Morgunblaðið - 28.10.2011, Síða 27

Morgunblaðið - 28.10.2011, Síða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011 ✝ SigríðurÁgústsdóttir fæddist á Ljót- arstöðum í Austur- Landeyjum 21. ágúst 1933. Hún lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á Hellu hinn 17. október 2011. Foreldrar henn- ar voru Ágúst Kristjánsson, f. 18.12. 1897, d. 3.8. 1983, frá Auraseli í Fljótshlíð og Guð- björg Guðjónsdóttir frá Hamragörðum í Stóra- Dalshverfi, f. 6.10. 1898, d. 18.1. 1996. Þau voru lengst af bændur á Snotru í A- Landeyjum en síðar kennd við Hellu á Rangárvöllum. Systk- ini Sigríðar eru: Eyvindur, f. 1937, giftur Guðrúnu Aradótt- ur, Kristján, f. 1938, giftur Gerði Stefaníu Elimarsdóttur, og Bóel, f. 1939, gift Karli Við- ari Marmundssyni. Sigríður giftist árið 1953 Sigurði Haraldssyni frá Tjörn- um undir Vestur-Eyjafjöllum, f. 20.4. 1919, d. 28.1. 1998. Þau bjuggu fyrstu árin á Hellu en fluttu síðar að Hólum í Hjalta- dal og loks að Kirkjubæ á 13.7. 1992. 3) Guðbjörg Ágústa, f. 2.11. 1958, gift Ell- ert Eiríkssyni, f. 1.5. 1938, dóttir þeirra er Guðbjörg Ósk, f. 17.4. 1997; áður í sambúð með Kristófer Pálssyni, börn þeirra eru a) Sigurður Ingi, f. 25.7. 1976, giftur Hönnu Maríu Kristjánsdóttur, börn Ólöf Björg, Eiríka Ýr og Ljósbrá Líf; b) Una Björk, f. 23.2. 1982, í sambúð með Birgi A. Sanders, sonur hennar er Elv- ar Örn, c) Páll Kristinn, f. 27.9. 1983, kvæntur Dóru Egg- ertsdóttur. 4) Ágúst, f. 31.10. 1964, kvæntur Unni Ósk- arsdóttur, f. 20.6. 1967, börn þeirra eru a) Elvar, f. 13.8. 1982, sonur Gyðu Lúðvíks- dóttur, í sambúð með Sigríði Arngrímsdóttur, þeirra sonur er Arngrímur Ágúst, b) Hjörv- ar, f. 10.8. 1991, c) Assa, f. 11.8 1996, og d) Dagur, f. 12.6.1999. Silla átti heima í foreldra- húsum á Snotru í Austur- Landeyjum til tvítugs en stofn- aði þá til heimilis og bjó lengst af á Kirkjubæ á Rangárvöllum og síðar í Reykjavík. Hún starfaði sem húsmóðir og sá fyrir sér og sínum með hand- verki um árabil. Sillu var glað- værð og hófsemi í blóð borin og þeir er til þekktu töldu skemmtilegri manneskju vand- fundna. Útför Sigríðar fer fram frá Oddakirkju í dag, 28. október 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Rangárvöllum, en slitu samvistir árið 1977. Þau eign- uðust saman fjög- ur börn en fyrir átti Sigurður þá Kristján, Harald, Valgarð, Hermóð og Þórhall. Börn Sigríðar og Sig- urðar eru: 1) Guð- jón, f. 7.2. 1954, í sambúð með Ingu Jónu Kristinsdóttur, f. 8.10. 1966, áður giftur Guðbjörgu Óskarsdóttur og eru þeirra börn a) Halldór, f. 31.3. 1975, í sambúð með Helle Laks, börn Sunneva, Harri og Leó; b) Davíð, f. 5.4. 1976, kvæntur Söru Hlín Hálfdanardóttur, börn Alvar Davíð, Hávar Daní- el og Hugrún Eva; c) Andri Geir, f. 19.8. 1985, og d) Guð- björg Sandra, f. 14.2. 1991. 2) Sigríður Járngerður, f. 24.9. 1955, var gift Ingvari Elías- syni og börn þeirra eru a) Hildur Sjöfn, f. 23.2. 1976, gift Valgeiri Guðlaugssyni, börn Fannar Daði og Embla Kristín; b) Davíð Örn, f. 2.3. 