Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011
Gunnar S. Magnússon sýnir
gleymdar abstraksjónir frá
sjötta áratugnum í Stúdíó
Stafni, Ingólfsstræti 6, á laug-
ardag kl. 15.00-17.00. Gunnar
vann myndirnar í gvass í upp-
hafi áratugarins, en sýnir þær
nú í fyrsta sinn, enda hafa
verkin legið óhreyfð lengi og
ekki komið fyrir almennings-
sjónir áður. Þau eru vitnis-
burður um myndlist á þessum
tíma og ekki síst fyrir Gunnar sjálfan. Verkin
eru unnin í Noregi og á Ítalíu á árunum 1951-
1956.
Sýningin í Stúdíó Stafni er sölusýning og öll-
um opin.
Myndlist
Abstraksjónir frá
sjötta áratugnum
Slökkviliðsmaður,
gvass
Uppistands-einleikurinn Dag-
bók Önnu Knúts – Helförin
mín verður frumsýndur í Gafl-
araleikhúsinu í kvöld kl. 21.00.
Flytjandi og höfundur verksins
er Anna Svava Knútsdóttir, en
Gunnar B. Guðmundsson leik-
stýrir því. Dagbók Önnu Knúts
– Helförin mín fjallar um ung-
lingsár stelpu sem glímir við
það vandamál að vera í senn of-
urvenjuleg en um leið ólík öll-
um jafnöldrum sínum, og flestu öðru fólki ef því er
að skipta, og undirliggjandi er barátta unglingsins
fyrir sérstöðu í hörðum heimi. Verkið er unnið
upp úr dagbók Önnu en einnig að hluta úr dag-
bókum annarra stúlkna.
Leiklist
Dagbók Önnu
Knúts frumsýnd
Anna Svava
Knútsdóttir
Góðvinir Grunnavíkur-Jóns
halda málþing á laugardag
helgað Jóni Ólafssyni úr
Grunnavík. Málþingið hefst kl.
13.30 og því lýkur um kl. 16.30.
Flutt verða fjögur erindi.
Hrefna Róbertsdóttir sagn-
fræðingur ræðir um Jón Ólafs-
son og Skúla Magnússon, Að-
alsteinn Eyþórsson
málfræðingur veltir upp spurn-
ingunni hvort Jón Ólafsson hafi
verið framfarasinni, íhaldskall eða bara skrýtinn,
Guðrún Ása Grímsdóttir handritafræðingur fjallar
um bréfaskrif Jóns Ólafssonar úr Höfn og Pétur
Gunnarsson rithöfundur spyr hvað Jón hafi verið
að hugsa. Fundarstjóri er Sigurgeir Steingrímsson.
Fornfræði
Málþing Góðvina
Grunnavíkur-Jóns
Pétur
Gunnarsson
Sveinn Dúa Hjörleifsson hlaut í
gær viðurkenningu úr styrkt-
arsjóði Önnu K. Nordal og opnaði í
kjölfarið síðdegistónleikaröð Sal-
arins með tónleikum þar sem ís-
lensk sönglög eru á efnisskránni.
Anna Karólína Nordal var ís-
lensk kona, fædd í Vesturheimi
hinn 6. september árið 1902. Hún
bjó alla ævi í Kanada og kom aldrei
til Íslands. Hún lést árið 1998.
Styrktarsjóði í hennar nafni ber að
„styrkja efnilega tónlistarnema í
söng og fíólínspili“ eins og hún orð-
aði það sjálf í bréfi. Áður hafa með-
al annarra Ari Vilhjálmsson fiðlu-
leikari, Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir sópran, Jónas Guðmundsson
tenór og Eyjólfur Eyjólfsson tenór
hlotið styrk úr sjóðnum.
