Líf og list - 01.01.1951, Blaðsíða 11

Líf og list - 01.01.1951, Blaðsíða 11
<iælurnar — þyrnir í augum meðal þyrna. Og nú var jómfrú Emilía gengin á vit fulltrúa hinna göf- Ugu ættarnafna, þar sem þeir hvíldu í sedrusskjóli kirkju- garð'sins, áhliða gröfum þeim, raðbeinum og nafnlausum, sem geymdu stríðsmenn Norðan- og Sunnanverja, valinn eftir orrust- una á Jefferson. 1 lifanda lífi var jómfrú Emilía arfsiður, skylda og vörzlugripur, nokkurs konar arf- geng skuldbfnding bæjarins, allt frá því er ofurstinn Sartoris odd- viti — það var hann, sem ung- aði út tilskipuninni, að negra- konur mættu ekki koma fyrir svuntulausar á götu — undan- þá hana öllum sköttum, og skyldi undanþága þessi vera aft- Urvirk til dánardags föður henn- ar og framvirk ótímabundið. Ekki mvndi þó jómfrú Emilía hafa þggið ölmusu. Sartoris skáldaði harla flókna sögu um það, að faðir jómfrú Emilíu hefði lánað bæjarsjóðnum pen- inga, sem bærinn kysi af hag- kvæmisástæðum að greiða á þessa lund./Enginn nema mað- ur af kynslóð Sartoré hefði get- að skáldað slíka sögu og það skyldi konu til að trúa henni.3 Með nýrri kvnslóð og núlegri hugmyndum, kom annar odd- viti, aðrir menn í hreppsnefnd, °g þessi tilhögun var ekki jafn vel þokkuð. I ársbyrjun sendu þeir henni útsvarsseðil. Kom febrú armánuður og ekkert svar. Þeir senrfu henni miða og báðu hana að líta inn á fógetaskrif- stofuna við hentugleika. Viku siðar skrifaði oddvitinn henni sjálfur og bauðst til að ganga um hjá henni eða senda bílinn sinn eftir henni, Jivar kom á Paþpírsblaði mjög fornlegu i sniðum, og’ skriftin mjódregið pírumpár úr daufu bleki, kvað'st hún fráleitt leggja í heimsóknir núirðið. Hjálagður var útsvars- seðillinn, athuga semdalau s. Var nú boðað til fundar í hreppsnefndinni og sendinefnd gerð út. Þeir börðu að dyrum þeim, sem enginn gestur hafði stigið inn um síðan hún hætti leirtausskreytingu átta eða tíu árum áð'ur. Gamli maðurinn, svertinginn, hleypti þeim inn í myrkvaða forstofu, þaðan lá uppganga inn í mun svartari skugga. Það var lykt úr ryki og auðn, áleitinn, rakur þefur í for- stofunni. Negrinn bauð þeim í stofu. Þar stóðu viðamikil, leð- urbúin húsgögn. Þegar negrinn dró frá birtunni, niátti sjá sprungur víða í leðrinu og um leið og þeir settust, stóð ryk- slæðingur um lærin á þeim og hólkað'i sig smáhægt. í þessum eina geisla, sem náði inn. 1 snjáðum standramma fram- an undir arninum stóð blýants- mvnd af föður jómfrú Emilíu. Þeir stóðu úr sætum, þegar hún kom fram — smávaxin, feit kona, með mjóa gullfesti, sem féll lienni í beltisstað og livarf undir beltið; hún gekk við íben- holtsprik með slitnum gullhnúð. Hún var beinasmá og beinarýr, því var það ef til vill, að þetta holdafar, sem myndi vera þrýstni með flestum, var spik á henni. Hún sýndist uppþembd eins og líkaini, sem hefir vatn- slegizt í djúpri lygnu og bleikur eins og sá. Augun voru gengin inn í fitukilpað andlitið, minntu á kolamola, sem einhver hefðl potað inn í deigbita, og hvörfl- uðu andlit af andliti, meðan gestirnir báru upp erindi sitt. Hún bauð þeim ekki að setjast, en stóð í dyrunum og lilýddi þögul á, unz talsmanninn rak í vörðurnar. Þá fóru þeir að heyra tikkið' í úrinu á hvarfi neðan í festinni. Rómur hennar var þurr og kaldur: „Ég ber ekki út- svar í Jefferson. Sartoris ofursti skýrði þetta fyrir mér. Kannske gæti einhver ykkar fengið að líta í gjörðabækurnar og u pplýst ykkur þar með“. „En það er nú einmitt það,. sem við gerðum. Við erum hreppsnefndin, jómfrú Emilía. Fenguð þér ekki miða með und- irskrift fógetans?“ „Ég fékk bréf, að' vísu“, sagði jómfrú Emilía. „Kannske telur hann sig vera fógetann. . . . Ég ber ekkert útsvar í Jefferson“. „En það stendur ekkert í bók- unum. Okkur er nauðugur einn kostur. . . .“ „Talið við Sartoris ofursta. Ég ber ekki útsvar í Jefferson“. ,.En, jómfrú Einilía. .. .“ „Talið við Sartoris ofursta“. (Sartoris var dáinn fyrir hart- nær 10 árum). „Ég ber ekki út- Svar í Jefferson. Tobías“. Svert- inginn kom. „Évlgdu mönnun- umNtil dyra“. II Þannig hlóð hún þeim, köpp- imum, alveg eins og hún hafði sigrað feður þeirra þrjátíu ár- um áður með ólyktina. Það var tveimur árum eftir dauð'a föður hennar og litlu eftir, að kærast- inn — sá, sem við héldum, að ætlaði að eiga hana — (gekk frá henni. Eftir dauða föður síns kom hún sjaldan út og eftir að kærastinn fór, sást henni varla bregða fyrir. Einhverjar konur voru svo bíræfnar að fara í heimsókn, en þær koniu að lukt- um dyrum, og þarna var ekkert kvikt að sjá nema negrann — ungan mann í þann tíð — sem Framh. á hls. 17. LÍF og LIST 11

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.