Húsfreyjan - 01.03.1955, Side 3
Husfreyjjan.
Reykjavík,
marz 1955
Útgefandi: Kvenfélagasamband íslands
6. árgangur,
1. tölublað
05Ö
Hjördís Kristjánsdóttir:
JURTALITUN
(Síðastliðinn vetur var nemendum
Handavinnukennaradeildar Kennara-
skólans gert að lesa sér til um ákveðin
efni og semja síðan um þau stutt erindi,
er þær flyttu í sambandi við kennslu í
vefjarefnafræðum. Er grein sú um jurta-
litun, sem hér birtist, erindi eins nem-
andans, Hjördísar Kristjánsdóttur).
Langt er nú orðið síðan menn fyrst
byrjuðu að lita úr jurtum, og allt fram
á 19. öld höfðu menn ekki ráð á öðrum
litarefnum en þeim náttúrlegu.
Litunaraðferðin var frumstæð, en margs
þurfti þó að gæta og árangurinn varð
oft undraverður. Enn í dag eru þessir
mildu, eðlilegu litir mjög eftirsóttir af
íslenzkum konum til alls kyns hannyrða,
og nokkrar þeirra verja flestum frístund-
um sínum í þágu þessa þjóðlega iðnaðar.
Þekktust þessara kvenna er Matthildur
Halldórsdóttir í Garði í Aðaldal, en hún
hefur nú um meir en 30 ára skeið helgað
sig jurtalitun eftir föngum og fundið þar
listhneigð* sinni útrás.
1 formála bæklingsins Um jurtalitun
segir hún sjálf: „Sá, sem elskar liti, getur
hvarvetna í náttúrunni fundið gleði og
hugsvölun. Snemma vaknaði hjá mér
löngun til þess að handsama hina fögru
liti, ná valdi yfir þeim og flytja þá inn
í hibýli manna. Ég þráði að verða málari,
en þeirri þrá átti ég ekki kost á að full-
nægja“. Svo farast þessari sveitakonu orð.
En þótt draumar hennar um að verða
málari næðu ekki að rætast, hefur henni
vissulega tekizt að ná valdi yfir hinum
fögru litum náttúrunnar og flytja þá inn
í híbýli fólksins. Nú er eftirspurnin eftir
jurtalitaða bandinu hennar meiri en hægt
er að fullnægja og henni berast pantanir
víða að af landinu.
Fordæmi hennar hefur auk þess vakið
f jölda annarra kvenna til skilnings á þeirri
ódæma litauðgi, sem íslenzk náttúra hefur
upp á bjóða innan húss sem utan, sé rétt
að farið.
Algengustu íslenzku litunarjurtir eru
birkibörkur, mosi og sortulyng. Sortu-
lyngslitaðir sauðskinnsskór með hvítum
eltiskinnsbryddingum hafa allt fram á
þessa öld verið auðkenni Islendingsins, en
þeir fara nú að heyra forngripum til. Á
síðari árum hefur verið litað úr ýmsum
fleiri jurtum, svo sem beitilyngi, puntfaxi,
hvönn og hvítsmára, svo fátt eitt sé nefnt.
Jurtunum er flestum safnað um sumar-
LANÖSBÓK ASÁí- N
201032
ÍSLANOS