1983 í sambúð með Önnumaríu Þor- steinsdóttur og er þeirra son- ur Daníel; c) Sigríður Sara, f. Kveðja frá börnum Ég flyt þér móðir þakkir þús- undfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt. Er Íslands mestu mæður verða taldar, þá mun það hljóma fagurt nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna. Blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson) Guðjón, Sigríður (Sirrý), Guðbjörg og Ágúst. Lífið streymir fram endalaust eins og óstöðvandi elfur. „Kyn- slóðir koma og kynslóðir fara.“ Mannlegur máttur er ekki þess umkominn að stöðva þann straum, enda ekki æskilegt. Þessi staðreynd varð mér svo augljós þegar tengdamóðir mín Sigríður Ágústsdóttir kvaddi þennan heim, þreytt. Aðeins 38 klst. áður hafði gengið í heilagt hjónaband í Breiðabólstaðar- kirkju í Fljótshlíð barnabarn hennar. Ungu hjónin ganga nú saman út í lífið full bjartsýni. Kynslóðir koma. Framtíðin er þeirra. Silla tengdamóðir mín er aftur á móti af þeirri kynslóð sem er að fara. Hún var sveita- stúlka, fæddist og ólst upp í sveit og búskaparár sín helgaði hún sig húsfreyjustarfinu. Fyrir tveimur áratugum lágu leiðir okkar saman, en þá giftist ég dóttur hennar. Silla var þá flutt úr sveitinni til höfuðborgarinn- ar, og var búsett að Iðufelli 12. Mun ég minnast þess tímabils í ævi hennar. Hún var einstak- lega ljúf og hlý kona sem var gestrisin og góð heim að sækja. Veraldleg gæði voru ekki mulin undir hana, en sparsemi og skil- vísi voru henni í blóð borin. Hún barðist við geðsjúkdóm sem á stundum lék hana grátt, en þeim mun bjartari voru góðu tímarnir, sagði brandara og lék á als oddi. Mörg gullkorn hrutu henni af vörum sem eru geymd. Hún var elsk að börnum sínum og barnabörnum. Hangikjöt var hennar veislumatur sem hún vildi hafa sem oftast á borðum, góð heim að sækja. Þá var Ni- vea-krem og rauður varalitur ómissandi í hennar daglega lífi, án þeirra gat hún ekki verið. Jó- hannes í Bónus kom óafvitað töluvert við sögu hjá henni. Silla hafði ekki bílpróf og fór því allra sinna ferða fótgangandi eða með strætó. Bónus rak um árabil verslun við húsdyrnar í Iðufell- inu, henni fannst það ákaflega hentugt og jók lífsgæði hennar, hún dásamaði Jóhannes oft og mörgum sinnum. En svo kom reiðarslagið, Bónus var lokað í Iðufellinu þegar hún var komin á efri ár og átti erfiðara með að fara í langar verslunarferðir. Hún vonaði í lengstu lög að þeir Bónusmenn endurskoðuðu ákvörðun sína. En svo varð ekki. Að leiðarlokum flutti hún aft- ur í sveitina sín þar sem hún lést og verður jarðsett. „Römm er sú taug er rekka dregur föður túna til“ á við nú sem oftar, hvort sem karl eða kona á í hlut. Ljúf- sárar minningar hrannast upp á kveðjustund og hinar góðu standa uppúr, en þær lakari hverfa í móðu sem betur fer. Blessuð sé minning Sigríðar Ágústsdóttur frá Snotru. Ellert Eiriksson. Sunnudagurinn 16. október var erfiður dagur, en þá áttaði ég mig á því að ég ætti ekki eftir að fá að hitta ömmu Sillu aftur. En ég er engu að síður mjög þakklátur fyrir að hafa náð að kveðja. Það er ótrúlegt að mað- ur sjái það svona seint hvað