Húsfreyjan - 01.01.1960, Qupperneq 36

Húsfreyjan - 01.01.1960, Qupperneq 36
Ályktun um hjálparstúlkur Þing Kvenfélagasambands íslands, haldið 31/8 til 3/9 1959, bendir bæjar- og sveitarfélögum á 6. gr. laga um heimilishjálp, að stúlkum, sem vilja taka að sér heimilishjálp, verði gefinn kost- ur á námi við húsmæðraskóla eða á annan hátt. Leggur þingið til að stúlkur þessar verði að ein- hverju leyti styrktar til námsins, ef þörf þykir. Áskorun um skólaheimili 13. landsþing K. f. ályktar að skora á mennta- málaráðherra að sjá um stofnun heimilis fyrir stúlkur, sem lent hafa á glapstigum. Á síðustu fjárlögum voru veittar kr. 300.000.00 til húsbyggingar. Væntir þingið, að Alþingi sjái sér fært að hækka þá upphæð á næstu fjárlög- um, svo að hefja megi byggingarframkvæmdir sem fyrst. Tekið verði til athugunar, hvort ekki sé til lítið notað eða ónotað húsnæði úti á landi á vegum hins opinbera, er nota mætti meðan á húsbyggingu stendur. Ályktun varðandi kjarnorkuvopn Samkvæmt rannsóknum og skýrslum síðustu mánaða um auknar geislavirkanir í sambandi við kjarnorkusprengingar í heiminum, er það bersýnilegt, að uggvænlega horfir um framtíð mannkynsins, ef áfram verður haldið á þessari braut. Hættan er sérstaklega mikil nú, þar sem yfir vofir að eitt eða fleiri stórveldanna hefji kjarnorkusprengingar að nýju, og jafnvel að nýjar þjóðir bætist við. Þing Kvenfélagasambands íslands 31/8—3/9 1959 lýsir megnri andúð sinni á þessum tilraun- um með kjarnorkusprengjur og smíði á fjölda- morðvopnum, sem geta haft ófyrirsjáanlegar af- leiðingar fyrir allt líf á jörðinni, og ef slík vopn yrðu notuð í styrjaldarátökum, myndu þau valda gereyðingu heilla landshluta og jafnvel alls mannkynsins. Samkvæmt lögum átti að kjósa formann og annan meðstjórnanda. Formaður var kjörin Rannveig Þorsteinsdóttir, en meðstjórnandi Helga Magnúsdóttir á Blikastöðum. Fyrir í stjórn sambandsins var Aðalbjörg Sigurðardóttir. í varastjórn voru kosnar: Jónína Guðmunds- dóttir, Ólöf Benediktsdóttir og Guðlaug Narfa- dóttir. í útgáfustjórn „Húsfreyjunnar" voru kosnar: Svafa Þórleifsdóttir, Elsa E. Guðjónsson, Krist- jana Steingrímsdóttir, Sigríður Thorlacius og Sigríður Kristjánsdóttir. Endurskoðandi var kjörin Ingveldur Einars- dóttir og til vara Sigríður Johnsen. Svafa Þóríeifsdóttir var endurkjörin í fram- kvæmastjórn Hallveigarstaða, en til vara Her- dis Ásgeirsdóttir. Fulltrúi K. f. í Landssambandi gegn áfengis- bölinu er Jóhanna Egilsdóttir, en sem fulltrúar á landsþing þeirra samtaka voru kjörnar: Aðal- björg Sigurðardóttir og Ólöf Sigurðardóttir, í laganefnd voru kosnar Rannveig Þorsteinsdóttir, Sigríður Sigurjónsdóttir og Svafa Þórleifsdóttir. Milliþinganefnd til að leita samvinnu við Bún- aðarfélag íslands í samráði við stjórn K. í. var kjörin, þær Ragn Sigurðardóttir, Þórustöðum, Helga Sigurðardóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir, Hurðarbaki, hlutu kosningu. í K. í. eru nú 215 kvenfélög, sem mynda 18 héraðssambönd. Félagatala er 13.226. Fimmtudaginn 3. apríl kl. 7.30 síðdegis var fundarstörfum lokið og hófst þá kveðjumiðdags- verður. Voru margar ræður fluttar undir borðum og sungið á milli. Lauk svo þinginu með því, að hinn nýkjörni formaður, Rannveig Þorsteins- dóttir, sagði því slitið, þakkaði fulltrúum góða fundarsókn um leið og hún óskaði þeim góðrar heimkomu. Meðan á þinginu stóð höfðu konur tvisvar brugðið sér út úr bænum. Hið fyrra skiptið upp að Hlaðgerðarkoti í Mosfellssveit, mæðraheimili Mæðrastyrksnefndar í Reykjavík, en síðara skipt- ið sátu konur heimboð forsetahjónanna á Bessa- stöðum, þriðjudaginn 1. september. HÚSFREYJAN kemur út 4 sinnum á ári. Ritstjórn: Svafa Þórleifsdóttir Laugavegi 33A - Sími 16685 Sigríður Thorlacius Bólstaðahlíð 16 - Sími 13783 Elsa E. Guðjónsson Laugateigi 31 - Sími 33223 Sigríður Kristjánsdóttir Stigahlíð 2 - Sími 35748 Kristjana Steingrímsdóttir Hringbraut 89 - Sími 12771 Afgreiðslu og innheimtu annast Svafa Þórleifsdóttir, Laugavegi 33 A. Verð árgangsins er 35 krónur. í lausasölu kostar hvert venjulegt hefti 10 kr. Gjald- dagi er fyrir 1. október ár hvert. Prentsmiðja Jóns Helgasonar. 36 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.