Líf og list - 01.01.1951, Page 6

Líf og list - 01.01.1951, Page 6
Sigurður NordaL EFTIRMÁLI við aðra próförh Sigurður Nordal — Teikning eftir Nínu Tryggvadóttur Útvarj), Reykjavík! (Omurleg samhringing með sauðarbjöllum.) Hér er tilky nning: „Hin jomhelga Ijóðlist er nú loksins dauð.“ Stein-rotuð. Requiescat. Seint deyja sumir og deyja þó. Dauðinn er sem sé eina yfirbót þeirrar heimsku að hafa lifað. ★ Ári. vorum við annars allir saman heppnir, sem bundum elcki trúss við svo bráðfeiga konst. Gráti nú Ijóðskáldin, góðskáldin, þjóðskáldin! Við skulum hlæja: DiUir dó og Dummal Einu sinni átti eg hest, veiztu hvað hann var: haltur á hœgra auga, hringeygður á vinstra fœti, víxlaður á stalli, staður á spretti, — uxu engir vængir, — einhver prettur í kaupi. IIér færðu hána, herra fíragi. Ekkert að þakka. Allt í Jagi. ★ Sœl er sú harpa, sem lét ekki slá sig. Sœlli þeir svanir, sem liéldu sér saman á heiði. Sælust þau kvœði, sem enginn kunni að yrkja. Ef þú hefnr hlustað eftir ómi þeirra kvœða, elska muntu síðan alla daga og nætur söngvana þegjandi, þögnina syngjandi. ilminn af björkinni sem enn er fræ í moldu, skottið á skugganum og friðarbogafótinn. Þetta muntu elska — eins og aftanskinið og morgunbjarmann af miðsvetrar sól, sem aldrei kemur upp, — alveg eins og skottið og fráa, lit.la fótinn á henni, sem í árdaga, henni, sern í tæka tíð skauzt frá þér i skógi, henni, einmitt henni, — einni af þessum allt of f«u forsjálu meyjum, sem aldrei koma upp um sig. <8 LÍF og LIST

x

Líf og list

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.