tím- inn er fljótur að líða og að fólk er ekki til eilífðar. Amma Silla var falleg og góð kona, mikið man ég hvað það var gaman að koma í stóru blokkina í heimsókn, þá fór amma á fullt að finna til eitthvað gott að borða svo litli drengurinn færi nú pottþétt ekki svangur í burtu. Öll þau skipti sem maður gisti hjá ömmu Sillu, alltaf gat maður gramsað og fundið eitt- hvað sem maður hafði ekki séð fyrr. Hún tók öllum uppátækj- um og fíflagangi með miklu jafn- aðargeði og ekki man ég eftir að hún hafi nokkurn tímann skammað mig. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa átt ömmu Sillu og mun gera mitt besta í að segja sögur af henni í framtíðinni svo að barnabarnabörnin viti að hún var æðisleg kona sem var þess virði að kynnast og vera í kring- um. Ég veit að þú munt fylgjast grannt með í framtíðinni og munt fylgja mér alla ævi, mér þykir vænt um þig amma mín og ég vona svo innilega að þér líði vel þar sem þú ert núna og þú mátt skila kveðju frá mér. Þín er sárt saknað amma mín. Þinn Páll. Elsku Silla amma. Nú er komið að kveðjustund. Margar góðar minningar koma upp í hugann þegar ég hugsa til baka, enda dvaldi ég oft hjá þér þegar ég var lítill strákur. Það var mikið ævintýri að fá að fara til þín í pössun í Reykjavík því þar fékk ég að gera marga spenn- andi hluti eins og að fara í strætó og bíó, sem þótti mikið sport á þeim tíma. Það var líka fátt skemmti- legra en að fá þig í heimsókn í Garðinn. Minningar um smit- andi hlátur þinn, heimagerðar flatkökur og ís með kokteil- ávöxtum fá mig til að brosa. Þú hefur örugglega ekki verið sú vinsælasta í stigaganginum þeg- ar þú bakaðir flatkökur á elda- vélarhellunni með allt opið út, en góðar voru þær. Ég veit að nú líður þér vel, í faðmi langömmu og langafa, og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að kveðja þig. Hvíl í friði elsku amma mín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Sigurður Ingi Kristófersson. Elsku fallega amma mín er fallin frá og margar minningar koma upp í hugann. Sterk er minningin um hversu gaman var að koma í heimsókn eða í pössun til ömmu Sillu á Njálsgötuna. Þar fékk ég að fara í skápinn hennar ömmu og máta fínu kjól- ana og skartið hennar. Það vakti mikla gleði hjá mér og ekki síð- ur hjá henni. Einnig lumaði hún oft á einhverju góðgæti eins og súkkulaði og tyggjói í veskinu sínu sem hún bauð okkur upp á. Henni ömmu fannst nú gam- an að bjóða til veislu og var þar oft hangikjöt og meðlæti enda var það uppáhaldsmaturinn hennar. Síðustu ár hefur þér hrakað en það var vel hugsað um þig á hjúkrunar- og dval- arheimilinu Lundi á Hellu og það var greinilegt hversu starfs- fólkinu þótti nú vænt um þig elsku amma mín. Ég mun ávallt hugsa til þín og er þakklát fyrir stundirnar sem ég átti með þér. Ég kveð þig nú í hinsta sinn með þessu ljóði: Bros þú færðir í marga. Hlýju í hjarta allra. Góðhjarta við allt og alla. Nú á góðum stað þú fórst og alltaf á báðum fótum stóðst. Minning þín mun alltaf vera í mínu hjarta, elsku amma góða ferð til þíns heima, guð og englar munu þig geyma. (Davíð, 1991) Hvíldu í friði amma mín. Þín Una Björk. Elsku langamma, ég vildi að þú hefðir lifað lengur því það var svo gaman að hitta þig í sveit- inni. Það var líka gaman að heimsækja þig í Reykjavík. Þú varst alltaf svo góð við mig. Þú varst ljúf og góð kona. