmargar sögurnar sem ég á um hana Stellu Rögnu mína sem nú eru orðnar að dýrmætum minningum. Hún var góður hlustandi og naut ég góðs af því. Stella Ragna eignaðist tvö börn um ævina, dreng sem fæddist andvana er hún nefndi Elía Orra og ári síðar eignaðist hún sól- argeislann sinn hana Míru Katr- ínu. Þær voru mjög nánar mæðgur og gerðu alla hluti sam- an. Stella Ragna var mikil lista- gyðja og hafði fágaðan smekk á hinum ýmsu gerðum listarinnar. Hún hafði mikinn áhuga á and- legum málefnum og lærði m.a. heilun og jóga. Hún var mikið náttúrubarn, alltaf kurteis og yf- irveguð en óskaplega hláturmild enda var ekki leiðinlegt þegar við systkinabörnin hittumst því þá lágum við oft í hláturskasti yfir öllum gömlu minningunum og bara yfir engu – það var bara svo gaman. Stella Ragna var glæsileg ung kona sem starfaði í nokkur ár sem flugfreyja hjá Air Atlanta og bjó um tíma bæði í Jedda og Madrid þar sem hún hafði aðsetur á meðan hún starf- aði í fluginu. Hún hóf nám við HÍ og lauk BA-gráðu í listfræði áður en hún hélt af stað til Hollands í meistaranám ásamt Míru Katr- ínu sinni. Hún var á öðru ári í meistaranáminu sínu þegar hún varð bráðkvödd á heimili sínu að morgni 12. október. „Þú komst við hjartað í mér“ segir í ljóðinu fallega og er ég hugsa til þín heyri ég röddina þína, pínu djúpa, og svo hlát- urinn og það er sárt. Elsku Míra Katrín, Ásta, Gunni og amma, stórt skarð er höggvið í okkar litlu fjölskyldu. Megi algóður Guð umvefja ykk- ur hlýju og skilningi sem og að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Margrét Ármann. Þegar stórt er spurt er fátt um svör og við sem eftir sitjum spyrjum okkur þeirrar stóru spurningar hver sé tilgangurinn í því að ung móðir sé tekin í burtu eins og hendi sé veifað, en fáum ekkert svar. Lífið er óút- reiknanlegt og aldrei hefði mér dottið í hug að ég ætti eftir að skrifa minningarorð um Stellu Rögnu frænku mína svona snemma. Stella var ævintýragjörn, ró- leg og góðhjörtuð með fallegt krullað, rautt hár sem mér fannst vera eitt hennar mesta djásn. Hún var heimsborgari og leið vel að búa erlendis enda prófaði hún nokkra staði um æv- ina. Við erum mjög lítil og náin fjölskylda og eru minningarnar sem ég á um Stellu margar. Við nöfnurnar brölluðum margt saman enda ekki nema þrjú ár sem skildu okkur að. Ég man að ég var ótrúlega stolt af því að eiga frænku sem var þremur ár- um eldri og sagði fólki óspart frá því ef það kom sér vel í ein- hverjum aðstæðum. Ég man einnig vel eftir öllum barbíleikj- unum heima hjá henni í Búð- argerðinu þar sem dúkkan henn- ar hét um tíma alltaf Ísabella þar sem það var mikið uppáhalds- nafn hjá henni. Þegar ég rifjaði það upp fyrir stuttu við hana mundi hún reyndar ekki eftir því hve mikið hún hélt upp á það og hlógum við að þessari minningu saman. Okkur frænkunum fannst við líka voða fyndnar þeg- ar við hringdumst á og sögðum „Stella, hæ þetta er Stella“. Við nöfnurnar fórum út fyrir þægindarammann í tvö sumur og skelltum okkur saman í Skagafjörðinn í sveit þar sem við áttum góðan tíma þó svo að borgarbarnið hafi haldið fast í okkur. Við reyndum þó að borða sveitamatinn, umgangast dýrin og gefa þeim að éta eftir okkar bestu getu. Við Stellurnar ásamt Sissý frænku minni stofnuðum SSS- tríóið og tróðum upp við öll tæki- færi sem við mögulega gátum innan fjölskyldunnar nokkur ár þar á eftir. Eurovision-lögin ásamt landslögunum voru vinsæl og æfðum við tímunum saman sönginn og hermdum eftir atrið- um. Eftirminnilegast hjá okkur þremur saman var lagið Gleði- bankinn þar sem ég var Sigga, Sissý var Pálmi og Stella var Ei- ríkur enda kom ekkert annað til greina þar sem hún var alveg með rétta hárið í hlutverkið. Fyrir tæpum átta árum varð Stella fyrir miklu áfalli þegar hún