Sveinn Dúa Hjörleifsson hóf
söngferil sinn í Karlakór Reykja-
víkur. Hann stundaði tónlistarnám
við Söngskóla Sigurðar Demetz í
Reykjavík og við óperudeild Tón-
listarháskólans í Vínarborg. Sveinn
hefur sungið ýmis óperuhlutverk í
námi og starfi. Fyrir stuttu kom út
geisladiskurinn Værð þar sem
hann syngur íslensk sönglög við
undirleik Hjartar Ingva Jóhanns-
sonar.
Viðurkenning Tenórsöngvarinn
Sveinn Dúa Hjörleifsson.
Sveinn Dúa
hlýtur við-
urkenningu
Viðurkenning úr
sjóði Önnu K. Nordal
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég myndi lýsa þessu verki sem
sálfræðitrylli. Leikritið er mjög
spennandi og uppfullt af svörtum
húmor,“ segir Lilja Nótt Þórarins-
dóttir leikkona um leikritið Eftir
lokin eftir breska leikskáldið Dennis
Kelly sem leikhópurinn Suð-
suðvestur frumsýnir í Tjarnarbíói
annað kvöld kl. 20.00.
Eftir lokin segir frá Markúsi sem
bjargar Lísu inn í sprengjubyrgi sitt
eftir kjarnorkuárás. Í verkinu, sem
gerist á um tveggja vikna tímabili,
fylgjumst við með samskiptum
þeirra þar sem þau eru innilokuð í
byrginu. „Samskipti þeirra einkenn-
ast af togstreitu og spennu, en þau
eiga sér nokkuð erfiða sögu sem
vinnufélagar,“ segir Lilja sem fer
með hlutverk Lísu en með hlutverk
Markúsar fer Sveinn Ólafur Gunn-
arsson.
Tilfinningalegur rússíbani
„Sviðið sem við leikum á er 2x2
metrar og áhorfendur sitja allt í
kring. Með því móti fæst mikil ná-
lægð, en þetta er líka mjög krefjandi
og spennandi eftir því,“ segir Lilja
og lofar tilfinningalegum rússíbana.
Suðsuðvestur er nýr leikhópur en
hann var stofnaður í sumar í
tengslum við uppsetninguna á Eftir
lokin. „Okkur langaði til þess að
vinna saman og finna flöt á því að
setja upp spennandi leikrit sem
höfðaði til okkar. Reyndin er sú að
oft getur reynst erfitt að koma hlut-
um í framkvæmd þar sem vanda-
samt er að fjármagna uppsetningar
sjálfstæðra leikhópa,“ segir Lilja og
bendir á að eldmóður hópsins sé það
mikill að þau hafi einsett sér að
setja verkið upp fyrir eins lítinn
pening og hægt væri til að vera viss
um að koma því á svið. „Við fengum
síðan smástyrk frá Reykjavíkurborg
og nokkrum fyrirtækjum sem léttir
róðurinn, ekki síst með tilliti til
framhaldsins,“ segir Lilja og bendir
á að hópurinn sé þegar farinn að
leggja drög að næstu verkefnum.
Eftir lokin var frumsýnt í London
árið 2005 og er fjórða leikrit Dennis
Kellys. Hann hefur getið sér gott
orð sem leikskáld á síðustu árum og
skrifað á annan tug leikrita. Þrjú
verka hans hafa ratað á svið hér-
lendis, þ.e. Munaðarlaus sem leik-
hópurinn Munaðarleysingjar setti
upp í ársbyrjun 2010, Elsku barn
sem Borgarleikhúsið setti upp í
byrjun þessa árs og DNA sem Stúd-
entaleikhúsið setti upp síðasta vet-
ur.
Spenna Lilja og Sveinn í hlutverkum sínum sem Markús og Lísa.
Sálfræðitryllir
í sprengjubyrgi
Frumraun leikhópsins Suðsuðvesturs
Kirsuberjagarðurinn eftir Anton
Tsjekhov verður frumsýndur á stóra
sviði Borgarleikhússins í kvöld.