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Þinn Elvar Örn. Kær mágkona mín, Sigríður Águstsdóttir, eða Silla, eins og hún var ævinlega kölluð af vin- um og vandamönnum, er látin. Andlát hennar kom ekki á óvart, en samt er eins og maður sé ald- ei viðbúinn. Jafnvel þótt vitað sé að bati er ekki framundan, þá ríkir alltaf sorg og söknuður hjá ættingjum og vinum við lífslok. Söknuður eftir því sem áður var og kemur aldrei aftur. En svona er lífið og ekkert annað að gera en að sætta sig við það og halda áfram veginn, þangað til að manni sjálfum kemur. Silla fékk hægt andlát, sofn- aði út af hægt og hljótt, sem mér finnst vera í stíl við hennar framgöngu alla, eins og ég þekkti hana. Ég var átta og hún fimmtán ára þegar hún og fjöl- skylda hennar fluttu í nágrenni við mig og mína. Við höfðum þó vitað hvor af annarri áður, vegna vináttu fjölskyldna okkar. Silla hafði góða söngrödd og gott tóneyra. Á æskuheimili hennar var til orgel og átti hún auðvelt með að spila á það eftir eyranu, eins og sagt er, ein systkina sinna, held ég mér sé óhætt að seigja. Ég man líka eft- ir Sillu og vinkonum hennar, þar sem þær sungu raddað við gít- arundirleik á einhverri sam- komu á Krossi í gamla daga. Silla giftist ung Sigurði Har- aldssyni, sem síðar kenndi sig við Kirkjubæ og bjó með honum þar og víðar. Eftir að leiðir þeirra skildi flutti hún til Reykjavíkur og bjó þar ein, á meðan hún hafði heilsu til eða þar til fyrir u.þ.b.tveimur árum, að hún flutti á Dvalar- og hjúkr- unarheimilið Lund á Hellu. Silla var aldrei rík af verald- legum auði, hennar auðlegð fólst í börnum hennar og afkomend- um öllum, sem hún elskaði og dáði. Lífið var henni ekki alltaf auðvelt en hún átti við vanheilsu að stríða á tímabilum ævinnar, en ég held samt að góðu stund- irnar hafi verið fleiri, og þá var hún björt og brosandi og góð heim að sækja. Þannig man ég hana. Silla var falleg sem ung stúlka og hún var falleg fullorðin kona og hélt þeirri fegurð til hinsta dags. Hún var líka góð kona, sem öllum vildi vel. Við Eyvindur vottum aðstandendum innilega samúð. Sillu þökkum við samfylgdina og biðjum henni blessunar Guðs. Guðrún Aradóttir. Elsku amma mín, þegar ég hugsa til baka og minnist þess hvað við áttum góða tíma saman þá er ótrúlegt hvað tíminn hefur í raun liðið hratt. Flestar minn- ingar mínar sem ég á frá því ég var 3-6 ára eru um þig enda var ég hjá þér alla virka daga eftir leikskólann. Við urðum strax perluvinir þar sem við höfðum sama húmorinn og mér leið allt- af vel heima hjá ömmu. Ég var í leikskóla hinum megin í Reykjavík en þér þótti ekki tiltökumál að sendast á eft- ir mér alla daga. Það breyttist sem betur fer aldrei, þú hafðir alltaf tíma fyrir okkur barna- börnin þín. Á jólunum var líka