Birtingur - 01.01.1956, Síða 42

Birtingur - 01.01.1956, Síða 42
Auk þess að Shaw er leikritahöfundur í fremstu röð, vekjandi gagnrýnandi á tónlist og leiklist, heimspekingur, sem engin leið er að taka ekki tillit til, þá rís hann einnig hátt sem frumlegur guðfræðingur. Eins og flestir greindir menn hef ég áhuga á trúarbrögðum, öllum trúarbrögðum, þó að hinn svokallaði kristindómur hafi vitaskuld orðið mér hugleiknastur. Ég hef lesið margar góðar bækur um trúarbrögð, en enga sem jafnast að frumleik og fyndni á við hina djúpu skýrgrein- ingu Shaws á kristindóminum í formálanum að ,,Androcles and the Lion“. í formálanum spottar hann þá trú að heimurinn sé fullur af trúuðu íólki og bendir á, að þeir, sem mestan áhuga hafa á trúmálum, eru aðeins hinir áköfu áhangendur bókstafstrúarinnar og þeir sem ofsækja hana ákafast. — Þú finnur aldrei milljón manns á línu Wesleys á móti einum Paine. Milljón- irnar samanstanda af veraldlegum vitmönnum, einum Wesley og fámennum söfnuði hans og einum Tom Paine með enn færri áhangendum. — Fólkið hungrar og þyrstir, ekki eftir réttlæti, heldur eijtir ríkulegri fæðu, þægindum og félagslegu öryggi. — Ef Savonarola segði konunum í Flórens að þeim bæri að taka af sér skartgripi sína og glingur og gefa til guðs þakka, þá byðu þær honum kardínála- hatt og vegsömuðu hann sem dýrling; en ef hann raunverulega þröngvaði þeim til að gera það, þá mundu þær brenna hann sem friðarspilli. Shaw leiðir okkur blátt áfram og fimlega um sögusvið guðfræðinnar til einfaldari skilnings á guðspjöllunum. Það er unaðsleg, hressandi ferð með stórmenni til leiðsagnar um græna haga krist- innar siðfræði, gegnum kjarrvið postullegra mót- sagna, ávallt fram á við og oft upp í móti, en stöðugt með lifandi mynd fyrirheitna landsins fyrir augum. Hann lýsir Jesú sem hugdjörfum og elskulegum hæfileikamanni, sem er í beinni snertingu við mannlegt líf, en ekki goðsögn sem breytzt hefur í gimsteinumprýdda helgimynd. Shaw segir: „Þú getur efazt um hvort hann var nokkurn tíma til; þú getur afneitað kristindóminum (vegna einhvers annars átrúnaðar), og skurðgoðadýrkend- urnir skipta þér í flokk fríhyggjumanna og heið- ingja með hæglátri fyrirlitningu. En ef þú áræðir að gera þér í hugarlund, hvernig Kristur hefði litið út ef hann hefði rakað sig og látið klippa hár sitt ellegar hvaða skónúmer hann notaði og hvort hann bölvaði, þegar hann steig á nagla í trésmiðjunni eða gat ekki hneppt kyrtli sínum, þegar hann var að flýta sér og hvort hann hló að hnyttilegheitunum sem hann gabbaði prestana með þegar þeir reyndu að leiða hann í gildrur uppreistar og guðlasts, þá muntu valda Sádæma skelfingu og tryllingi meðal skurðgoðadýrkendanna. Þú hefur þá komið mynd- inni til að stíga út úr ramma sínum, — sagan er orðin raunveruleg með öllum þeim óreiknanlegu afleiðingum sem svo skelfilegt kraftaverk gæti haft í för með sér. í einni svipan stendurðu höggdofa, — þessi Kristur er ekki sú líflausa, meinlausa ímynd, sem þú vandist áður, heldur sameiningartákn byltingarlegra áhrifa sem öll gróin ríki og kirkjur berjast gegn; og þú skalt gæta vel að þér, því að þú hefur kveikt líf í myndinni og vera má að það verði skrílnum um megn að þola þá skelfingu." Ef til vill mundi skríllinn ekki bregða svo hart við núna. Og vaknandi samvizka manna fyrir rétti náunga síns til vinnu, hvíldar og menntunar, sem tekin er að gera vart við sig í vissum löndum, sumsstaðar áþreifanlega, bendir til þess að myndin ha'fi stigið útúr rammanum og hljóti varmar við- tökur þeirra manna, sem berjast af alefli fyrir betra lífi og sækja ótrauðir í átt til hamingju. Ekki hamingju sem fólgin er í skemmtunum einum saman, hamingju lótusætunnar, heldur hamingju þróttmikils gagnlegs lífs í formálanum kynnumst við á áhrifamikinn hátt Páli, Mattheusi, Markúsi, Lúkasi og Jóhannesi, sem vekja áhuga allra þeirra sem kynnast vilja lífinu eða trúarbrögðum, jafn- lengi og kristindómur er við lýði. Sem guðfræð- ingur er Shaw djúpskyggn í heilbrigðri skynsemi sinni og innsærri vizku, og ef menn taka til við- bótar leikrit hans „Blanco Posnet“ og formálann að Heilagri Jóhönnu, eykst enn hróður hans sem guðfræðings. Shaw er líka stjórnmálamaður í fremstu röð, innblásinn heilögum anda. Hann tilheyrir hvorki íhaldsflokknum né frjálslyndum, ekki heldur Verkamannaflokknum (þótt hann styddi verka- menn af heilum hug); flokkur hans er allt mann- kynið. Ekki þarf annað en að lesa „The Intelligent Woman’s Guide to Socialism and Capitalism" til að sannfærast um hversu andríkur og hygginn stjórnmálamaður hann er. Allt sem menn vita er útskýrt og gagnrýnt í þessari merku bók. Kirkjan og stofuþernur, konungar og verkafólk, íhaldssemi, John frændi Cobley og allt sem heiti hefur, jafnvel 36

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.