fæddi andvana fullburða dreng. Mikið rosalega fann ég til með henni og held að það sé sorg sem maður jafnar sig aldrei á. Stella var mjög sterk og var ég ótrúlega stolt af henni og hvern- ig hún tók á þessari miklu sorg. Ári seinna eignaðist hún annan gullmola, Míru Katrínu, sem hún fékk að halda og var sólargeisl- inn í lífi hennar. Þær mæðgur voru tvær að mestu og sinnti Stella móðurhlutverkinu af mikl- um dugnaði. Eftir situr því lítil yndisleg sex ára stúlka sem skil- ur ekkert í því hvað varð um mömmu sína og erfitt að útskýra fyrir henni tilganginn þegar eng- inn annar skilur hann. Elsku fjölskylda, Míra Katrín, Ásta, Gunni og amma. Skarðið er mikið og því enn meiri ástæða til að halda fast utan um hvort annað og þakka fyrir hvern dag sem við höfum saman. Takk fyrir allt og allt elsku Stella mín og mun minningin um þig lifa um aldur og ævi. Stella María Ármann. Það fyrsta sem kemur upp í huga minn þegar ég hugsa um Stellu Rögnu frænku mína er mynd af henni og hennar ein- staklega hlýja og fallega brosi. Bros sem var svo einlægt og sýndi svo mikinn kærleika. Stella Ragna hafði alveg einstak- lega góða nærveru og þegar við frænkurnar rákumst hvor á aðra voru samskipti okkar innileg og hlý. Þegar ég hugsa til baka þá finnst mér Stella Ragna alltaf hafa verið fullorðin því hún hafði svo þroskaða og fágaða fram- komu, alveg frá því hún var ung stúlka. Hún bjó yfir einhverju æðruleysi og maður fékk það á tilfinninguna að hún væri svolítið gömul sál sem vissi meira um líf- ið og tilveruna en ungt fólk á hennar aldri. Kannski var Stella Ragna búin að læra allt sem hún gat lært hér hjá okkur, ég veit það ekki. Það er eitthvað svo ósanngjarnt að ung, hraust móð- ir á besta aldri sem gekk vel í námi og starfi hafi þurft að hverfa frá okkur svona fljótt en ég mun alltaf minnast Stellu Rögnu sem eins fallegasta kar- akters sem ég hef á ævi minni kynnst. Megi Guð og englar vernda Stellu Rögnu á þeim stað sem hún mun nú dvelja á og vaka yfir elskulegri dóttur hennar um ókomna tíð. Klara Stefánsdóttir. Brosmild, geislandi og gáfum gædd. Stella Ragna bauð af sér góðan þokka með mikið og fal- legt rautt hár. Við þekktumst frá blautu barnsbeini þar sem fjöl- skyldur okkar tengjast og mikill samgangur þar á milli. Við stöll- ur; Stella Ragna, Stella María og ég, brölluðum margt á yngri ár- um. Við stofnuðum hið bráð- skemmtilega „SSS tríó“ og tróð- um upp í ýmsum fjölskylduboðum. Þar tókum við t.d. Gleðibankann við mikinn fögnuð viðstaddra. Þar var Stella Ragna í hlutverki Eiríks Hauks- sonar, Stella María lék Helgu Möller og ég Pálma Gunnarsson. Er ég afar þakklát fyrir allar þær góðu stundir sem ég átti með Stellu Rögnu. Með fágaða framkomu, hóg- vær og heilsteypt. Stella Ragna vissi hvert hún stefndi. Það var gaman að hitta hana í sumar. Hún var ánægð í náminu úti í Hollandi og glöð með sumarvinn- una í listasafninu hérna heima. Og stolt var hún af sólargeisl- anum sínum, henni Míru Katr- ínu. Ég dáðist alltaf að þeim mæðgum. Samband Stellu Rögnu við móður sína og ömmu var að sama skapi aðdáunarvert, byggt á kærleika, vináttu og virðingu. Ég veit að Stella Ragna mun vaka yfir fjölskyldu sinni af himnum ofan. Sorglegt, óraunverulegt og ósanngjarnt. Enginn skilur svip- legt fráfall Stellu Rögnu. Ætt- ingjar hennar og vinir eru á sáran hátt minntir á að enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Minningarnar um yndislega stúlku ylja. Hlutverk ástvina er að hlúa vel að elsku Míru Katrínu. Reynast henni stoð og stytta um ókomin ár og heiðra minningu móður hennar um alla framtíð. Elsku Míra Katrín, Ásta, Gunni og amma Stella. Missir ykkar er mikill. Við systkinin, foreldrar okkar og makar vott- um ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að