gaman að fylgjast með þér þar sem þú varst í raun alveg jafn mikið jólabarn og við hinir krakkarnir. Þú varst alltaf svo spennt og stundum varstu búin að kaupa allar gjafir í september og skreyta allt heima hjá þér mán- uði síðar. Þegar ég varð orðinn eldri þá hjólaði ég eða tók strætó oft til þín og stundum með vini með mér. Þú varst alltaf með eitt- hvert góðgæti á boðstólum, flat- kökurnar frá ömmu voru engu líkar enda grunar mig að góðum skammti af sykri hafi verið bætt við, a la amma. Seinna þegar ég var farinn að hjálpa þér með því að keyra þig á hina og þessa staði og í raun farinn að nálgast fullorðinsaldur þá varst þú alltaf að reyna plata inn á mig peningum fyrir, jafn- vel þótt ég þvertæki fyrir það! Þú varst alltaf með hugann við okkur barnabörnin þín. Það sem í raun einkenndi þig var hversu glöð þú varst alltaf, yfirleitt stutt í hlátur hjá þér. Seinustu árin hjá þér hafa verið erfið og því er það huggun að þú færð hvíld núna. Það breytir því ekki að ég mun alltaf sakna þín, amma mín. Kær kveðja, Davíð. Elsku amma mín. Það eru margar minningar sem koma í hugann þegar ég sest niður til að skrifa. Þegar ég var yngri og þú bjóst á Nálsgöt- unni þá tók ég oft strætó úr Ár- bænum og kíkti í heimsókn til þín. Ég var alltaf velkomin og vinir mínir líka og alltaf dróstu fram fullt af góðgæti handa okk- ur. Enginn fór heim svangur eft- ir að hafa heimsótt þig, amma mín. Þau eru líka ofarlega í huga mér þau ófáu skipti sem þú komst í strætó til okkar með pönnukökur sem þú varst nýbú- in að baka. Ég man líka eftir öllum jól- unum sem þú varst hjá okkur og fannst okkur systkinunum það ómissandi hluti af jólunum að hafa ömmu með okkur. Þú varst mikið jólabarn og hafðir mikið gaman af því að taka upp pakk- ana. Þú gafst líka mjög margar jólagjafir og hjálpaði ég þér oft að kaupa og pakka inn gjöfun- um. Þótt barnahópurinn væri orðinn stór þá tókstu ekki í mál annað en að kaupa jólagjafir handa þeim öllum. Meðan langamma lifði þá fór ég oft með þér austur að heimsækja lang- ömmu. Þetta er alveg ómetan- legt að hafa fengið að fara með þér í þessar ferðir. Ég á eftir að sakna þín mikið en það er hugg- un að vita að þér líður betur núna. Kær kveðja, Hildur. Sigríður Ágústsdóttir V i n n i n g a s k r á 26. útdráttur 27. október 2011 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 1 3 9 8 2 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 9 8 0 8 6 0 6 3 4 6 9 3 5 3 7 0 7 2 9 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 45 5665 13189 18025 43662 57532 3341 10324 16685 21205 51598 66846 V i n n i n g u r Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur) 3 0 1 4 2 2 5 2 3 2 5 8 3 2 4 9 1 4 0 5 4 4 5 2 9 5 5 6 3 0 7 1 7 3 3 6 0 5 3 3 8 1 5 0 5 4 2 5 3 5 4 3 2 5 0 2 4 0 6 6 2 5 4 9 9 9 6 4 2 6 8 7 4 1 0 1 6 5 1 7 1 6 9 5 3 2 6 3 0 0 3 2 5 9 8 4 1 9 2 4 5 5 6 5 6 6 5 2 4 8 7 5 1 4 0 7 5 7 9 1 7 1 3 0 2 6 5 2 8 3 3 7 1 6 4 1 9 5 9 5 8 5 7 9 6 5 9 7 5 7 6 3 8 7 7 7 3 8 1 7 9 5 9 2 7 0 5 3 3 5 7 0 3 4 3 0 4 9 6 0 1 7 7 6 6 6 3 7 7 6 4 8 0 1 0 7 