Húsfreyjan - 01.01.1960, Qupperneq 3

Húsfreyjan - 01.01.1960, Qupperneq 3
ífusfreyjxui Reykjavík 1960 Jan.-marz Útgefandi: Kvenfélagasamband íslands 11. árgangur 1. tölublað Ný áætlun EINS og kunnugt er, hefst annar áratug- ur af starfsferli þessa blaðs með útkomu þessa tölublaðs. Þau tíu ár, er það hefur verið gefið út, hefur lítil breyting orðið á stærð þess og efni, að öðru leyti en því, að smátt og smátt hefur verið að því stefnt, að miða efni blaðsins sem mest við þarfir og óskir húsfreyjanna, þ. e. flytja fræðandi efni varðandi starfssvið þeirra, flytja nýjungar á sviði heimilismálanna eða þá það, er konum væri einkum hug- leikið, vera félagslegur tengiliður milli K. 1. og hinna mörgu kvenfélaga, sem að því standa og milli félaganna innbyrðis og dreifa svo inn á milli hollu skemmti- efni. Virðist þessi tilhögun hafa fallið kaupendum vel í geð og aukið útbreiðslu blaðsins að miklum mun nú á síðari ár- um. Skemmtilegt og æskilegt hefði verið að geta við þessi tímamót boðað allverulega stækkun og mjög aukna fjölbreytni í efnisvali. En dýrtíð undanfarinna ára hef- ur snert ,,Húsfreyjuna“ sem aðra og þrengt fjárhag hennar, þrátt fyrir kaup- endafjölgun. Þó hefur sú orðið niðurstað- an, að stækka blaðið nokkuð nú þegar, en sjá þó fótum sínum forráð, án þess að íþyngja kaupendum um of. Ákveðið hefur verið, að lesmál blaðsins skuli vera á þessu ári minnst tvær arkir hvert hefti fyrir utan auglýsingar, en hins vegar er til þess hugsað að reyna að auka auglýs- ingamar svo sem unnt er, til þess að afla meira fjár til útgáfunnar. HÚSFREYJAN Við þessa aukningu lesmáls verður svo einnig leitazt við að auka fjölbreytni efnisins. T. d. kemur nýr þáttur um garð- rækt og þáttur, er fjallar um hýbýli, ef unnt er. Fyrri fastir þættir halda sér og efnisval að öðru leyti svipað og áður. — Óskum og ábendingum frá kaupendum verður reynt að fullnægja svo sem kostur er og svara fyrirspurnum, sem sendar kunna að verða, ef unnt er. Vitanlega verður við aukningu þessa og viðleitni til meiri fjölbreytni í efnisvali að gera ráð fyrir auknum kostnaði. En með þeirri kaupendatölu, sem nú er, og ekki minni auglýsingatekjum en verið hafa á næst- liðnu ári, telst útgáfustjórn blaðsins og stjórn K. I. svo til að nægja muni að hækka verð blaðsins um 10 krónur á ári eða í 35 kr. fyrir fasta áskrifendur. Verð- ur nú látið skeika að sköpuðu með það, hvernig áætlun þessi stenzt í þeirri von, að kaupendum fari að minnsta kosti ekki fækkandi. Eru konur án efa farnar að gera sér Ijóst, að það eru þær og þeirra félagsskapur, sem fyrst og fremst á að njóta þess, sem ritið kann að færa lesend- um sínum gott til fróðleiks og skemmt- unar, en einnig þær, sem að miklu leyti leggja af mörkum það fé, sem þarf til að standast kostnað af útgáfu góðs og gagn- legs blaðs. I trausti þess, að konurnar sjálfar muni með ráðum og dáð hlynna að og efla útgáfu síns eigin blaðs, „Hús- freyjunnar", leggur hún nú leið sína inn á annan áratuginn. 3 LÁN OSBunASÁtN 232505 ÍSLANDS

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.