Birtingur - 01.01.1956, Síða 44

Birtingur - 01.01.1956, Síða 44
HJÓRLEIFUR SIGURÐSSON: Sýning Valtýs Péturssonar Nýjasta stefnumótið í Listamannaskálanum við myndir Valtýs Péturssonar staðfestir þá grunsemd, að styrkur þessa málara sé einkum fólginn í eðlis- bundinni listhneigð hans og ótvíræðri getu til að klæða hugsanir sínar og hugdettur jarðneskurn bún- ingi. Það er eins og Valtýr skynji úthverfan svip litar og dýpt hans ellegar sálræna þenslu gjör- samlega milliliðalaust en „efniviðurinn" í málverk- ið seitli fram úr fingurgómunum án hindrunar. Hvort sem grunntónn myndar er svalur eða heitur, brúnn, grænn, grár eða svartur, eru áhrifin slík: Mjög samstæð litaheild, sem orkar þægilega, róandi og yfirleitt sannfærandi — í listrænu tilliti — á áhorfandann. Samt er bygging flestra myndanna óregluleg. Horn og hringir, strik og fletir fléttast saman og tengjast saman á hinum ólíklegustu stöðum, losna úr sambandi, leika lausum hala, þar til endinn hverfur aftur inn í þéttasta hnút þessarar flóknu gestaþrautar. Sjaldan hittir maður málara sem vinnur jafn á- reynslulítið og Valtýr Pétursson. Á yfirborði mynda hans er fátt eða ekkert sem gefur til kynna að átök hafi orðið milli listamanns og efniviðar, hugsýnar og veruleika, heldur virðist listaverkið hafa fæðzt á broti úr sekúndu í lífi einstaklings. Persónuleg kynni af vinnulagi málarans beina þó athyglinni að öðru: í raun og sannleika aragrúa mynda í olíu, gouache, rípólíni, jafnvel klipptum úr pappír, mál- uðum í tilraunaskyni eða sem frumdrög annarra listaverka, svo ekki verður sagt með sanngirni, að hann kasti höndunum til verksins. Á hinn bóginn krefst slík vinnuaðferð þess af listamanninum, að hann velji gaumgæfilega úr myndbúnkunum, er hann stofnar til sýningar en nokkuð skortir á, að Valtýr fylgi þeirri reglu nú. 38

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.