Birtingur - 01.06.1968, Page 18
THOR VILHJÁLMSSON: RABBAÐ VIÐ ALCOPLEY
ísland hefur eignazt ýmsa góða tengdasyni
meðal listamanna sem auðga líf þjóðanna
með anda sínum og list. Stundum kemur
Askhenazí og gerir hjarta okkar ríkara með
tónlist sinni. Málarinn og vísindamaðurinn
Alcopley batzt íslandi sterkum böndum þegar
hann kvæntist Nínu okkar Tryggvadóttur. Á
renisanstímanum tíðkaðist að andans menn
legðu í senn stund á margvíslegar greinar lista
og vísinda þegar fræðin voru einfaldari. Það
er eflaust fágætt á okkar dögum að einn maður
verði frægur íyrir skerf sinn til lista og vísinda
í senn. Svo er þó um Alcopley; auk frægð-
ar sinnar sem myndlistarmaður hefur hann
aflað sér mikils orðstírs fyrir rannsóknir í vís-
indum og uppgötvanir sem þykja hinar merk-
ustu; það er ekki á færi mínu að fjalla um þá
Iilið á persónuleika og starfi Alcopleys.
Þegar hann var hér á ferð í fyrrrasumar áttum
við oft tal saman. Einn daginn sátum við í
íbúð Nínu og hans í Grímsstaðaholtinu og
sólin skein á Skerjafjörð og Álftanesið þaðan
sem ættjörðin átti í eina tíð ekki að frelsast,
það var þegar erlent vald var á Bessastöðum,
útlendur hégómi. Og Keilir saxaði ský sem
snöggvast tók af honum toppinn. Ég sat hjá
þessum alúðlega manni og sá Ijóma dagsins
draga fram smáa fjörlega gulbrúna depla í
blágráum skýrum augum hans, og fjólublátt
bindið fór vel við þetta alvarlega andlit, skyrta
með grænum teinum, grár jakki. Stundum dró
fyrir sólina og án þess væri sá ég skugga líða
yfir þetta andlit og hugsaði: söknuðurinn.
í uppsláttarbók um abstraktmyndlist eftir
hinn kunna franska gagnrýnanda Michel
Seuphor: Dictionnaire de la Peinture
Abstraite segir meðal annars um Alcopley
að það sé listamannsnafn tekið upp af dr.
Alfred L. Copley sem sé fæddur f Dresden
1910. Fór til Bandaríkjanna 1937 og varð
bandarískur borgari. Taldar eru fjölmargar
sýningar hans víðsvegar um veröld. Verk Al-
copleys, segir Seuphor, sé þáttur í hinni miklu
hreyfingu kallígrafískri (byggt á ritteiknum)
sem spratt upp í Austurlöndum en meðal túlk-
enda hennar í hópi bandarískra listamanna
má nefnaTobey, Kline ogTomlin. Teikningar
Alcopley sem oft eru í mjög smáu formi hafa
blæ ritteikna sem er í senn áhrifasterkur og
fínlegur og býr yfir óvéfengjanlegum þokka.
Þessum orðum fylgir litmynd eftir Alcopley.
Við fórum að rifja minningar frá París þar
sem ég hitti Alcopley fyrst á heimili þeirra
Nínu á Montmartre, og við töluðum um lista-
mannalífið í París og hvernig áhrifaveldá,
Parísar sem heimsmiðju listarinnar hefði
dvínað, einveldi Parísar hefði verið hnekkt.
Alcopley sagðist hafa búið í París um sinn
vegna þess að honum þætti vænt um borgina.
Hún væri ekki lengur hin eina miðstöð lista
16
BIRTINGUR