Húsfreyjan - 01.03.1955, Qupperneq 21
EGG
Framh. af bls. 16.
eggjaduft og er það ágætt í bakstur, en
varast ber þó, að sums staðar er á boð-
stólum gervivara, sem kölluð er eggja-
duft, þótt þar séu engin eggin í.
Sakir hollustu sinnar eru egg mjög
ákjósanleg í fæði barna, einkum éggja-
rauðan. Má gefa börnum eggjarauðu,
þegar þau eru orðin 4 mánaða. Gott er
að hræra hana hráa saman við skyr og
mjólkursúpur. Ágætt er líka að gefa börn-
um harðsoðna eggjarauðu; sem marin er
með gaffli og þynnt út með ávaxtasafa
eða mjólkurblandi.
Egg eru notuð í ýmiss konar sjúkra-
fæði.
Egg eru matreidd á óteljandi vegu eins
og áður er sagt. Þau eru borðuð soðin
og steikt, þau eru höfð í eggjaköku og
Buff og steikt egg.
Eggjakakan tilbúin á borðið.
sem álegg á brauð, til að jafna með súpur
og í alls konar kökur. Ennfremur eru þau
notuð til að bera ofan á ýmsar kökur og
brauð, til að velta kjötsneiðum, fiski o.
fl. upp úr, áður en steikt er, til að skira
soð og svo mætti lengi telja.
Hæfilegt er að sjóða hænuegg 3—4
mín., ef þau eiga að vera linsoðin, en
eftir 10—12 mín. eru þau harðsoðin.
Soðin egg á að færa sem snöggvast upp
í kalt vatn, svo að skurnið losni.
Egg á að steikja við fremur lítinn hita,
svo að hvítan hlaupi, en brúnist ekki.
Steikt egg er gott að bera fram með
steiktu fleski og buffi, börðu eða hökkuðu.
EGGJAMJÓLK
IV2 1. mjólk *
30 g. hveiti
20 g. rúsínur
2 egg
50 g. sykur
1 tsk. vanilludropar
Hrærið hveitið út með litlu af kaldri mjólk-
inni. Látið suðuna koma upp á afgangnum af
mjólkinni, jafnið með hveitijafningnum og látið
rúsínurnar út í. Sjóðið 5 mín. Aðskiljið eggin,
HÚSFREYJAN 21