Íslenskt skákblað - 15.12.1925, Page 23
ÍSLENSKT SKAKBLAÐ
6Q
ógleymdum rússneska skákkonunginuni Bogoljubow. Ennfremur
eru þar allir þeir, er þátt tóku í alrússneska meistaraskákþinginu,
sem að framan er getið. Eitt nafn er það þó, sem skákvinir sakna
frá þessu þingi, en það er stórmeistarinn rússneski Aljechin. Vitum
vjer ekki með fullri vissu hvað því veldur, að honum var ekki
boðið til þessa þings. Líklegt er þó, að gamlar stjórnmálaværingar
sjeu þessu valdandi. (Aljechin er keisarasinni, en til skákþingsins
stofnar núverandi lýðstjórn Rússlands).
Dr. Lasker hefir gert ráð fyrir, að takast ferð á hendur til New-
York í janúar n.k., og er tilgangur ferðarinnar einungis að tefla þar.
Býst hann og við að ferðast eitthvað víðar um. í þessu sambandi
er því fleygt, að skáknrönnum úti um heim þyki nú Capablanca
vera farinn að slá slöku við skákiðkanir sínar. Segja þeir, að síð-
an liann gifti sig, uni hann hag sínum best heima hjá konu og
tveim börnum, en kæri sig ekki um að fara um heim allan til hild-
arleika líkt og Lasker gerir.
Rjett um leið og Skákblaðið er að fara í pressuna, hefir komið
frjett af skákþinginu mikla í Moskva, er áður hefir verið getið, og
úrslit þess. Vegna rúmleysis er ekki lrægt að geta þess nánar í
þessu hefti, en mun ítarlega verða getið í næsta. Úrslit urðu þau,
að rússneski stórmeistarinn Bogoljubow vann glæsilegan sigur og
náði 151/2 vinningi, Dr. Lasker næstur með 14 vinninga, svo Capa-
blanca með 13V2. Teflendur voru 21.
1 n n 1 e n d .
Skákfjelag er nýlega stofnað á Siglufirði. Forgöngunrenn þess
munu hafa verið Otto Jörgensen símritari og Sig. Kristjánsson kaup-
maður. Meðal annars segir hr. Sig. Kristjánsson í brjefi til Skák-
blaðsins: »Litlar frjettir er frá skákfjelaginu okkar unga. Við erunr
um 20 talsins, stofnendurnir. Teflt er einu sinni í viku og þá eitt
tafl bókað í livert skifti. Eins og gefur að skilja, er taflkunnáttan
ekki á háu stigi, þar sem margt er byrjenda. Pó efast jeg ekki um,
að sumir fjelaganna geti orðið góðir skákmenn . . . Okkur vantar
mann eða menn, sem við gætum verulega lært af . . . Annars er
áreiðanlegt, að stofnun þessa skákfjelags hefir vakið mikinn áhuga
fyrir skák hjer í bænum, og er það gott. Nógu er veturinn langur
hjer á Siglufirði, þótt eitthvað sje til dægrastyttingar . . .« Skák-
blaðið óskar fjelaginu gengis og langra lífdaga og væntir þess, að