Íslenskt mál og almenn málfræði


Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1985, Síða 215

Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1985, Síða 215
Ritdómar 213 ('vokalskifte’) og það nefnir hann einnig breytingar í stofni nútíðar sterkra sagna. Hins vegar kallar höfundur hljóðskipti sterkra sagna ‘vokalveksling’ og spyrja má hvort nauðsynlegt hafi verið að nota tvö hugtök um fyrirbærin. Þessi víxl eru öll sama eðlis samtímalega séð og notuð til þess að greina eina formdeild frá annarri. í 7. kafla er gerð grein fyrir sagnbeygingunni sem áður hafði verið minnst á í upphafi. Nútíð sagna er greind í þijá meginflokka og gerður er greinarmunur á veikri og sterkri nútíð. Þess ber þó að gæta að hugtökin veikt og sterkt öðlast ekki gildi fyrr en í þátíð, og skv. því væri eðlilegt að byrja á henni. Fram hjá nútíð má komast án þess að minnst sé á þau, enda þótt sá kostur sé ekki alls kostar fýsilegur af ýmsum ástæðum. f umfjöllun um sterkar sagnir velur höfundur þá leið að varpa hefðbundinni röðun flokkanna fyrir róða. Að öðru leyti halda flokkarnir, sem hér eru sjö sem fyrr, sér í megindráttum enda þótt ströngum upprunasjónarmiðum sé ekki fylgt og er það eðlilegt. En þessi breyting, sem einkum felst í röð flokkanna, þjónar litlum tilgangi. Vænlegra hefði verið t.d. að greina að reglulegar sagnir skv. hefðbundinni flokkun en líta á aðrar sagnir sem óreglu- legar. I 9. kafla er fjallað um lýsingarhátt þátíðar í hvorugkyni eintölu, supinum, sem nefnt hefur verið sagnbót á íslensku. I kafla 13.1 er hins vegar gerð grein fyrir lýsingarhætti þátíðar í heild. Raunar er það svo að hugtakið sagnbót er allsendis óþarft hugtak í ís- lensku. Verið er að fjalla um tiltekið fall (föll) lýsingarháttarins og hugtakið því óþarft. Öðru máli gegnir t.d. í sænsku. Þar hefur slík notkun gildi og mér segir svo hugur að þaðan sé skýringar að leita á notkun þess í íslensku. Hins vegar er vandi kennarans ljós. Lýsingarháttur þátíðar í hvorugkyni eintölu er það form lýsingarháttar, sem mest er notað, og því eðlilegt að kennari reyni á einhvern hátt að merkja hann. Þar sem fjallað er almennt um lýsingarhátt þátíðar er hann sýndur fullbeygður. Það væri íhugunarefni hvort ekki væri hagkvæmt að ræða um Iýsingarhátt þolmyndar og gera grein fyrir notkun hans, sem einkum er bundin við tiltekin föll eintölu og fleirtölu, og lýsingarháttar sem notaður er sem lýsingarorð. Þetta mætti gera í stuttu máli og ég held að það mundi létta stúdentum róðurinn. Það er gömul og ný reynsla að þessi þátt- ur málsins hefur valdið hræðslu og erfiðleikum sem komast hefði mátt hjá með nokk- urri einföldun. Ekki ólíkt mætti fara að með efsta stig lýsingarorða. Notkun þess er mjög takmörkunum háð mætti á það benda. í 13. kafla er fjallað um ýmis sagnasambönd sem notuð eru til að tákna ákveðin horf í íslensku. I heild er þetta prýðisgóð lýsing enda þótt ég sakni þar ýmissa þátt. Taka má sem dæmi sambandið vera að + nafnháttur. Notkun þess sambands er mjög takmörkun- um háð. Algengar sagnir, sem t.d. tákna ástand (sofa, vaka, liggja, standa), er ekki hægt að nota með þessu orðasambandi. Slíkar upplýsingar hefðu vel átt hér heima. Kaflinn um hjálparsagnir í íslensku er góður að því er varðar merkingu þeirra og setningafræðileg atriði og fleiri sagnir eru teknar fyrir en venjulega. Kaflinn um ópers- ónulegar sagnir er sá albesti sem sést hefur í bók af þessu tagi um íslensku. í 21. kafla er gerð grein fyrir viðtengingarhætti nútíðar og þátíðar og er einfaldlega talað um viðteng- ingarhætti I og II. Sú lausn er góð m.a. vegna þess hve lítil tengsl viðtengingarháttar II (þátíðar) eru við þátíð nema að því er varðar ytri einkenni. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru. I heild er bókin mjög góð og besta kennslubók um íslenska málfræði fyrir útlendinga sem nú er völ á. Höfundi tekst vel að greina aðal- atriði frá aukaatriðum og röð efnisatriða skynsamleg. Bókin er vel upp sett og á það
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208
Síða 209
Síða 210
Síða 211
Síða 212
Síða 213
Síða 214
Síða 215
Síða 216
Síða 217
Síða 218
Síða 219
Síða 220
Síða 221
Síða 222
Síða 223
Síða 224
Síða 225
Síða 226
Síða 227
Síða 228

x

Íslenskt mál og almenn málfræði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskt mál og almenn málfræði
https://timarit.is/publication/832

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.