Húsfreyjan - 01.01.1960, Page 13

Húsfreyjan - 01.01.1960, Page 13
er að jafnaði notað. Ég er hrædd um, að þeir hafi rétt fyrir sér, sem halda því fram, að í hverju félagi séu það venju- lega aðeins örfáar konur, sem verða að taka á sig mest allt erfiðið og starfið. En ég er sannfærð um, að svo þarf ekki að vera, og nú langar mig til þess að ræða lítið eitt hugmynd, sem lengi hefur búið um sig í huga mér. Ég veit ekki vel hvernig ég get bezt komið orðum að því, en . . . ég hef veitt því eftirtekt, að brúa má með þjálfun, fjarlægðina á milli kvenleiðtogans og fé- lagskonu sem — eins og gengur — er feimin og framtakslaus, einnig að þjálfun skapar áhuga og vekur leynda hæfileika. Ég veit að þetta er rétt, af því að ég hef horft á það — hvernig hlédrægar konur, sem búa ekki yfir neinum sérstökum hæfi- leikum, fljótt á litið, taka bókstaflega að ,,vaxa“ andlega, þegar þær fá uppörfun og hjálp, til þess að leggja rækt við með- fædda eðliskosti sína. En að því er ég bezt veit, þá er slík þjálfun óþekkt í göml- um og grónum kvenfélögum, að vísu gefa þau vissa þjálfun, þeim fáu konum, sem kosnar eru í stjórnina, þar sem þær svo kunna að sitja í fjöldamörg ár, og er það misræmi, er ég tel vera einn veikasta hlekkinn í allri félagsstarfseminni. Að þessu athuguðu finnst mér, að bezta ráðið til þess að endurlífga eldri samtök, og þá um leið ná til fleiri ungra kvenna og vekja þær til starfa, mundi vera það, að stofna fámenna heima-klúbba, innan vébanda hinna stærri félaga, þar sem hver hópur hefði sín sérstöku áhugamál og viðfangs- efni, en öllum meðlimum væri skylt að taka virkan og lifandi þátt í því starfi, er þeir hefðu valið sér að vinna að. Það hefur löngum verið minn draumur að koma á fót litlum náms-klúbbum af þessu tagi, óháðum gömlu félögunum og var einn slíkur klúbbur reyndar starfandi síðastliðna tvo vetur. Við komum saman á heimilum hverrar annarrar og ræddum sameiginlegt hugðarefni, en með sjálf- stæðri vinnu fengum við hver um sig upp- örvun til þess að tjá sig og leggja rækt við þá hæfileika, sem í okkur búa. Það er von mín, að með tímanum finni vin- konur mínar hjá sér hvöt og sjálfstraust til þess að stofna sína eigin klúbba, og þá geta þær að sjálfsögðu tekið fyrir hvaða námsefni sem þær vilja — allt frá garð- yrkju til heimspeki, svo eitthvað sé nefnt, og þótt ég segi námsefni, þarf ekki að binda sig við það, — það ætti að vera hægt að stofna klúbba eins og þessa með það fyrir augum að berjast fyrir einhverri hugsjón — til dæmis sannri menntun — eða þá til þess að vinna á móti einhverj- um ágalla á siðmenningu vorri, drykkju- skap, slæmum umgengnisháttum o. s. frv., en það sem skiptir mestu máli í þessu sambandi er það, að með svona smá-hóp- um sem þessum má vinna nytsamt starf, og þar er sameiginlegur áhugi allra með- limanna fyrir hendi, án nokkurrar und- antekningar. Ég hef því verið að velta því fyrir mér, hvort þetta sé ekki leið, sem vert væri að reyna, til þess að vekja áhuga kvenna á aðkallandi vandamálum líðandi stundar. Að mínu áliti ættu slíkir klúbbar — hvort sem þeir væru stofnaðir innan eða utan vébanda hinni stærri kven- félaga — að vera sjálfstæðir í starfi sínu, en með tímanum gæti verið nauðsynlegt að hafa einhvern sameiginlegan tengilið, er gefið gæti leiðbeiningar um stofnun og heppilegar starfsreglur. í þessari ritgerð hef ég einkum haft uppeldismálin í huga, sökum þess að ég tel þau mikilvægustu viðfangsefni vorra tíma og lít svo á, að umbætur á því sviði myndu flýta fyrir úrlausn ótal vanda- mála, því að mannræktin snertir svo mörg, ef ekki öll önnur, viðfangsefni og vandamál. En mig langar einnig til þess að ræða hér lítilsháttar tvö önnur við- fangsefni, sem standa huga mínum nær. Ég hef heyrt, að í Bandaríkjunum sé kirkjan voldugur þáttur í lífi þjóðarinnar. Aftur á móti virðast áhrif hennar fara sífellt dvínandi hér á landi. Ungt fólk fer svo að segja aldrei í kirkju, að fáeinum undanteknum, eins og gengur. Nú get- ur það verið eðlilegt og allt með felldu, HÚSFREYJAN 13

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.