Birtingur - 01.01.1956, Blaðsíða 20

Birtingur - 01.01.1956, Blaðsíða 20
aðar erfðavenjurnar, og fátt um nýbreytni. Stríðið hafði áhrif í þá átt að fleiri nutu leik- sýninga en fyrr, en engin áhrif á formið né gæðin. Það olli engum formbyltingum. Mest er samið af leikritum fyrir borgarana þar sem efnið er sótt í hið borgaralega líf. Þó er langt frá því að þessi leikrit gefi sanna hug- mynd um líf borgaranna eins og það er í raun og veru. Þetta eru mest gervileikrit, þríhyrningsdrama á ferhyrndum fleti. Helzt gætir nýjunga hjá ýmsum leikstjórum sem leita að nýjum möguleikum í sviðsetningu á verkum Shakespeare. Ýmsir hinna yngri og tilraunagjörnu leikstjóra leitast við að gjör- bylta meðferðinni á Shakespeare. Auðvitað má ekki gleyma Christopher Fry sem hefur valdið byltingu með því að vekja ljóðið til nýs vegs og virðingar í leiklistinni. Ég spurði hvernig leikriti Samuel Beckett: Biðin eftir Godot, hefði verið tekið í London síðastliðið sumar, en það leikrit vakti mikla athygli í París. Hudd sagði: Það tókst vel og vakti miklar deilur, sumir ákaflega hrifnir af því, aðrir mjög á móti. Sjálfum fannst mér það hræði- Iega tilgerðarlegt. Mér er ekki um þessa böl- móðs heimspeki, það er allt of mikið um hana í leikhúsinu í dag. Þetta leikrit er um hve allt sé þýðingarlaust, það sé svo sem sama hvað við gerum. Nei, maðurinn ætti að reyna að brjótast á móti þeim stormi sem hann hefur sjálfur vakið í fang sér. Listin ætti að gefa okkur nýtt líf- Og Hudd tók upp bók sem hann hafði sýnilega verið að lesa og segir: Hvað um Laxness, hann lokar ekki augunum fyrir hryllilegum þáttum mannlífsins, en þó finnur maður alltaf hið heita líf mannanna vaxa í verkum hans. En hvað finnst yður þá um Brecht og leik- rit hans? Mér kemur hann helzt í hug sem mótvægi við þeim anda í leikbókmenntunum sem Hudd átaldi í sambandi við Beckett. Brecht kvaðst hann ekki hafa séð neitt eftir en hefði mikinn áhuga á verkum hans af því sem hann hefði lesið um þau, en hann gæti náttúrlega ekki talað um það sem hann hefði ekki séð. Hudd talar margt um Christopher Fry sem helzta leikritaskáld Breta í dag, list hans sé mannleg: ,,Life is better than death“, einkum talar hann um Phoenix not too frequent (sýnt hér í Þjóðleikhúsinu) en síðari leikrit hans séu myrkari og óljósari. Orð verður orðið orðsins vegna. Trúarleikrit hans eru mjög góð: A sleep of prisoners. Hvað segið þér um leikflokkinn Workshop sem var fulltrúi brezkrar leiklistar á alþjóða- leiklistarhátíðinni í París í fyrrasumar? Finnst yður sá hópur sannur fulltrúi enskrar leiklistar? Það er nú eitthvað annað, finnst herra Hudd: Stundum tekst þeim að vísu sæmilega, en oft eru þeir ótrúlega slæmir, (incredibly bad), hneigðir til vinstri nægja ekki einar til að skapa góða list. Þeir sem standa að leik- flokki þessum eru stundum bæði tilgerðar- legir og ósannir. Það er ekki langt síðan þeir ferðuðust með leikrit García Lorca um land- búnaðarhéruð hjá frumstæðu fólki í Englandi og héldu því fram að þetta efni hentaði þar vegna þess að bændur á Spáni myndu skilja verk Lorca. Þetta er undarleg röksemda- færsla. Hvers vegna sýndu þeir þá ekki held- ur gamla enska bændaleiki sem eru sumir svo fullir af andríki og fyndni ? Nei, margar sýn- ingar Workshop eru mjög mjög slæmar (very very bad), þeir leika gömul leikrit með yfir- borðskenndri stílfæringu og svo fara þeir aft- ur í tilraunaleikrit frá 1920 og flytja þetta eins og það væri nýjasta nýtt, segir Hudd. Viljið þér lofa mér að hafa eitthvað eftir yður um leikarana héma? Hvað finnst yður þá skorta helzt? Þá vantar tilfinningu fyrir þýðingu smá- 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.