Húsfreyjan - 01.01.1960, Síða 8

Húsfreyjan - 01.01.1960, Síða 8
Rannveig Þorsteinsdóttir: Okkar á SVO SEM öllum kvenfélagskonum er kunnugt, þá er Kvenfélagasamband Is- lands þátttakandi í einum samtökum með öðrum þjóðum. Við erum í Hús- mæðrasambandi Norðurlanda, en í því eru, auk Kvenfélagasambands Islands, landssambönd húsmæðra á öllum Norðurlöndunum, Danmörku, Finn- landi, Noregi og Svíþjóð. Alls eru það sex sambönd, sem mynda Húsmæðra- samband Norðurlanda, af því að í Finn- landi eru tvö sambönd, annað fyrir finnskumælandi húsmæður og hitt fyr- ir sænskumælandi húsmæður, en sam- bönd þessi hafa mjög nána samvinnu sín á milli. Þessi samtök reyna með ýmsu móti að koma því til leiðar, að hver einstök félagskona viti og finni, að hún er þátt- takandi í samtökum, sem ná út fyrir hennar eigið land. I því efni hlýtur þó ætíð mest að hvíla á heildarsamtökum hvers lands, t. d. með því að ræða á fundum og þingum þau mál, sem efst eru á baugi í norrænu samtökunum og með því að blöð hvers lands, þ. e. blöð húsmæðrasamtakanna, sem svara til ,,Húsfreyjunnar“, skýri frá því, sem gerist í Húsmæðrasambandi Norður- landa. Þetta er alls staðar gert, að meira og minna leyti og hefur vafa- laust sín áhrif. En svo var það, að fram kom hug- mynd um að fara aðra leið til þess að fá konur á Norðurlöndum til þess að finna, að þær væru ein heild, að þær væru einn félagsskapur með sömu við- fangsefni og sömu áhugamál, þótt við mismunandi aðstæður sé. Það var mtlli sagt ákveðið að einn dagur á ári væri há- tíðisdagur félaganna, sem í þessum samtökum eru. Fyrir valinu varð 10. marz. Þessi dagur, 10. marz, var valinn vegna þess, að hann var fæðingardagur þeirrar konu, sem talin er raunveru- lega að hafa komið samtökunum á fót og leitt þau yfir byrjunarörðugleikana. Kona þessi var Maria Michelet, norsk umbóta- og hugsjónakona, sem ætíð er minnzt af ást og virðingu af öllum, sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að kynn- ast henni. Líklega hafa íslenzkar kon- ur lítið þekkt til hennar, og er þar mikið misst. Þó má geta þess hér, að á þeim árum, sem ein okkar ágætustu kvenna, Ólafía Jóhannsdóttir, var að hefja líknarstarf sitt til hjálpar ógæfu- sömum stúlkum götunnar í Osló, þá naut hún til þess stuðnings og full- tingis fjölskyldu Mariu Michelet, og er ekki að efa, að frú Michelet hefur kom- ið þar við sögu jafnframt, þótt hennar nafn sé ekki nefnt í hinni stuttorðu frásögn, þar sem þessa er getið. Nú er svo komið, að félög innan húsmæðrasamtakanna halda, sem flest, og í sumum löndum öll, fund með sér- stöku sniði þann 10. marz ár hvert. Þetta er bara marzfundurinn þeirra, en það er sérstaklega til hans vandað, og á þann hátt er dagurinn gerður að hátíðisdegi samtakanna. Borð eru skreytt, það er vandað til veitinga um- fram venju og dagskrá fundarins er höfð, eftir efnum og ástæðum öðruvísi en á venjulegum, hversdagslegum fund- um. Vissulega er ekki alltaf tækifæri 8 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.