Birtingur - 01.01.1956, Qupperneq 41

Birtingur - 01.01.1956, Qupperneq 41
Hugsjónamaðurinn og baráttumaðurinn BERNARD SHAW eftir Sean O Casy Bernard Shaw skipar mikið rúm í veröldinni sem sjáandi og leiðsögumaður heilbrigðrar skynsemi, og þetta rúm er stöðugt að aukast. Hann skipar einnig mikið rúm í heimi andans sem leikrita- höfundur, gagnrýandi og unnandi einstæðinga lífsins. Ef til vill mun virðulegt andlit hans einhvern tíma sjást á rúðumyndum jafnvirðulegrar dómkirkju, mynd af fjörlegum dýrlingi vélaaldar og þjóðfélags- legra byltinga. Ef til vill var hann að finna í rúðu- mynd einhverrar stórrar kirkju fyrir hundrað ár- um, ungan, rauðhærðan, stríðandi dýrling, er fallið hafði í orustu (því að Shaw er dýrlingur, frumleg- astur allra dýrlinga fyrr og síðar), endurholdgaður af óþolinmæði vegna svefnþunga kirkjunnar þar sam hann stóð í glugganum og gaf reiðilega gætur að þeim sem komu og fóru og heyrði þá lofa og vegsama, ekki guð, heldur sjálfa sig og sína eigin yfirborðsmennsku og sjálfbirgingshátt. Dýrlings- myndinni varð að lokum nóg boðið af þessum heimskulega leik, máðist í burtu og hlaut líf á ný sem lítill drengur hlaupandi fram og aftur um hið skuggalega Synge-stræti í Dyflinni. Hér var Shaw ekki nema hársbreidd frá fátækrahverfum Dyfl- innar. Hér hlýtur hann, ungi maðurinn, að hafa reikað um eyðileg strætin umhverfis dómkirkju heilags Patricks, rétt meðfram Coombe, allt til Tenters Fields, (þar sem Dyflinnarbúar forð- um bleiktu lín sín) þar sem nöturlegir hús- hjallar veittu mörgum aðþrengdum verkamanni Dyflinnar og konum þeirra viðsjárvert skjól, og þar sem óþrifnaður og óregla umluktu hann ásamt þeirri gátu, sem Dyflinnarbúar kölluðu „vilja guðs“. Shaw sá vonlausa ringulreið fylgja Mtæktinni, og hann mat skipulag. Hann sá fátæktina leiða sjúkdómana heim, og hann unni heilbrigði; hann sá dauðann að baki fátæktinni, og hann elskaði lífið. Svo var það, ef til vill í þessum hluta Dyfl- innar, að sú ákvörðun brauzt fram í hug hans að leika á þessa djöfullegu þrenningu dauðann, sjúk- dómana og skipulagsleysið með hlífðarlausri bar- áttu fyrir útrýmingu fátæktarinnar, nú og um alla framtíð. Shaw var fæddur baráttumaður, en hans mun fyrst og fremst verða minnzt fyrir óbugandi hug- rekki sitt, (sem ef til vill er sjaldgæfust allra dygða nú á dögum). Hið sanna hugrekki hans kem- ur í ljós, er hann varpar frá sér öruggri og góðri atvinnu, sem hann haíði um árabil stundað í Dyflinni, og æðir mikillátur til Lundúna, sem hann vissi að hann mundi ekki leggja að fótum sér á einu dægri, að ár myndu líða unz hann rækist á öruggan hornkrók, þar sem hann gæti komizt nokkurn veginn af, og þar sem hann varð að þola sult og veikindi og leggja allt í hættu að sál sinni undanskilinni fyrir þá guðlegu köllun að prédika fagnaðarboðskap skynseminnar fyrir því fávísa fólki, sem safnaði kynstrum af þýðingar- lausum fróðleik í skólum, og fyrir þeim sem voru að bakast í hinum virðulegu menntastofnunum Oxford og Cambridge. Shaw fékk litla sem enga áheyrn á írlandi, en England, þéttsetið örsnauðu fólki, þetta heimsku- lega, auðuga England (Englendingurinn er svo hygginn í heimsku sinni), auðugt að þrætum, dró hann að sér og hann gerði sér ljóst að langdrægar bylgjur Lundúna bæru rödd hans fjær og hraðar en stuttdrægar bylgjur Dyflinnar. Og svo ákvað hann, þessi krossfari, vopnaður veglegum eigin- leikum, að leggja undir sig, ekki Jerúsalem, heldur Lundúni; að kalla þá réttlátu en ekki syndarana til iðrunar; að senda gullnar örvar hugsana sinna í brjóst hræsninnar og síðu svikarans, — og hver gullin ör ydduð stingandi stáli — svo og að sýna fram á að hinar smávægilegu þarfir mannsins eru tengdar stjörnunum. Hann gerðist talsmaður heilbrigðrar skynsemi, rödd hins ævarandi lýðræð- ismanns; hinn vísindalegi og hnyttni hugsuður mannlegra þarfa. 35

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.