Húsfreyjan - 01.01.1960, Side 5

Húsfreyjan - 01.01.1960, Side 5
lög frá félagsins hálfu til húsmæðrafræðsl- unnar og reyna að koma henni í betra og ákveðnara horf. Það féll í hlut Ragn- •hildar sem formanns nefndarinnar að flytja málið á búnaðarþingi árið 1927, og kaus þingið hana þá, ásamt Guðrúnu J. Briem og Sigurði Sigurðssyni, búnaðar- málastjóra, í milliþinganefnd, er rann- saka skyldi, hver þörf væri fyrir aUkna húsmæðrafræðslu, og skyldi nefndin, að þeirri rannsókn lokinni, leggja fram til- lögur fyrir búnaðarþing 1929, um það, á hvern hátt heppilegast væri að fram- kvæma þessa fræðslu. Vann nefndin mik- ið og þarft verk í þágu þessara mála og lagði með tillögum sínum grundvöllinn að þeirri húsmæðrafræðslu, sem hér er framkvæmd enn í dag. Á þessu búnaðar- þingi virðast hafa komið fram raddir um, að heppilegt væri, að konur um land allt tækju höndum saman til þess að halda vörð um þessi mál og koma betri skipan á um þau. Á næsta ári var því haldinn fundur nokkurra kvenna úr kvenfélögum og héraðssamböndum kvenna víðs vegar að af landinu. Kom fundur þessi saman í Reykjavík um mánaðamótin jan.-febr. 1930. Forgöngu um fundinn höfðu kon- urnar, sem setið höfðu í milliþinganefnd- inni, ekki sízt frú Ragnhildur, enda var hún kjörin formaður Kvenfélagasambands Islands, sem stofnað var á fundi þessum. Var hún formaður K.I. samfleytt til árs- ins 1947, er hún baðst eindregið undan kosningu. Taldi hún sig eigi lengur svo unga og hrausta, að hún gæti veitt sam- bandinu það fulltingi, er formanni þess bæri. Voru konur ófúsar að láta að ósk- um hennar, en vildu á hinn bóginn ekki neyða hana til formennskunnar lengur, eftir svo langan og erfiðan starfsferil. En heiðursformaður var hún kjörin á lands- þingi þessu. öll þau ár, sem frú Ragnhildur var formaður í K.I. hafði hún stutt hin ein- stöku félög og héraðssambönd að starfi, svo sem unnt var, bæði með þvi að miðla þeim af því litla fé, er K.I. hafði úr ríkis- sjóði og svo með ýmiss konar fyrir- HÚSFREYJAN greiðslu. Þegar fjárhagur sambandsins rýmkaðist árið 1944 með sómasamlegu fjárframlagi úr ríkissjóði, lét Ragnhildur sér mjög annt um að koma K.I. í það horf, sem hana mun frá upphafi hafa fýst að koma því í, sem sé að opna skrifstofu í Reykjavík og hafa sérstakan fram- kvæmdastjóra, sem og varð. Hér hefur í stuttu máli verið rakið starf frú Ragnhildar við stofnun og rekst- ur K.I. og svo þeirra starfa, er hún vann til undirbúnings að stofnun húsmæðra- skólanna í landinu og annarrar hús- mæðrafræðslu. En auk þess gæti verið sérstök saga um störf hennar við að koma á fót húsmæðraskólanum í Reykjavík. Því efni hefur Katrín Helgadóttir, núverandi skólastjóri Húsmæðraskóla Reykjavíkur, gert skil í afmælisgrein um frú Ragnhildi, er birtist í Morgunblaðinu, og vferður því sleppt hér. Að endingu vill svo ,,Húsfreyjan“, blað Kvenfélagasambands íslands, blað ís- lenzkra húsmæðra, flytja hinni öldnu sæmdarkonu hlýjar þakkir fyrir göfugt ævistarf og hugheilar óskir um friðsælt og bjart ævikvöld. Sv. Þ. Rausnarleg gjöf Á Selfossi er öflugt kvenfélag, þótt það sé með yngri kvenfélögum þessa lands. Útbreiðsla ,,Húsfreyjunnar“ hefur um margra ára skeið verið þar með ágætum. En kvenfélagið á Selfossi lætur eigi þar við standa. Skömmu fyrir jól barst blað- inu myndarleg gjöf frá félagi þessu, kr. 500.00. Þakkar blaðið þessa góðu gjöf, sem kemur í góðar þarfir, því að enn mun sem áður fara svo við uppgjör ársreikn- inga, að gjöldin verða allmjög hærri en tekjurnar. Óskar svo blaðið kvenfélaginu á Selfossi, ásamt öðrum velunnurum sín- um, gæfu og gengis á yfirstandandi ári. 5

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.