Húsfreyjan - 01.01.1960, Side 12

Húsfreyjan - 01.01.1960, Side 12
lingarnir bundnir við borð og bekki klukkustundum saman, andstætt eðli sínu og upplagi. Slíkt væri raunar vel til- vinnandi, ef við á þann á hátt gætum lært listina að lifa fögru lífi, það er að segja, ef við gætum með núverandi námsfyrir- komulagi verið viss um, að öðlast sanna menntun, en reynslan sýnir því miður, að svo er nú ekki. Skylt er þó að geta þess, að í barnaskólum hafa verið gerðar ráð- stafanir til að reyna að samræma áhrif skólanna og heimilanna með því að halda svokallaða ,,foreldradaga“ og stofna for- eldrafélög, en þetta hefur ekki valdið neinum endurbótum á sjálfu skólakerf- inu, að því er ég bezt veit. Ef kvenfélögin hefðu lifandi áhuga á slíkum endurbótum, hlytu þau að geta lagt fram nýjar línur og barizt fyrir þeim, því að sennilega hafa mæður hér skarpari innsýn en aðrir, og þetta er mál, sem væntanlega snertir þær djúpt. Frá mínu sjónarmiði er það öruggast að leggja mesta áherzluna á alhliða menntun með það mark fyrir augum að reyna að gera menn að góðum samferða- mönnum í lífinu, — má ekki líkja lífinu við ferðalag, þegar allt kemur til alls, og hvað er þá ákjósanlegra en góður félagi, samverkamaður og vinur, og hvað unaðs- legra fyrir mann sjálfan, en að geta talizt einn í þeirra hópi? En hvað snertir önnur atriði, er að gagni mættu verða, þá finnst mér sem fyrrverandi fimleikakennara, að auka ætti líkamsrækt að miklum mun, en þá verður kennurunum líka að vera ljóst, að líkamsmennt er list, þar sem þjálfun lík- amans er lægsta stigið, og yrði tækni- kunnátta þeirra að ná út yfir það. Þá mundi ég vilja mæla með meiri úti-íþrótt- um, fyrir utan bæinn, þá þess er nokkur kostur, og endrum og eins uppi í óbyggð- um. Ég mundi einnig vilja láta flytja kennsluna út í náttúruna, þegar veður leyfir, t. d. þær greinar hennar, sem varða steina- og jurtaríkið, ennfremur ætti að vera hægt að viðra dýrafræðina og jafn- vel líka landafræði og sögu með því að láta kennsluna öðru hvoru fara fram utan skólastofunnar, í umhverfi, sem væri í einhverju samræmi við námsefnið. Hér vil ég skjóta því inn, að við höfum ekki að mínu áliti þörf fyrir allan þennan stóra skara af kennurum, sem nú starfa við barna- og unglingaskóla landsins, ég mundi heldur kjósa að þeir væru færri og betur undir starf sitt búnir (og geri ég þá ráð fyrir að tími skólasetunnar yrði styttur). Ekki veit ég hvernig því er varið í öðr- um löndum, en mér finnst að við íslend- ingar munum ekki notfæra okkur menn- ingararf okkar eins vel og við gætum. Hér á ég einkum við hinar sígildu bókmennt- ir vorar, en notkun þeirra er nokkuð ein- hliða. Að vísu eru margir kaflar úr þeim lesnir í skólunum, og einnig eru börnin látin læra ýms ljóð utanbókar, en það sem ég á við er það, að áhrif bókmenntanna gætu orðið dýpri og víðtækari, ef meiri fjölbreytni væri tekin upp í túlkun þeirra. Við skulum taka dæmi úr fornsögunum, eins og þáttinn „Brandur hinn örvi“. Þessi saga er lesin í barnaskólum (ef ég man rétt), en hana mætti svo auðveld- lega setja á svið, og þá fengju börnin færi á — ekki aðeins að heyra — heldur einnig að sjá, hve það er feikilega ann- kanalegt, að hafa aðeins þá hendina, sem tekur, en vanta hina, sem veitir. Ég geri ráð fyrir því, að með því að endurskipuleggja starfshætti sína, ættu kvenfélögin að geta barizt fyrir bættri menntun, með allgóðum árangri, þar sem þau geta náð til kvenna í öllum landshlut- um, og gefið þeim verk að vinna. Þannig hefur Kvenfélagasamband Islands félags- deildir um allt land og í hinum stærri bæjum, einkum þó í Reykjavík, er starf- andi heill hópur af ýmiss konar samtök- um. Sú staðreynd, að til er nú eins konar net af kvenfélögum út um allt landið, tel ég vera hina sterkustu stoð fyrir sjálf- boðaliðsvinnu kvenna, eða öllu heldur, það sem veitir henni mesta möguleika, en veika hliðin er að minni hyggju sú, hve lítið og einhliða þetta net, eða kerfi, 12 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.