Húsfreyjan - 01.01.1960, Page 21
Manneldisþáttur
Varizt offitu!
Flestum finnst mikilvægt vegna útlitsins
að hlaða ekki á sig holdum. Offita, óprýð-
ir líkamann, gerir okkur andstutt, stirð
og gömul fyrir aldur fram. Á seinni árum
er það einnig orðið lýðum ljóst, að nauð-
synlegt er vegna heilsunnar að offitna
ekki. Þeir offeitu eru oft næmari fyrir
sjúkdómum og kvillum, sem gera þeim
lífið súrt, eins og t. d. æðakölkun, ýmsir
hjartasjúkdómar og aukinn blóðþrýsting-
ur, og samkvæmt rannsóknum amerískra
líftryggingafélaga eykst dánartalan í hlut-
falli við yfirvigt.
Hitaeiningaþörf manna fer annars veg-
ar eftir kyni, aldri og líkamsþunga, hins
vegar eftir vinnu (sjá töflu).
Ef frá er talin beinkröm, eru raun-
verulegir næringarsjúkdómar mjög sjald-
gæfir hér á landi nú orðið. En sjúkdómar,
sem orsakast af offitu, eru nokkuð tíðir.
Hvað veldur offitu?
1. Of lág efnaskipti.
2. Of lítil líkamsáreynsla.
3. Dálæti á fitandi fæðutegundum og
sælgæti.
4. Tilhneiging til að borða of mikið
af daglegri fæðu.
5. Að borðað sé út úr leiðindum.
I stuttu máli sagt, orsökin er í flestum
tilfellum, að fæðan inniheldur fleiri hita-
einingar en líkaminn brennir.
Til að varast offitu verður hver og einn
að gæta þess, að hitaeiningamagn fæð-
unnar sé í hlutfalli við þarfir.
En til að skilja þetta betur, þarf að
gera stutta grein fyrir samsetningu þeirr-
ar fæðu, sem við neytum, og nýtingu
hennar í líkamanum.
Næringarefnin í fæðunni eru kolvetni,
fita og eggjahvíta. Auk þess þurfum við
fjörefni, sölt og vatn.
Kolvetni er snar þáttur í fæðu okkar
íslendinga. Þau eru í sykri (íslendingar
eru samkvæmt nýjustu skýrslum mestu
sykurætur í heiminum), brauði, mjólk,
kartöflum og í smærri stíl í ýmsum öðr-
um fæðutegundum. Fáum við of mikið af
kolvetninu, hleðst megnið upp, fyrst sem
glykogen (dýra-sterkja) í lifur og vöðv-
um, nál. Y2 kg. Það, sem eftir er af kol-
vetnum, safnast saman sem fita.
Fitan (í smjöri, rjóma, feitum osti,
feitu kjöti, mör, tólg o. s. frv.) hefur sama
hlutverki að gegna í líkamanum sem kol-
vetni; þau eru aðeins orkugefandi. En til
þess að frumur líkamans geti endurnýjazt
og hin ýmsu líffæri geti starfað, þarf
mannslíkaminn eldsneyti. Fita og kolvetni
eru eldsneyti. Ekki er hægt að tala um
,,bruna“ í líkamanum, en við efnabreyt-
ingu þeirra myndast hiti, hlutur sem við
öll vitum, ef við leiðum hugann að því,
hvernig líkamshiti okkar helzt jafn 37°C
þrátt fyrir ytri hitasveiflur.
Eggjahvítan er í kjöti, fiski, eggjum,
osti, skyri, mjólk og baunum. Er hún
ómissandi við uppbyggingu og endurnýj-
un allra þeirra fruma, sem líkaminn er
samsettur úr. Fæðan verður því að inni-
halda eggjahvítu.
HÚSFREYJAN
21