Reykvíkingur - 08.03.1929, Qupperneq 15
RBYKVIKIUGUR
03
í staö þess að vera meðal
g-rimmra fénda, var svo mikil að
mér kom ekki til hugar aö vera
gramur við dr. Nikóla, heldur
tók ég í hendina á honum og ósk-
aöi honurn til hamingju með hve
dutbúningur hans væri góður.
„Pér verðið að fyrirgefa hvern-
ig farið var með yður,“ sagði dr.
Nikóia, „en ég mátti til að ganga
úr skugga um að þér brygðust
ekki.“
Frh.
— Áeynni Korsíka var maðurað
niafni Asteili dæmdur tiil dauða
ár.ið 1911, en hanin slapp úr hönd-
uim yfjrvaldanina áður en dómur-
inn féll. Síðan hefur hann farið
huldu höfði á eynni, og framið
mörg hryðjuverk, einikum til
hefnda, og hefur verið daamdur
sjö' sinnuni til dauöa, en aldrei
hefur yfiirvöldununn tekist að hafa
(hendur í hári hans. En ium daginin
fanist hann myrtur á víðlavia'ngi,
og veit enigihn hver hefur orðið
banamaður hanis.
— í Ameríku hefir verið stofnað
nýtt steinolíufélag, sem heitir Pe-
troileum Corporation of Amerika.
Hilutaféð er hátt á fjórða hiundr-
að miijóna gullkróna.
Lawrence
oíj upprelst Araba.
Það skeði svo margt á stríðs-
árunum að það var erfitt að
fylgjast með öllum fréttunum,
enda fréttir af mörgu mjög ó-
greinilgear.
Eitt af því sem menn veittu
litla eftirtekt var uppreistin i
Arabíu gegn veldi Tyrkja, og fá-
ir vissu fyr en eftiir að ófriðnum
var lokið, að það var Englend-
ingur einn að nafni Thomas Ed-
ward Lawrehce, sem átti mestan
þátt í þv'í að sameina gegn Tyrkj-
um liinar mörgu og margvíslegu
Arabakynikvíslir, sem a,taf höfðu
átt í innbyrðis erjum, né héldur
vissu menn að það var hann, sem
var hinn raunverulegi leiðtogi
Arabahersl'ns.
Lawrehce þessi — sem mynd er
af framau á blaðinu — fór er
hann var innan við tvítugt i
skemtiferð til Sýrlands og var á-
formið, að hamn kæmi heiin aft-
ur eftir hálfs mýnaðar dvöl. En í
stað þess að konia aftur svo sem
hainn hafði gert ráð fytír við for-
eldra s;lna, var hann fjarverandi
í tvö ár. Klæddist halnn Austur-
landa-búningi, og ferðaðist gang-
aindi um stór landssvæði í Sýr-
landi og Arabíu og lagði stund á
að mema hinar margvíslegu Ara-
ba-mállýzkur.