Íþróttablaðið - 01.04.1928, Side 8
172
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Enginn ferðamaður kynnist landinu eins
vel og sá, sem skoðar það á gönguför. Hann
getur numið staðar og skygnst um live nær
sem hann vill, því liann er laus og liðugur.
Og hann mælir landið við sjálfan sig, fet
fyrir fet, skref fyrir skref, fótmál fyrir fót-
mál. Og hver mundi betur vita hve liátt
fjallið cr í raun og veru en sá, sem sjálfur
liefir gengið upp á það? Hann veit livað
það kostar að komast svo hátt, þvi hann
hefir greitt andvirðið i orku sjálfs sín. Hann
hefir unnið til útsjónarinnar og gefur henni
því meiri gaum og nýtur hennar betur en
ef hann hefði fengið hana fyrirhafnarlaust.
Hugurinn nemur landið, landið tekur liug-
ann.
Þetta landnám er nú að byrja. Enga fólk-
ið er smám saman að taka upp þann góða
sið, að gera gönguför á sumrum ut um
sveitir, upp um öræfi. Fjallgöngum fjölgar.
að ferðalaunum fær þetta fólk þrjár lifs-
nauðsynjar: loft, ljós og hreyfingu og þar
með aukið þrek og ánægju. En engin ánægja
er langlifari en ferðagleðin, því að hún er sí-
ung í endurminningunni.
„Senn kemur sumarið
sólin lílessuð skín“.
Þá ættu allir sem geta, að leggja land
undir fót.
Guðm. Finnbogason.
íþróttaiðkanir og líkamsmentun
úti um land.
III.
17. júní.
í góðri grein eftir G. A. í Vesturlandi 29. jan.
þ. á. Þar sem hann ræðir um notkun Isfirðinga á
þeim degi hingað .il og að þeir ættu að hafa há-
tíðarhöldin þann dag hér eftir til að safna fé til
stuðnings íþróttalífi og líkamsmentun þar á staðn-
ooooooooooaootsoQoooQaoaooQooooooootm
o a
i íþróttablaðið Í
^ kemur út í byrjun hvers mánaðar — alls 12 töiu- §
O blöð. — Argangurinn kostar 3 krónur. — Góðir, O
Q áhugasamir úisölumenn óskast. Sölulaun 20% af minst q
§ 5 eintökum. 25% af 30 eint. og þar yfir. — Ritstjórn q
ö og afgreiðslu annast Steindór Björnsson, frá Gröf, O
C3 Greltisgötu 10, innheimtu: Asgeir O Einarsson, stúd- Q
q ent, Lindargötu 25, en auglýsingar: Hallgrímur Sveins- q
O son, verzlunarmaður, Veslurg. 19. Ö
q C3
Q Gjalddagi blaðsins er 1. júlí. — Utanáskrift er: Q
q íþróttablaðið, Pósthólf 546, Reykjavík. §
QQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQ
um, eru eftirfarandi setningar, sem sérstaklega eru
athyglisverðar og eiga við um land alt:
»........í Reykjavík og víðar um land hefir
17. júní löngum verið aðalfjárstoð íþróttamanna og
þeim helgaður. Virðist fara vel á því, því fátt mun
það, sem íslendingar geta betur sameinast um, en
minningu ]óns Sigurðssonar og íþróttir; Hvorugt
hefir verir, né mun verða, dregið inn í dægurþras
stjórnmálaflokkanna. Og satt að segja: Werði það
ekki íþróttirnar, sem loks gera Islendinga að al-
frjálsri þjóð, þá veit eg ekki hvað það verður.
Enda fleiri en vér, sem byggja helstu vonir sínar
á þeim. — Sbr. Sokolfél. í Tjekkóslóvakíu. —
.......Og Isfirðingar mega allir vera þakklátir
fyrir, að fá færi á að bæta fyrir þá smán, að eigi
er nein fimleikakensla hér við barnaskólann. Því
það er ómótmælanlega skrælingjaháttur og bæjar-
skömm...........«
Skyldi þetta síðastlalda ekki eiga fyllilega heima
víða annarsstaðar hér á landi? Er ekki svo að
alla kenslu í líkamsmentun vanti enn við nær alla
skóla á landinu? Og við þá fáu, sem kallað er að
kensla fari fram mun hún víðast vera kák eitt,
nafnið tómt, ein æfing í viku, — mest tvær.
Er það ekki þjóðarskömm að engin fimleika
eða líkamsmentakensla skulu fara fram við helstu
skóla landsins, sem flestir sækja ? T. d. Háskólann,
Verslunarskólana, Stýrimanna-, Vélsstjóra-, Iðn- og
Kvennaskólana ?
Svona má telja upp nær endalaust.