Líf og list - 01.04.1950, Page 6

Líf og list - 01.04.1950, Page 6
W. H. AUDEN: ÚR „FERÐ TIL ÍSLANDS" Svo kynnum þá heiminum eyna, hans eltandi skugga, með oflœti i búningi og versnandi fisksölukjör. í afdal hvin jazzinn, og œskunnar fegurð fær alþjóðlegt filmbros d vör. Þvi hvergi d vor samlimi vé þau, er allir unna. Vor œska ekki neina staðhelgi, verndaðan reit. Og fyrirheitið um ævintýraeyna er eingöngu fyrirheit. Tár falla í allar elfur og ekillinn setur aftur upþ glófa og bil sinn á vegleysur knýr i œðandi blindhrið, og emjandi skáldið aftur að list sinni flýr. Magnús Ásgeirsson þýddi. W. H. Auden um ekki í miklum heiðri haft í Sovétríkjunum? — — Nei, þeir leggja áherzlu á að gera þjóðina að góðum og dugandi bændum og ötulum insjeníörum. — — En er ekki þjóðin töluvert litterer? Einhvern tímann var það haft eftir rússneskri konu í „Pict- ure Post“, er giftist til Bretlands skömmu eftir styrjöidina, að rúss- neska þjóðin almennt væri meira andlega sinnuð og vakandi en sú hin enska, læsi meira af góðri klass- ik? — Já, það kann vel að vera. Rit- höfundar eins og Gorki, Tolstoy, Púskin og Gogol eru þar mikið lesnir. Dostojcvsky er hins vegar andstæður „ídeologí" þjóðarinnar og því ekki eins lesinn. Nú varð nokkur þögn í stofunni. Verður okkur litið um herbergið og sjáum þar ýmsar kynlegar fígúr- ur hanga á vegg, sem minna á frumstæðar grímur. — Eru þetta afríkanskir „mask- ar“? — Já, þetta er Afríka, segir Kilj- an. — Þetta er Afríka, bætti hann aftur við og strauk hökuna. Það kom hingað maður og bað mig um að taka þær í geymslu, en hann hefir ekki sótt þær enn. — Kristján Daviðsson? — — Já, og ég á ánnað höfuð niðri, sem Þjóðverjar kalla Ahnenkopf, eða langfeðgahöfuð, sem ættað er frá svertingjaþjóð í Afríku. — Enn varð nokkur þögn, en svo fitjum við upp á öðru fersku um- ræðuefni. — Hvernig lizt yður á verk yngstu höfundanna, sem nú eru að koma út? — Hafið þér lesið Hanann hans Agnars? — — Já, hann hefir auðsýnilega vandað sig við þá bók. — — En Thor Vilhjálmsson — haf- ið þér séð eitthvað eftir hann? — Já, hann er sérkennilegur, hann er miklu sérkennilegri en all- ir hinir. Það má vel vera, að hann verði mikill rithöfundur. Það er ómögulegt að segja. Það er alveg ómögulegt að segja.------Og svo gekk hann út að glugganum og sagði: „Áin hefir brotið sig í nótt.“ — Thor er sagður yrkja ljóð í stíl Eliots. — — Já, T. S. Eliot, — hann er roy- alisti, hann vill kóng í Ameríku. Það er eiginlega óvenjulegt. í Ame- ríku. Þegar enska skáldið Auden var hér á ferð um árið, sendi hann Eliot hákarl. Sjálfur gekk hann alltaf með hákarlsbita upp á vas- ann, jafnvel inni á Hótel Borg, og lyktaði herfilega. Honum fannst íslenzki hákarlinn svona góður! — Stuttu síðar kvöddum við Kilj- an og þökkuðum honum elskulegar viðtökur, en áður en við fórum, sýndi hann okkur borðstofuna og setustofuna eftir beiðni okkar. Þar bar allt órækt vitni um „estetísk- an“ „sans“ og kúltíveraðan heims- borgarabrag. Á leiðinni til baka skildist okkur enn betur, að þessi maður liefði góð efni á því, að ávíta íslendinga fyrir molbúalegt smekkleysi í heimilisprýði og öðr- um hliðstæðum menningarlegum og fagurfræðilegum efnum, item fyrir lágkúruhátt í ýmsu lífsvið- ílorfi- Stgr. Sig. 6 LÍF og LIST

x

Líf og list

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.