vaka yf- ir ykkur alla daga. Sigþrúður Ármann. Að setjast niður og skrifa nokkur orð um svo stórbrotna manneskju sem Stella var er nær ómögulegt. Hvar skal byrja, hvað skal skrifa? Stella er mér afar kær og hefur verið ein af mínum bestu vinkonum síðan við vorum 17 ára. Samskipti okkar hafa alltaf verið náin og deildum við öllum okkar helstu hugðar- efnum hvor með annarri. Við gátum talað saman tímunum saman og hlegið þangað til svit- inn rann af okkur og kinnarnar voru orðnar stirðar. Kaldhæðni og stór orð voru okkar fag á þessum stundum. Helstu ein- kenni Stellítu, eins og hún var kölluð okkar á milli, voru þau að hún hafði sterkar skoðanir á öllu og tjáði þær jafnóðum. Stellíta vissi hvað hún vildi og fann leiðir til að láta það verða. Það sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún ekki 100% heldur 170%, sama hvort það var foreldrahlut- verkið, vinna, skóli eða allt þetta í senn. Stella var líka hlý og glaðlynd. Móðurhlutverkið fór Stellu afar vel, hún naut þess að stússast í kringum Míru litlu og skapa henni gott líf. Stella var svo margt og svo mikið, veröldin verður ekki sú sama án hennar, ekki eins litrík. Ég votta Ástu, Míru, Gunnari og fjölskyldu samúð á þessum erfiðu tímum. Guðrún Sv. og Embla. Stella Ragna Einarsdóttir HINSTA KVEÐJA Við biðjum að þér ljóssins englar lýsi og leiði þig hin kærleiksríka hönd í nýjum heimi æ þér vörður vísi, sem vitar inn í himnesk sólarlönd. Þér sendum bænir upp í hærri heima og hjartans þakkir öll við færum þér. Við sálu þína biðjum guð að geyma, þín göfga minning okkur heilög er (Guðrún Elísabet Vormsdóttir) Við sendum aðstandend- um Stellu okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd fyrrverandi samstarfsfólks í viðhalds- deild Air Atlanta, Viðar Hjartarson. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, sambýlis- maður, bróðir, afi og langafi, MAGNÚS GUÐMUNDSSON fyrrum vegaverkstjóri frá Drangsnesi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánu- daginn 17. október, verður jarðsunginn frá Drangsneskapellu laugardaginn 29. október kl. 14.00. Valgerður G. Magnúsdóttir, Ásbjörn Magnússon, Guðmundur B. Magnússon, Guðrún Guðjónsdóttir, Sigríður B. Magnúsdóttir, Arinbjörn Bernharðsson, Ester Friðþjófsdóttir, Sigurgeir H. Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartanlegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ást- kærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÚNAR S. BJÖRNSDÓTTUR frá Hálsi, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða og Heilbrigðis- stofnunar Vestmannaeyja fyrir góða umönnun. Sveinbjörg Óskarsdóttir, Stefán B. Ólafsson, Elín Óskarsdóttir Hafberg, Eysteinn Hafberg, Sigursteinn Óskarsson, Sigrún Ágústsdóttir, Birgir Óskarsson, Pálína Svanhvít Guðbrandsdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskuleg systir okkar, KATRÍN ATLADÓTTIR, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 13. október. Útförin hefur farið fram. Þökkum sýnda samúð og hlýhug. Fyrir hönd aðstandenda, Atli Elfar Atlason, Ómar Atlason. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓREY J. BJARNADÓTTIR, umboðsmaður Happdrættis Háskóla Íslands, lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 10. október. Útförin hefur farið fram. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir alúð og góða umönnun. Ríkarður Másson, Herdís Þórðardóttir, Björn Másson, Kolbrún Dexter, María Másdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, ÓLI TYNES JÓNSSON fréttamaður, Hamrahlíð 23, Reykjavík, lést aðfaranótt fimmtudagsins 27. október á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Vilborg Halldórsdóttir, Jón Gunnar Ólason, Jón Þór Ólason og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.