Húsfreyjan - 01.03.1955, Side 18
Mynd 4.
rönguna til styrktar, annars verður stopp-
ið of ’þétt, og er þá hætt við, að það slíti
út frá sér. Síðan eru saumaðir kráku-
stígar fram og aftur yfir það, sem slitið
er, og er um að gera að binda vel sam-
an það slitna og óslitna. Þetta krefst tals-
verðrar æfingar í byrjun. Hreyfingarnar
vilja verða rykkjóttar, og sérstaklega er
erfitt að halda efninu nógu sléttu, þannig
að ekki komi hrukkur og fellingar, þeg-
ar saumað er. Það er því betra fyrir við-
vaninga að nota útsaumsramma til að
strengja efnið x.
Þessi aðferð er auðvitað hentugust á
voð, sem ekki teygist, dúka, handklæði,
lök o. þ. h., en hana má einnig nota á
prjónavoð. Að vísu þýðir ekki að stoppa
nema lítil göt á prjónavoð, því það verð-
ur allt of stíft. En þegar bætt er, er sjálf-
sagt að „stoppa" bótina á, þ. e. a. s.
brjóta ekkert innaf henni en sauma hana
með krákustígum, eftirlíkingu af zig-zag-
spori. Það verður teygjanlegt og sterkt,
og er óhætt að klippa undan bótinni al-
veg að saumunum. Ekkert á að þurfa
að þræða, þegar æfingin er fengin, að-
eins næla bótina á, og þetta gengur eins
og í sögu, fljótt og vel. Þótt það kosti
þó nokkra fyrirhöfn í byrjun að læra að
stoppa í vél, er ég viss um, að tíman-
um, sem til þess fer, er vel varið.
Það er alveg ótrúlega margt, sem má
gera við á þennan hátt og það betur og
mörgum sinnum fljótar en með gamla
laginu.
=5SSS=a
FALLEG ÚTPRJÓNSMUNSTUR
Munstur þau, sem hér eru sýnd, eru ætluð til
útprjóns fyrst og fremst, en einnig má sauma
eftir þeim ef vill.
Þau eru úr norskri bók, Rutemönster, eftir
Else Poulsen, er út kom 1945. Hefur höfundur
teiknað öll munstrin í bókinni.
Bók þessi lætur lítið yfir sér, en í henni eru
65 munstur, látlaus og smekkleg, aðallega bekkir
og flatarmunstur og auk þess teikningar af fimm
gerðum af tvibanda belgvettlingum.
Framan við munsturblöðin éru leiðbeiningar
um prjón á vettlingum, sokkum og barnapeysu
og gefin nokkur dæmi um notkun munstranna
til útsaums. E. E. G.
18 HÚSrREYJAN