Íslenskt skákblað - 01.02.1927, Page 24

Íslenskt skákblað - 01.02.1927, Page 24
ÍSLENSKT SKÁKBLAD 46 íslendinga, fellur, samkvæmt Sambandslögunum, undir vcrksvið Sam- bandsins. Á þá Sambandið eftir að samþykkja þessa nýju breyt- 'ngu, sem útheimtist á Sambandslögunum, og verður það gert á næsta aðalfundi þess. Er Sambandinu mikill fengur í þessu fjelagi, því að það er lang-öflugasta skákfjelag landsins. — Stjórnarskifti urðu í Taflfjelagi Reykjavíkur. Ljet af formannsstöðu Ágúst Pálma- son. Er eftirmaður bans Elis O. Guðmundsson. Meðstjórnendur hans eru: Porsteinn Gíslason (gjaldkeri) og Halldór Jónasson (ritari). Fyrir nokkru síðan var Taflfjelagi Reykjavíkur afhentur silfur- bikar rriikill og fagur, fyrir unninn sigur í kappskákunum við Norð- menn. í samsæti, sem haldið var sama kvöld, afhenti forstjóri Frjettastofu blaðamannafjelagsins, herra Axel Thorsteinsson rithöf- undur, fjelaginu bikarinn til fullrar eignar, og í ræðu, sem hann hjelt þá um leið, þakkaði hann fjelaginu fyrir unninn sigur í þess- um fyrstu millilanda kappskákum og óskaði íslenskum taflmönnum allra heilla í framlíðinni. í samsæti þessu var skákstjóranum og keppendunum öllum af- hentur frá fjelaginu fallegur minnispeningur úr silfri. Verðlaunabikarinn hafði smíðað Jónatan Jónsson gullsmiður í Reykjavík og er hann af öllum talinn að vera hið mesta metfje. Bikarinn er í lögun eins og hrókur. Ofan á honum er sigur- bogi mjög fallegur. Á bikarinn er grafið mikið og meðal annars skjaldarmerki íslands og Noregs, svo og nöfn allra norsku og ís- lensku keppendanna. Taflfjelag Reykjavíkur hefir nú mjög eflt 1. flokk sinn með því að 7 taflmenn úr 2. flokki hafa unnið sig upp. Höfðu þeir kept við 2 menn úr 1. flokki og staðið sig svo vel, að aðalfundur sam- þykti einróma, að flytja þá upp. Skipa nú 16 menn 1. fl. þess fjelags. Skákþing íslendinga er ákveðið að haldið verði á Akureyri 22. apríl næstk., sbr. auglýsingu þar um í þessu hefti Skákblaðsins. Er þelta í fyrsta skifti, að Skáksamband íslands stofnar til þessa þings, þar sem Taílfjelag Reykjavíkur hefir ávalt áður stofnað til þess, eins og áður er getið, en það hefir nú, með inngöngu sinni í Sam- bandið, afsalað sjer frainkvæmdum og umsjón með því. Er útlit fyrir, að skákþing þetta verði vel sótt og fjörugt. Er nokkurn veg- inn ákveðið, að frá Taflfjelagi Reykjavíkur sæki það 4 skákmenn, en óvíst um, hverjir það verða, Pó mun mega fullyrða, að Eggert

x

Íslenskt skákblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskt skákblað
https://timarit.is/publication/842

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.