Húsfreyjan - 01.01.1960, Blaðsíða 30

Húsfreyjan - 01.01.1960, Blaðsíða 30
aðgerðum algjörlega í samræmi við það. Um þykkt gróðurmoldar er það að segja, að algert lágmark fyrir fjölæran- og trjákenndan gróður, má telja ca 25 cm. Aftur má komast af með grynnra lag undir grasflatir og sumarblóm, eða 15 til 20 cm.Heppilegastur jarðvegur til skrúð- garðaræktar er leir- og sandblandin mold- arjörð. Þannig jörð er þó ekki alls staðar fyrir hendi. Hins vegar má auðveldlega breyta jarðveginum smátt og smátt í það horf, sem óskað er eftir, leyfi efni það ekki þegar í byrjun, þó það hafi heldur meiri kostnað í för með sér. Sé jarðvegur- inn mjög leirborinn, er gagnlegt að aka í hann grófum sandi og mýrarmold. Sé hann talinn um of sandkenndur, má blanda í hann nokkuð af leir- og mýrar- mold, og, ef mýrarjarðvegurinn er einn til umráða, verður hann bezt bættur með smávegis af leirjörð og nokkrum sandi. Að auki hefur svo árleg teðsla með hús- dýraáburði mikil jarðvegsbætandi áhrif. Hér má einnig nefna skarna, sem nýlega er tekinn í notkun í Reykjavík. Þótt lykt- in af skarna sé óviðkunnanleg, hefur hann eigi að síður margt til síns ágætis, er mælir með notkun hans. Garðamold getur oft verið nokkuð súr, a.m.k. gildir svo um mýrarmold. Er það óheppilegt fyrir flestan gróður, að undan- skildum alparósum og öðrum lyngplönt- um. Breyta má sýrustigi jarðvegs með áburðarkalki eða skeljasandi. Ákveðnar tölur um magn af kalki, er erfitt að gefa upp, nema nákvæm vitneskja um sýru- stigið sé fyrir hendi. En vart mun fjarri lagi, að áætla 5—8 kg á hverja 10 mL>. Af skeljasandi þarf minnst þriðjungi meira magn, því að hann er mun sein- virkari. Kalk hefur og hagstæð áhrif á kornagerð jarðvegs yfirleitt, er því rétt að bera það á í allan jarðveg, við undir- búning garðsins, og siðan á nokkra ára fresti þar sem hægt er að koma uppstungu við. I leir- og moldarjörð mun örugglega óhætt að nota 1—3 kg á 10 m- í upphafi, og nokkru minni skammta hverju sinni síðar. — (Frh. í næsta blaði). Óli Valur Hansson. Mynd 3. — Garður, er snertir 2 hliðar

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.