Íslenskt skákblað - 01.02.1927, Blaðsíða 22
44
ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ
gætu sótt Er því þessi leið, ritsímaskákirnar, hin eina til þess að
gefa þessum skákmönnuin kost að reyna sig hver við annan, þótt
ekki sje þar með lögð stika á skákstyrk hvers um sig, eins og
hægt er að gera á skákþingi. Á Landsími íslands hjer óskoraðan
heiður og þökk fyrir velvild þá og góðfýsi, er hann sýnir skákfje-
lögum og Skáksambandinu með því, að lána símann ókeypis til
þessara afnota. — Fer hjer á eftir frásögn um ritsímaskákir þessar
og úrslit þeirra á hverjum stað:
Aðfaranótt 29. desember síðastl. 2. og 3. flokkur í Skákfjelagi
Akureyrar gegn Skákfjelagi Siglfirðinga. Teflendur 11. Úrslit: Sigl*
firðingar 6'Á, Akureyringar 41/2 vinning.
Aðfaranótt 16. janúar síðastl. 2. og 3. fl. í Skákfjelagi Akureyrar
gegn Skákfjelagi Húsavíkur. Teflendur 12. Úrslit: Húsvíkingar
61/2, Akureyringar 51/2 vinning.
Aðfaranótt 22. janúar síðastl. Taflfjelag Gagnfræðaskólans á
Akureyri gegn Skákfjelagi Húsavíkur. Teflendur 16. Úrslit: Gagn-
fræðaskólinn 10, Húsavík 6 vinninga.
Aðfaranótt 6. febrúar síðastl. 2. fl. og 2 úr 1. fl. í Skákfjelagi
Akureyrar gegn Taflfjelagi Hvammstanga. Teflendur 10. Úrslit:
Skákfjelag Akureyrar 5 ‘A, Hvammstangi 41/'2 vinning.
Aðfaranótt 13. febrúar síðastl. Hvammstangi gegn Blönduósi.
Teflendur 12. Úrslit: Hvammstangi 81/2, Blönduós 3V* vinning.
Hefir Skákblaðinu verið skrifað af Blönduósi, að nokkrir bestu skák-
menn þeirra hafi verið fjarverandi og ekki getað tekið þátt í kapp-
skákunum. Síðar hefir Blönduós skorað á Hvammstanga til nýrrar
viðureignar, með efldasta liði sínu, en Hvammstangi skorast undan.
Virðist sem nokkur kurr hafi risið út af þessu milli fjelaganna.
Vonar Skákblaðið, að fjelögin jafni með sjer ýfingarnar og taki
karlmannlega og í bróðerni saman aftur í kappskák.
Aðfaranótt 14. febrúar síðastl. 2. og 3. fl. í Skákfjelagi Akur-
eyrar gegn Skákfjelagi Eskifjarðar. Teflendur 12. Úrslit: Akureyr-
ingar 81/2, Eskfirðingar 31/* vinning.
Aðfaranótt 27. febrúar síðastl. hin árlega símaskák milli Reykja-
víkur og Akureyrar. Teflendur 10. Úrslit: Reykjavík 6, Akureyri
4 vinninga. Veittu 4 úr Skákfjelagi Hörgdæla Akureyringum lið-
veislu í þessari símskák og sýndu þar, hve góðum skákmönn-
utn það fjelag hefir á að skipa, þar sem þeir töpuðu engri skák,
en við 1. fl. menn Reykvíkinga að eiga. Er þetta því lofsamlegra,
sem fjelag þeirra starfar í afdalasveit. Einn af teflendum Skákfjelags
Akureyrar var 2. fl. maður.