Húsfreyjan - 01.01.1960, Qupperneq 31
Kvenfélag Lágafellssóknar 50 ára
SUNNUDAGINN 27. desember S.l. minnt-
ist Kvenfélag Lágafellssóknar 50 ára af-
mælis síns með veglegu kvöldverðarboði
að Hlégarði, félagsheimili sveitarinnar.
Sátu hófið nær 200 manns. Var formaður
félagsins, Helga Magnúsdóttir, húsfreyja
að Blikastöðum, veizlustjóri, en þær hús-
freyjurnar Kristrún Eyvindsdóttir í Star-
dal og Áslaug Ásgeirsdóttir, Dælustöð-
inni, fluttu ágrip af sögu félagsins. Verður
hér getið nokkurs af því, er gerzt hefur
á þessum hálfrar aldar starfsferli félags-
ins.
Félagið var stofnað að Völlum á Kjal-
arnesi 26. desember árið 1909. Voru stofn-
endur aðeins 11. Helzti hvatamaður að
stofnun félagsins var Guðrún Jósefsdótt-
ir, húsfreyja að Völlum, enda féll það í
hennar hlut að taka að sér formennslcu
félagsins i fyrstu. Brátt fjölgaði félagskon-
um og voru það einkum konur úr Mos-
fellssveit, sem við bættust, en í fyrstu
höfðu þær að mestu verið af austanverðu
Kjalarnesi. Hlaut félagið því fyrst nafnið
Kvenfélag Kjalarness, en nafni þess var
brátt breytt í það horf, sem nú er og
félagssvæðið þá jafnframt ákveðið öll
Lágafellssókn. Tala félagskvenna hefur
svo sífellt farið vaxandi, svo að nú eru
þær rúmlega 90 að tölu.
Tilgangur þessa félags var í fyrstu ein-
göngu hinn sami og flestra þeirra kven-
félaga, er stofnuð voru á 1. og 2. tug
þessarar aldar, að leitast við að rétta
þeim hjálparhönd, er erfiðast áttu í lífs-
baráttunni þar í sveitinni: Barnmörgum
fátæklingum og þeim, er urðu fyrir sjúk-
dómum eða slysum. Var þegar á fyrstu
HÚSFREYJAN
31