Birtingur - 01.06.1968, Blaðsíða 37
að bæta við einu bílastæði. Slík ráðstöfun yrði
auðvitað ódýr, og geysileg stoð hinum nýja
miðbæ, og hinum væntanlegu íbúum til mik-
illar ánægju og þæginda.
Hinir erlendu sérfærðingar, höfundar aðal-
skipulags, hafa hins vegar ákveðið að nýi mið-
bærinn skuli vera „hreinn“, og veit ég ekki
til að sú ákvörðun hafi verið endurskoðuð.
Lítum næst á nýju „úthverfin" sem skipulögð
hafa verið eftir aðalskipulaginu og svæðaskipt-
ingarreglunni. Þau eru teiknuð af hæfum
mönnum og yfir þeim er meira handbragð en
sést hefur í Reykjavík eftir stríð. Breiðholt er
vafalaust þeirra bezt heppnað, og því vel ég
Jrað til athugunar. í Breiðholti I verða ca.
5000 íbúar í þrem tegundum húsa. Það verð-
ur hreint íbúðahverfi og hefur alla kosti slíks
hverfis. Séð er fyrir nægum leiksvæðum, og
yfirleitt allri plássþörf vel fullnægt. Skóli og
búðir eru miðsvæðis í hverfinu og langflestir
íbúanna komast þangað frá íbúðum sínum án
þess að fara yfir götu. Gallar þessa hverfis
verða þeir sömu og allra annarra slíkra hverfa.
Heimilisfeðurnir fylkja sér í bílaröð kvölds og
morgna til að komast til vinnu. Á daginn verð-
ur hverfið áþekkt risastórri barnauppeldis-
stöð, Jiá sést þar enginn fullorðinn karlmaður,
og kerlingarnar hafa engan til að halda sér til
fyrir. Börn komast í enga snertingu við at-
vinnulíf, Jjví að nokkrar búðarstúlkur og
kennarar er eina fólkið sem stundar atvinnu í
slíku hverfi. Námsfólk, barnlaust fólk og yf-
irleitt allir þeir sem verulegan tíma hafa til
eigin umráða hafa ekkert í slíkt hverfi að
sækja, nema svefnstað. Verzlanir í slíkum
hverfum hafa öruggan viðskiptamannahóp en
enga samkeppni í nágrenninu, með augljósum
afleiðingum og vegna smæðar hverfisins og at-
hafnaleysis verða strætisvagnasamgöngur við
}:>að strjálar.
Síðast en ekki sízt er hverfið umlukt víð-
áttumiklum „grænum" svæðum eða ræmum
að erlendum sið. Það hefði orðið helzti unað-
ur hverfisins, væru Jæssi svæði vaxin dönskum
beykiskógi sama litar og sýnt er á skipulags-
kortunum. Þó er augljóst að ræmur Jiessar og
svæði eru tilgangslitlar hér, og við nárnari
athugun sjáum við að í mjög mörgum tilfell-
um eru þær ónothæfar til nokkurs hlutar og
í lélegum tengslum við íbúðahverfi. Þær valda
aftur auknum kostnaði, óþægindum og tíma-
eyðslu án verulegra kosta.
Slík er reynslan af hreinum íbúðahverfum
í hundruðum borga um öll Vesturlönd. Reynt
hefur verið að bæta úr tómleika þessara hverfa
án þess að endurskoða svæðaskiptingarregluna
til fulls, með því að Jjétta hverfin án annarra
ráðstafana, og með því að koma jrar fyrir lítils
háttar atvinnurekstri. Fyrirtæki Jaurfa hins
vegar á aðdráttarafli umhverfis að halda, og
BIRTINGUR
35