3 6 1 8 5 1 1 2 7 2 9 8 3 7 1 8 1 4 5 5 7 9 6 0 5 1 5 6 8 2 0 6 7 7 1 4 8 1 1 4 0 8 2 1 0 7 5 2 7 7 4 3 3 8 2 5 4 4 5 7 6 0 6 1 1 9 3 6 8 2 7 0 7 8 6 6 1 1 1 9 1 0 2 1 2 9 7 2 8 3 3 0 3 8 6 0 7 4 8 8 6 6 6 1 5 3 0 6 9 2 6 2 7 8 9 4 9 1 2 3 7 8 2 1 5 1 0 2 8 9 5 1 3 9 1 1 5 4 9 6 9 8 6 2 4 4 4 7 2 0 0 2 7 8 9 5 3 1 2 8 5 3 2 1 6 6 2 2 9 1 5 3 4 0 4 6 8 4 9 8 1 1 6 2 8 1 9 7 2 8 2 9 7 9 9 3 7 V i n n i n g u r Kr. 9.000 Kr. 18.000 (tvöfaldur) 3 3 8 8 2 1 1 9 0 8 8 3 0 4 0 4 4 1 6 3 3 5 2 4 5 0 5 9 9 8 2 6 9 3 0 3 2 7 9 9 0 2 5 1 9 1 4 2 3 0 6 1 6 4 1 8 5 2 5 2 9 2 2 6 0 0 3 2 6 9 9 6 0 5 3 5 9 1 4 9 1 9 6 0 0 3 1 1 1 1 4 3 2 6 9 5 3 3 0 9 6 0 7 1 5 6 9 9 9 6 5 4 1 9 3 6 0 1 9 6 3 8 3 1 9 4 6 4 3 3 9 2 5 3 3 2 8 6 0 7 5 0 7 0 5 0 1 5 6 1 9 7 1 8 1 9 8 8 5 3 3 8 0 8 4 3 5 6 4 5 3 6 3 4 6 0 9 6 3 7 0 6 3 1 6 3 6 1 0 8 4 4 1 9 9 2 5 3 3 8 3 7 4 4 0 5 3 5 3 7 7 4 6 1 2 0 0 7 0 9 8 5 7 2 8 1 0 9 0 2 2 1 1 5 2 3 3 9 1 7 4 4 5 2 2 5 4 2 9 4 6 1 4 5 5 7 1 4 0 5 8 9 3 1 1 1 2 4 2 1 2 2 6 3 4 1 8 7 4 5 1 2 0 5 5 0 4 4 6 1 6 0 2 7 1 5 5 3 9 1 8 1 1 1 5 4 2 1 3 7 0 3 4 3 3 3 4 5 1 4 1 5 5 4 0 0 6 1 6 3 6 7 2 5 7 0 1 4 3 1 1 1 4 5 7 2 1 5 6 4 3 4 4 9 9 4 5 2 0 1 5 5 7 5 1 6 1 6 5 0 7 3 3 3 1 1 5 7 0 1 1 6 4 2 2 1 8 6 5 3 5 8 3 4 4 5 4 0 3 5 6 0 1 2 6 2 0 3 5 7 3 4 6 8 1 8 0 4 1 1 6 8 0 2 1 9 3 2 3 6 0 6 5 4 5 6 0 9 5 6 2 0 0 6 2 3 1 1 7 4 1 3 9 2 3 5 9 1 1 8 1 6 2 2 1 5 2 3 6 2 3 7 4 5 8 6 6 5 6 3 6 4 6 3 6 1 4 7 4 6 0 4 2 9 1 0 1 2 0 0 9 2 2 1 7 4 3 6 4 5 0 4 5 9 7 2 5 6 9 2 5 6 3 7 5 9 7 5 0 5 4 3 7 2 7 1 2 6 2 0 2 2 7 6 6 3 6 6 5 0 4 6 2 1 9 5 7 1 8 8 6 3 9 3 4 7 5 1 4 9 4 1 2 2 1 2 7 0 7 2 2 8 5 5 3 6 6 9 3 4 6 2 8 8 5 7 2 1 6 6 4 0 0 3 7 5 4 3 3 4 5 1 7 1 2 8 1 5 2 3 0 8 6 3 7 2 8 1 4 6 4 0 8 5 7 5 7 8 6 4 7 6 9 7 5 6 2 8 4 6 2 1 1 3 0 9 9 2 3 2 5 4 3 7 5 0 7 4 7 5 3 1 5 8 0 3 4 6 5 5 9 9 7 6 0 7 4 4 6 3 9 1 4 0 1 2 2 3 9 3 2 3 7 6 3 4 4 7 5 8 0 5 8 1 9 5 6 5 7 8 2 7 7 5 0 3 4 7 9 8 1 4 4 5 2 2 3 9 5 7 3 7 6 9 5 4 7 7 3 1 5 8 3 7 0 6 5 8 1 3 7 7 8 8 5 5 0 0 7 1 4 6 4 4 2 4 1 3 6 3 7 7 3 1 4 8 0 7 3 5 8 4 9 0 6 6 0 6 8 7 8 3 8 3 5 1 9 4 1 4 9 8 1 2 4 2 9 5 3 8 1 1 4 4 8 1 9 4 5 8 4 9 4 6 6 2 8 0 7 8 8 4 3 5 2 3 5 1 5 9 8 7 2 5 0 7 6 3 8 2 7 1 4 9 1 2 5 5 8 7 8 3 6 6 4 0 3 7 8 8 8 8 5 5 4 2 1 6 0 4 3 2 6 0 5 1 3 8 3 6 4 4 9 6 8 0 5 8 9 1 4 6 6 4 8 6 7 9 0 6 4 5 7 8 0 1 6 8 5 5 2 6 1 6 6 3 8 8 1 9 5 0 3 8 5 5 9 0 4 2 6 6 6 1 1 7 9 4 9 4 6 5 5 9 1 7 1 0 3 2 6 1 7 5 3 8 9 0 5 5 0 5 2 5 5 9 4 1 6 6 6 7 9 0 7 9 5 6 8 6 7 9 8 1 7 2 3 5 2 7 0 2 7 3 9 2 4 8 5 0 9 0 3 5 9 4 8 7 6 7 0 3 1 7 3 8 0 1 7 6 4 9 2 7 3 5 0 3 9 6 1 1 5 0 9 3 0 5 9 5 6 2 6 7 0 7 3 7 6 5 1 1 7 6 9 0 2 7 5 3 7 3 9 6 5 3 5 1 4 1 2 5 9 5 8 6 6 7 5 5 0 7 6 7 6 1 8 1 6 6 2 8 0 2 3 4 0 1 4 8 5 1 5 7 6 5 9 6 4 5 6 8 3 8 4 8 1 8 6 1 8 4 6 1 2 8 1 5 1 4 0 8 5 0 5 1 8 1 4 5 9 8 5 5 6 8 4 2 0 8 5 6 4 1 8 7 4 5 2 8 4 1 3 4 1 0 0 8 5 2 1 6 9 5 9 9 2 0 6 8 9 6 1 Næstu útdrættir fara fram 3. nóv, 10. nóv, 17. nóv, 24. nóv & 1. des 2011 Heimasíða á Interneti: www.das.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.