Reykvíkingur - 08.03.1929, Blaðsíða 16
64
RBYKVÍ KINGUR
Síðar fór hainn margar ferðir til
AustuTlanda, aðaliega til þess að
Btu'nida þar forufræði, og var hann
við fom.menjagröft í Karkemish
þegar ófriðurinn mikii skall á.
Bauð hann sig þá til herþjón-
ustu í liði Breta í Egyptalandi,
en það var eklki þegið, því, hann
var ekki álitinn nógu hermann-
iega vaxinn — hann er með
minstu mönnum vexti, ekki nema
um 160 cm. og fremur grann-
vaxinn, Sökum þess hve kunn-
ugur hann var i Sýrlandi, Meso-
pótamíu og Arabíu, og hve vel
hann var að sér í arabisku,, komst
hann samt í fréttadeild brezka
hersins á Egyptalandi.
Leið svo til þess er fregn kom
um það að arabiski höfðinginn í
Mekka, Hú&sein, hefði gert upp-
reist gegn Tyrkjum, en þetta var
1916. Fór Lawrence þá með
brezkri sendlsveit til Hússeins,
hins nýja konungs, og gerðist
honum fljótt handgenginn. Ferð-
aðist hann hú dulbúimn milli Ara-
ba-kynhvíslanna, og, eggjaði til
saineiginlegrar mótstöðu gegn
Tyrkjum, og óx þá fljótt uppreist-
arherinn, en þess á milli var hann
í hinum mestu svaðilförum, stund-
um með fámennan hóp við að
sprengja járnbrautarlestir eða
brýr fyrir Tyrkjum, en stundum
fór hann dulbúinn inn í herbúðir
þeirra til þess að njósna, og það
þó Tyrkir að lokum hefðu sétt
50 þús. sterlingspund (yfir mi-llj-
ón króna) til höfuðs honum.
Að lokurn náði hann Damaskus
undan Tyrkjum, en brezka stjórn-
in var áður leynilega búim að
semja við frönsku stjórnina um
að Frakkar stjórnuðu Sýrlandi, og
mislikaði Lawrence það mjög.
Brezka stjórnin bauð honuin her-
foringjatign og lávarðs-nafmbót,
en hann vildi hvorugt þiggja. Fór
hann heim til Englands, en hvarf
þaðan skömmu síðar og vissi
enginn hvert, en sagt var að hann
hefði farið sem óbreyttur liðs-
maður undir röngu nafni í her
Breta á landamærum Indlands og
Afghanistan, og vildu margir
kenna áhrifum hans uppreist'na
gegn Amanullah konungi. Verð-
ur síðar hér í blaðimu sagt frá
nokkrum af æfintýrum Lawran-
ce í Arabíu.
— Komist hafa fjársvik upp um
franskan, forstjóra að nafni Mar-
cel Meurisse í París. Hefur bann
sviksamlega dregið sér 40 mfflj.
franka, en það sem mestum tið-
indum þykir sæta, er það að liann
er ekki nema 27 ára gamall. Kalla
frönsku blöðin hann Benjam'n
fjársvikaranna.