Eining - 01.06.1949, Blaðsíða 2
2
EINING »
Stúdentagarðurinn nýi.
Stúdentagarðurinn gamli.
jók háskólinn starfsemi sína til mikilla
muna.
Hér er ekki rúm til þess að rekja ná-
kvæmlega þróunarferil háskólans. A
fyrsta starfsári hans voru fastir kennarar
11, aukakennarar 10, en stúdentar 45.
Nú eru stúdentar um 550, en fastir kenn-
arar 27 og 29 aukakennarar og stunda-
kennarar.
Á árunum 1911—1940 háði allur að-
búnaður eðlilegri þróun, eins og áður er
getið. Stúdentum fjölgaði þó jafnt og
þétt, kennaraliðið var aukið, eftir því
sem þörf krafðist og auðið var. Með sam-
bandslögunum 1918 var stofnaður nýr
sjóður við háskólann, Sáttmálasjóður, og
var stofnfé hans ein milljón króna. Hefur
sá sjóður komið háskólanum, kandídöt-
um og íslenzkri vísindastarfsemi að ó-
metanlegu gagni. Þegar verðfall pen-
inga varð óhjákvæmilegt í upphafi síð-
asta ófriðar, veitti bæjarstjórn Reykja-
víkur sjóðnum leyfi til rekstrar kvik-
myndahúss. Eru eignir sjóðsins nú á
fjórðu milljón.
Síðan 1940 hefur orðið margháttuð
aukning á starfsemi háskólans. Þá lokuð-
ust stúdentum venjulegar námsleiðir er-
lendis, svo að til vandræða horfði. Til
þess að bæta úr þessu var komið á fót
kennslu í verkfræði haustið 1940, og
skyldu kenndar einungis námsgreinar til
fyrra hluta prófs. Reyndist nauðsynlegt
að halda síðan kennslunni áfram til
fullnaðarprófs, en sú kennsla var lögð
niður eftir ófriðarlok, og er nú einungis
kennt til fyrra hluta prófsins, en nemend-
ur leita síðan til erlendra háskóla til
fullnaðarnáms. Fyrst í stað voru stunda-
kennarar einir við kennsluna, en 1944
var síofnuð ný deild við háskólann, verk-
fræðisdeild, með 3 föstum kennurum.
Kennsla í viðskiptafræðum var tekin
upp haustið 1941 í lagadeild.
I heimspekideild hefur verið tekin upp
kennsla í ýmsum málum, dönsku, ensku,
frönsku, norsku, sænsku, þýzku, og geta
nemendur lokið prófi í þessum greinum
(B. A. próf). Þá verður næstkomandi
haust tekin upp kennsla í uppeldis- og
kennslufræðum.
Skylt er stúdentum að stunda leik-
fimi og sund tvö fyrstu námsárin, og
hefur í því skyni verið reist íþróttahús á
háskólalóðinni, stærsta leikfimishús á
landinu og vel búið íþróttatækjum.
Tveir stúdentagarðar hafa verið reist-
ir fyrir forgöngu kennara og stúdenta,
og eru þar herbergi fyrir um 100 stúd-
enta. Þar er og matsala. Garðarnir eru
sjálfseignarstofnun, en reistir fyrir sam-
skotafé, með aðstoð ríkissjóðs og bæjar-
og sveitarfélaga.
Þótt háskólinn okkar sé lítill og marg-
ir hafi í öndverðu efazt um, að ekki stærri
þjóð en íslendingar gætu risið undir
slíkri stofnun, þá mun enginn neita því,
að síofnun hans var heillaspor. Þjóðin
hefur mikið á sig lagt í fjárveitingum til
háskólans, en hún hefur einnig vaxið af
honum. Hún hefur sýnt, að hún á mann-
val til þess að skipa vandasamar kenn-
arastöður og að hér eru innt af hendi
vísindastörf, sem eru henni til sóma. Há-
skólinn hefur þegar markað djúp spor
í þjóðlífinu. Flestir embættismenn þjóð-
arinnar og aðrir menntamenn hafa num-
ið í háskólanum, áhrifa hans kennir
hvarvetna. Miklar vonir voru í upphafi
við háskólann tengdar, og mun varla
verða sagt með sanni, að hann hafi
brugðizt þeim.
Engin fyrirmynd
Málgagn sænskra bannmanna, Veto,
bendir á, að ástæðulaust sé að taka
áfengismál Dana til fyrirmyndar, því að
þau séu engin fyrirmynd. Á síðastliðn-
um 10 árum hafi áfengisneyzla þeirra
aukizt um 25%. Ágóði ríkisins af áfeng-
íssölunni hafi aukizt um 400%, umferða-
slys af völdum áfengisneyzlu hafi verið
454 árið 1938, en 1946 hafi þau orðið
665, aðeins í Kaupmannahöfn séu 20
þúsund áfengissjúklingar, sem þarfnist
læknisumönnunar.
Þessar staðreyndir sýna, að þeir menn,
sem þykjast vera að leiðbeina okkur
bindindismönnum, og vitna þá oft í ,,fyr-
irmyndar“-drykkjuskap Dana, vita svo
lítið um hið sanna og rétta, að ef þeir
vissu, hve lítið þeir vita um þessi mál,
mundu þeir telja það henta sóma sínum
bezt, að segja ekki neitt. En vanþekk-
ingin er sjaldan spör á tilsagnir.
r
i
4-
Atvinnudeild háslcólans.
Iþróttáhús háskólans.