Morgunblaðið - 28.10.2011, Síða 44

Morgunblaðið - 28.10.2011, Síða 44
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 301. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Léttist um 33 kg á einu ári 2. Segist hafa fengið líflátshótun 3. Margt skrítið við þetta … mál 4. Madoff-hjónin reyndu að svipta … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Gagnrýnendur hafa keppst um að hlaða liðna Airwaves-hátíð lofi og fóru erlendir þungavigtarmenn fögr- um orðum um hana. Dagsetningar fyrir hátíðina 2012 liggja nú fyrir en hún fer fram dagana 31. október til 4. nóvember á næsta ári. Dagsetningar kynntar fyrir Airwaves 2012  Hið árlega hrekkjavökuball verður haldið á Square í þetta sinnið og leiða nú teknógæðingar og rapphundar sam- an hesta sína. Fram koma limi- ted copy, Emmsjé Gauti vs. Frigore, BLAZ ROCA vs. Dusk og Bent vs. Exos & A.T.L. Óli Of- ur, Oculus President Bongo þeyta skífum. Hið árlega hrekkja- vökuball á Square  Götuspilarinn Jójó er búinn að vera á flandri um Austurríki undanfarna tvo mánuði þar sem hann hefur tekið lagið í hinum og þessum alpa- þorpum. Í nóvember leggst hann í upptökur á jólalagi með þeim Pálma Sigurhjartarsyni, Guðmundi Jóns- syni og Sigga Sig. Lagið er til- einkað íslensk- um eldri borg- urum. Jójó gerir það gott í Austurríki Á laugardag NA 8-13 m/s. Þurrt sunnan- og suðvestanlands, ann- ars rigning eða slydda og snjókoma inn til landsins. Hiti 0 til 5 stig. Á sunnudag NA 10-18 m/s og él eða slydduél. Hiti 0 til 4 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG NA 5-10 m/s á norðvestanverðu landinu og dálitlar skúrir eða slydduél, en hægari vindur og þurrt að mestu í öðrum landshlutum. Hiti yfirleitt 2 til 8 stig. VEÐUR Þrjú efstu lið úrvalsdeildar karla í handknattleik, Fram, Haukar og FH, héldu sínu striki þegar 6. umferð N1- deildarinnar fór fram í gær og unnu öll leiki sína. Þessi þrjú lið ásamt HK virðast vera að skilja sig frá hinum fjórum liðum deildarinnar. Haukar lögðu Val, 34:28, Fram vann Gróttu og FH lagði Aftureldingu en bæði FH og Fram þurftu að hafa fyrir sigrum sínum. »2-3 Deildin að skiptast í tvennt Jörundur Áki Sveinsson, sem í gær var ráðinn þjálfari knattspyrnuliðs BÍ/Bolungarvíkur í stað Guðjóns Þórðarsonar, segist vera mikill lands- byggðarmaður í sér þó að hann sé fæddur og uppalinn á mölinni. „Það verður hvergi betra að vera en í ná- lægð við fjöllin og hreina loftið fyrir vestan,“ segir Jörundur Áki. »1 Vildi komast í hreina loftið fyrir vestan Frábær byrjun Stjörnunnar dugði skammt gegn Íslandsmeisturum KR þegar liðin mættust í úrvalsdeildinni í körfubolta í gærkvöld. Blaðran sprakk snemma hjá Garðbæingum og KR vann öruggan sigur. Nýliðar Þórs úr Þorlákshöfn gerðu góða ferð til Njarðvíkur og lögðu þar heimaliðið að velli, og ÍR-ingar unnu góðan sigur á Snæfelli. »4 Blaðran sprakk snemma hjá Stjörnunni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Árgangur 1971 á Akranesi hefur alla tíð verið samheldinn og á nýliðnum árum hefur hann í auknum mæli sameinað krafta sína með það að markmiði að láta gott af sér leiða í uppeldisbænum. Skipulögð starf- semi eins og til dæmis fótboltaæf- ingar, keppni, ferðalög, skemmtanir, styrktarsamkomur og safnanir fyrir góð málefni hófust eftir að nem- endur höfðu hist í nokkrum form- legum árgangaveislum. Skemmst er að minnast sólarhringssöfnunar í lið- inni viku, sem skilaði 665 þúsund krónum til ungra tvíbura sem misstu foreldra sína á nýliðnum mánuðum. „Þetta hefur hlaðið utan á sig,“ segir Pétur Magnússon og leggur áherslu á að um 100 manna grasrót- arsamtök án stjórnar sé að ræða. Hann segir að til að byrja með hafi nokkrir strákar í hópnum byrjað að spila fótbolta saman einu sinni í viku. Stofnaður hafi verið óformlegi félagsskapurinn Club71 og í hópnum sé að finna þverskurð samfélagsins, nemendur sem hafa haslað sér völl á ýmsum sviðum og vilja láta Skagann og Skagamenn njóta krafta sinna. Félagslegi þátturinn Auk þess að spila fótbolta hafa strákarnir lagt áherslu á margs kon- ar félagsmál. Í kjölfarið hafi æ fleiri bæst í hópinn og stúlkurnar stöðugt komið meira inn í starfið og þá sér- staklega þegar um styrk til góðra málefna er að ræða, að sögn Péturs. Hann bendir sérstaklega á sólar- hringssöfnun skólafélaganna í liðinni viku til styrktar tvíburunum Júlíusi og Jóel og fjölskyldu þeirra, en móð- ursystir þeirra, Þórdís Ingibjarts- dóttir, sem er í fyrrnefndum ár- gangi, hefur tekið þá að sér. Markmiðið var að safna 150 þúsund krónum en afraksturinn í átakinu varð 665 þúsund krónur. Þorrablót árlega Stærsta verkefni árgangsins til þessa var fyrr á árinu þegar ákveðið var að koma á þeirri menningarhefð á Akranesi að halda árlega þorrablót fyrir bæjarbúa og nota ágóðann til þess að styrkja góð málefni á Skag- anum. „Þetta heppnaðist mjög vel og Knattspyrnufélag ÍA naut góðs af þessu fyrsta blóti,“ segir Pétur. Undanfarin ár hefur félagsskap- urinn staðið fyrir brekkusöng á Írskum dögum, bæjarhátíð Akra- ness fyrstu helgina í júlí. Jafnframt hefur hann flutt inn írskan sekkja- pípuleikara til að spila fyrir bæj- arbúa. „Markmiðið hjá okkur er að bæta mannlíf og menningu á Skag- anum,“ segir Pétur. Bæta mannlíf og menningu  Árgangur 1971 á Akranesi styrkir heimamenn Brekkusöngur Yfir 2.000 manns komu og sungu saman í brekkusöng árgangsins í sumar sem leið. Sólarhringssöfnun Samfara styrktar- og minningartónleikum á Akranesi fór fram sérstök söfnun fyrir tvíburana og fjölskyldu þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.