Birtingur - 01.06.1968, Side 55

Birtingur - 01.06.1968, Side 55
hvítur og mjög bjartur þannig að sólin segist ekki sem hringlaga flötur af sjálfri sér, þessi bjarta lýsandi formleysa, fremur eins og sker- andi ljós sem stafar frá þessum stað, núlli sól- arinnar, neðan af skafheiðu hvolfi himinsins og skín niður á manninn. Loftið er svo hreint að grámi hraunsins og blái litur fjallanna hafa hvergi að geyma neina milliliti, enga skugga sem mynda dýpt eða tengsl milli hinna aðskildu hluta líkt og fjar- lægðin gangi upp í sjálfri sér og maðurinn stendur hreyfingarlaus eins og svört stytta frammi fyrir fjarska landsins í návist ekki neins. Hann er í svörtum fötum sem falla þétt að grönnum líkamanum eins og svart skinn strengt að beini. Andlitið er hvítt, það sést á hlið. Augað opið eins og lítil útafliggjandi keila í hvítum hliðarsvipnum og lætur ekki í ljós hvort hann sé að horfa á nokkurn skapað- an hlut; framundan er grá breiða hraunsins og þaðan uppaf eru fjöllin eins og blár skörð- óttur múr. Svo hreyfir maðurinn sig. í fyrstu hreyfir hann aðeins handleggina. Þeir eru langir og mjóir, í svipinn greinast þeir frá svartklædd- um líkamanum og mynda hvasst horn upp við brjóstið. Hann teygir handleggina fram en beinir þeim niður á við. Hvítir lófarnir snúa að jörðinni og á hlið sýnast þeir eins og stutt hvít rák meðan hann er að beygja sig niður. Hvítir lófarnir hverfa í gráma landsins, hand- leggirnir eru svartir stúfar þegar gráminn skyggir á hendurnar. Handleggirnir eru næst- um beinir í fyrstu unz hann beygir þá um oln- boga sem verður hornpunktur í 90° horni sem heldur áfram að hvessast og hverfur að lokum þegar hann liggur láréttur á jörðinni. Fremsti hluti andlitsins er horfinn í grámann, hið gráa skyggir á hluta andlitsins svo að það er ekki lengur andlit, það minnir á hvíta klessu við endann á langri svartri línu sem er maðurinn og hann liggur kyrr á grárri auðn hraunsins. Hann hreyfir sig ekki vitund. Síðan ris hann á fætur og stendur hreyfingar- laus að nýju undir sólinni. ÍHRTINGUR 53

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.