Húsfreyjan - 01.01.1960, Síða 26

Húsfreyjan - 01.01.1960, Síða 26
Heillaráð Kona nokkur hefur sent „Húsfreyj- unni“ eftirfarandi: Allar þekkjum við, hvernig sængurver slitnar. Höfðalagsendinn slitnar alltaf fyrst. Síðast, er ég saumaði mér sængur- ver, hugkvæmdist mér að reyna að sauma það þannig, að auðvelt og fljótlegt væri að breyta verinu, svo að slitni endinn færðist ofan á sængina, en hitt, sem minnst væri slitið, yrði við höfðalagið. Þetta er hægt að gera alveg eins, þó að sængurverið sé með milliverki og fanga- marki eða öðru skrauti. Stafirnir snúast bara við. Þessu má auðveldlega koma fyrir á eft- irfarandi hátt: Verið þarf að sauma með prjóns er aukið um 1 1. í lok prjónsins með þvi að taka upp næstsíðustu 1. frá síðasta prj. og prjóna hana slétt. Prjónið síðustu lykkju slétt. Á 3. prjóni er fyrsta 1. prj. sl. og prj. þar til 3 1. eru eftir á prjóninum. Prjónið þá tvær 1. saman og prj. siðustu 1. sl. Prjónið nú áfram þannig, að aukið er í öðrum megin annan hvern prjón, en tekið úr hinum megin annan hvern. Húfan er prjónuð líkt og ,,sik-sak“-borði, sem skipta má í 6 parta. 1. partur. Prjónaðir 32 (36) 40 prjónar og gerðar hvort um sig 16 (18) 20 aukningar og úr- tökur. 2. partur. Prjónaður sami prjónafjöldi og í fyrsta parti, en aukið í þeim megin, sem áður var tekið úr, og öfugt. 3. partur. Prjónaðir 16 (18) 20 prj. og tekið úr þeim megin sem áður var aukið i, og öfugt. 4. partur. Prjónaður sami prjónafjöldi og í 3. parti, en aukið í þeim megin, sem áður var tekið úr. 5. partur. Prjónaður eins og 1. partur. 6. partur. Prjónaður eins og 2. partur. Fellt laust af. Húfan er saumuð saman í hnakkanum og að ofan, þannig að hornin mætast á hvirflinum. Að framan liggur litla hornið fram á ennið, en stóru hornin yfir eyrun. opinu á hliðinni.Efverið ermeð milliverki, er bezt að setja það saman með milli- verkinu og hafa þá engan þversaum. Ann- ars verður að hafa sauminn á fótaendan- um. Nauðsynlegt er að falda opið alveg endanna á milli og festa um leið bendlana á hæfilegum stöðum. Síðan má sauma opið saman til endanna, svo að það verði hæfilega stórt. Þegar verið er um það bil hálfslitið (það má ekki vera nærri komið gat), er hliðarsaumnum sprett upp. Það er mjög fljótlegt, því að tvinninn er orðinn stökk- ur. Því næst er verið lagt þannig saman, að slitni hlutinn komi ofan á sængina, en það þykkasta við höfðalagið. Milliverk eða annað skraut kemur á sama stað og áður, en stafirnir snúa öfugt. Síðan eru bendlamir færðir á rétta staði og hliðar- saumarnir saumaðir á nýjan leik. Punktalínan sýnir hvar höfðalagsendinn var. hj !y///> ^HfwtMur, tti „Húsfreyjan" þakkar þetta heillaráð, og Heimilisþátturinn er fús að birta fleira af þessu tagi, ef lesendur vilja vinsamleg- ast láta slíkt í té. Orlof húsmæðra Frumvarp til laga um orlof húsmæðra hefur nú verið lagt fyrir Alþingi, flutt af fulltrúum allra flokka, þeim Auði Auðuns, Katrínu J. Smára, Karli Kristjánssyni og Birni Jónssyni. 26 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.