Leikritið er það síðasta sem Tsjek-
hov samdi og einnig það leikrit hans
sem oftast er sett á svið víða um
heim. Hilmir Snær Guðnason leik-
stýrir verkinu og með helstu hut-
verk fara Sigrún Edda Björnsdóttir,
Ilmur Kristjánsdóttir, Birgitta Birg-
isdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson,
Rúnar Freyr Gíslason og Guðjón
Davíð Karlsson. Halla Gunnarsóttir
hannar leikmynd og búninga.
Verkið hefst þar sem Ljúbov Ran-
évskaja kemur heim á býli sitt eftir
fimm ára dvöl erlendis. Búgarðurinn
má muna sinn fífil fegurri, rambar á
barmi gjaldþrots vegna mikilla
skulda og yfirvofandi er uppboð á
eigninni ásamt kirsuberjagarðinum
sem verkið heitir eftir, og fram-
undan að rífa óðalssetrið til að
byggja nýtískulegra hús og höggva
niður kirsuberjatrén til að rýma fyr-
ir nýjum búskaparháttum. Gildir
einu þótt aldingarðurinn sé víð-
þekktur um héraðið, hann er tákn-
mynd liðins tíma og verður að víkja.
Samkvæmt upplýsingum frá
Borgarleikhúsinu er þegar uppselt á
allar sýningar út nóvember, en alls
hafa ríflega 8.000 miðar selst.
arnim@mbl.is
Kirsuberjagarðurinn frum-
sýndur í Borgarleikhúsinu
Vinsælt Úr uppfærslu Borgarleikhússins á Kirsuberjagarðinum. Verkið
var samið sem gamanleikur, en er yfirleitt sett upp sem sorgarleikur.
Síðasta og vinsælasta leikrit Antons Tsjekhovs
Á laugardag kl. 15.00 verður
haldin söngskemmtun í Hömrum,
sal Tónlistarskóla Ísafjarðar, þar
sem eingöngu verða flutt lög eftir
eftir sænska tón- og ljóðskáldið
Carl Michael Bellman sem uppi
var á átjándu öld.
Flytjendur á tónleikunum eru
Davíð Ólafsson bassasöngvari,
Kjartan Óskarsson klarinettu- og
bassaklarinettuleikari, Brjánn
Ingason klarinettu- og fagottleik-
ari, Emil Friðfinnsson hornleikari
og Snorri Örn Snorrason gítar-
og kontragítarleikari.
Á tónleikunum verða flutt mörg
af þekktustu lögum Bellmans, en
líka lög sem sjaldnar heyrast.
Lögin verða sungin við íslenska
texta eftir ýmsa þýðendur og í út-
setningum Kjartans Óskarssonar.
Á milli laga mun Davíð Ólafsson
segja frá skáldinu og söngv-
aranum Bellman og litríku lífs-
hlaupi hans.
Þetta eru fyrstu áskriftar-
tónleikar Tónlistarfélags Ísafjarð-
ar á yfirstandandi starfsári og
haldnir með stuðningi Félags ís-
lenskra tónlistarmanna, FÍT.
Carls Bellmans
minnst á Ísafirði
Tónleikar Tónlistarfélags Ísafjarðar
Alþýðuskáld Flytjendur á tón-
leikum helguðum Carl Bellman.
…og því ljóst að
stjörnurnar eru
tiltækar þegar kallið berst
frá pilti. 40
»
Stefán Hallur Stefánsson leik-
stýrir Eftir lokin. Brynja Björns-
dóttir hannar leikmynd og bún-
inga og Stefán Benedikt
Vilhelmsson lýsinguna. Tónlist
er í höndum Gísla Galdurs Þor-
geirssonar. Leikritið þýddu
Stefán Hallur Stefánsson og
Lilja Nótt Þórarinsdóttir. Anna
Rakel Róbertsdóttir annast
grafíska hönnun og Kristján
Sveinlaugsson framkvæmda-
stjórn.
Listrænir
stjórnendur
EFTIR LOKIN Í TJARNARBÍÓI