Birtingur - 01.01.1956, Page 45
R . H . WILENSKI:
Agrip af evrópskri
listasögu
2. Egypzk list
Elzta menning, sem hægt er að nefna því nafni og hefnr
látið okkur eftir listaverk, er kennd við Egypta. Hún hófst
fimm þúsund árum eftir siðustu ísöld, það er að segja
um 3000 f. Kr., eða fyrir nálcga fimm þúsundum ára.
Saga egypzkrar listar nær yfir þrjú þúsund ára tímabil, eða
frá því er Gyðingar tóku að gera tígulsteina fyrir faraóa
Egyptalands fram á daga Kleópötru fögru, er daðraði við
Cesar og Antoníus.
Allan þennan tíma hélzt list Egypta mikið til óbreytt.
Hún hafði bæði trúarlegan tilgang: að vernda sálir fram-
liðinna í grafhýsum sinum, og veraldlegan: að ægja og
ógna lýðnum með tign og veldi faraósins. í því augnamiði
voru pýramíðarnir reistir, stærstu og traustustu grafhýsi í
veröldinni; af sömu sökum hélzt dráttlistarhefðin óbreytt,
en hún hefur einkum varðveitzt i grafskreytingum, sem
Egyptar álitu að bægja mundu illum öndum frá hinum
framliðnu; þess vegna fundu þeir höggmyndum sinum
varanlegt snið, sem einkenndist af taktföstum og einstreng-
ingslegum steHingum mannamyndanna, án handa- eða fóta-
hreyfinga; í þessu skyni mótuðu Egyptar ógn og tign i
svip konunga sinna; af sömu rótum er Sfinxinn runninn,
ljón með mannshöfuð, tákn um vald faraós.
Egyptar gátu einnig mótað náttúrulega eins og mynd-
höggvarar nútímans og gerðu það. En þeir töldu slikt til
óæðri alþýðulistar og ótækt, nema þegar myndirnar höfðu
hvorki trúarlegt né pólitfskt markmið. Á nítjándu öld
þegar evrópsk list var natúralfsk, var dulmögnuð list Egypta
álitin misheppnaðar tilraunir manna, sem uppi hefðu ver-
ið endur fyrir löngu og langað til að spreyta sig á natúr-
alisma Akademíunnar ensku og Parisarsalónsins. Nú vitum
við hins vegar, að form egypzkrar listar hafði dulfræðileg-
an tilgang. Þó gerðist það einu sinni í sögu Egypta, að
lic'iggmyndalistin varð hvort tveggja í senn rómantfsk og
einstaklingsbundin. Einn faraóanna var ekki mótaður sem
alvaldur konungur, heldur sem hver annar maður. Það
var Amenopliis hinn 4., eða Akhnaton eins og hann sjálfur
kallaði sig síðar. Hann hratt af stað byltingu til að knýja
fram aukið frjálslyndi í trúarbrögðum, en í kjölfar hennar
sigldi meira frjálsræði í listum.
Amenophis 4. (Akhnaton)
,.Oriel“ cftir Epstein
89