Birtingur - 01.06.1968, Side 33

Birtingur - 01.06.1968, Side 33
aðstæður, og að sáttmálinn „gleymdi" að draga fram helztu kosti gömlu borganna. Þrátt fyrir galla sína og úrelt samgöngukerfi liafa fjöl- margar borgir og borgarhlutar fyrri alda mikla og merkilega kosti. í sömu hverfum sameinast íbúðir, smáfyrirtæki, stjórnarstofnanir, skólar og skemmtistaðir og mörg gömul hverfi eru samfellt skemmtigöngusvæði og listasafn. Því er, að þrátt fyrir léleg íbúðarskilyrði og þröng- ar götur eru gömlu hverfin í flestum Vestur- Evrópuborgum enn með eftirsóttustu íbúðar- hverfum. Þau eru þrátt fyrir allt þægileg, vegalengdir í þeim eru stuttar, þau eru marg- breytileg og umfram allt þau hafa aðlagað sig manneskjunni, íbúanum, smám saman um aldaraðir. Skrifstofuskipulög síðustu ára hafa ekki viljað sjá jiessa kosti og haldið fast við allar megin- reglurnar frá 1933. Borgarþjóðfélög nú eru þó mjög ólík því sem þau voru 1933 og í stórum dráttum skipulags- lega eru breytingarnar þessar: Vandamál síð- ustu áratuga voru fyrst og fremst óhollusta íbúðanna og lausn vandans útrýming slíkra íbúða og bygging nýrra. Þetta vandamál er liorfið eða er að hverfa hvarvetna í hinum hvíta heimi. í öðru lagi hefur framþróun iðn- aðarþjóðfélaganna orðið slík, að þau eru að komast af iðnaðarskeiðinu yfir á nýtt Jiróunar- stig sem nefnt hefur verið Post-Industrial Era. Búizt er við að hlutfallslega færri borgarbúar vinni beint við iðnað og minna en 2% íbúa- fjölda þessara landa við landbéinað í náinni framtíð. Mikill meirihluti íbúanna vinnur Jrá við þriðju aðalgrein efnahagslífsins, eða „þjón- ustu“ af öllu tagi og við þjónustuhluta iðnað- arins. Breytingin yfir í þetta nýja þróunar- skeið gerist nú fyrir augum okkar. Sú borgarþróun sem siglt hefur hraðbyri fram á við undanfarin ár hefur undirstrikað þessa þjóðfélagsbreytingu og bent á aðalgalla Aþenusáttmálans eða svæðaskiptinguna. Mið- bæir verða meira og meira aðalvinnusvæði borganna og skapa nær óleysanleg vandamál jafnvel þar senr þeir eru rúmbeztir. Með vax- andi bílaeign verða Jreir Jrvaga bílastæða og hraðbrauta senr skýjakljúfar standa upp úr á stangli. Þetta ómannúðlega umhverfi er auð- vitað alls ekki það sem Aþenuarkitektarnir hugsuðu sér, enda var bílastæðavandamálið, sem nú er eitt lielzta vairdamál borga, þá að mestu óþekkt. íbúðahverfin hins vegar sem byggð hafa verið eftir svæðaskiptingarregl- unni hafa orðið dauð, leiðinleg og óþægileg, þegar búið var að skilja Jrau vandlega frá ýmiss konar starfsemi, sem þeim er „óviðkomandi". Nákvæmur aðskilnaður „miðbæjar“ og íbúða- hverfa hefur þannig skapað fleiri vandamál en hann leysti, og er hvort tveggja aðalveik- leiki og mótsögn Aþenusáttmálans. Miðbæj- I5IRTINGUR 31

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.