Húsfreyjan - 01.03.1955, Page 17
Sigrí'Sur Arnlaugsdóttir:
r------------------>
Heimilisþáttur
v__________________J
Hraði nútímans krefst aukinnar tækni
og bættra vinnuaðferða við heimilisstörf-
in jafnt og önnur störf. Áður fyrr var
vefnaðarvara yfirleitt sterkari en nú ger-
ist. Menn keyptu sér sjaldnar fatnað, en
vel var til hans vandað í byrjun og nýtt-
ur var hann til hins ýtrasta. Nú er orðið
svo miklu auðveldara að afla sér nýrra
hluta en áður var, að timafrekar við-
gerðir borga sig ekki nærri alltaf. Þró-
unin hefur líka orðið sú, að saumavélin
er notuð meir og meir til viðgerða, ekki
aðeins til að stykkja, en einnig til að
stoppa bæði sokka, nærföt, dúka og ann-
að. 1 flestum nýrri gerðum saumavéla
er nú hægt að stoppa, og er því ekki úr
vegi að ræða örlítið þá aðferð.
Þegar saumað er á venjulegan hátt,
er það drifkamburinn undir taufætinum
sem drífur efnið áfram og ræður spora-
lengdinni, hvort saumað er afturábak eða
áfram o. s. frv. Til þess að hægt sé að
stoppa, þarf að vera hægt að taka drif-
kambinn úr sambandi, eða réttara sagt,
ýta honum niður eða hylja hann með þar
til gerðri plötu, svo hann hafi engin áhrif
á sporið. Síðan er flikin, eða það, sem
stoppað er, eingöngu hreyft með hönd-
unum. Sérstakur taufótur, stoppfótur, er
notaður og einnig sérstakur tvinni, fínni
og mýkri en venjulegur tvinni. Venju-
lega er stoppað með tvinna nr. 80 eða
100. Gott er líka að losa aðeins spenn-
una á yfirþræðinum og snúa þá réttunni
upp, þegar stoppað er.
Vélstopp má gera á ýmsan hátt. Þeg-
ar stoppað er í lítil göt, t. d. brunagöt
eftir sígarettur, er það gert á líkan hátt
og þegar stoppað er í höndum. Fyrri um-
ferðin er saumuð með löngum, gisnum
sporum og síðan þvert yfir með smáum,
þéttum sporum (mynd 1 og 2). Sé gatið
stórt, má leggja bót af gaslérefti undir
og má þá hafa fyrri umferðina gisna, en
seinni umferðina þétta (mynd 3). Við
rifu er gert á þann hátt, að stoppað er
yfir hana með þéttum krákustígum
(mynd 4).
Þegar verið er að styrkja slitna bletti,
er betra að sauma ekki of þétt og ekki
of reglulega. Ef slitið er mikið, er einnig
gott að leggja bót af gaslérefti undir á
Mynd 1,
Mynd 2,
Mynd 3.
hOsfreyjan 17