Reykvíkingur - 08.03.1929, Page 18
66
REYKVIKINGUR
Er hægt að Iesa eiginleika
fólks út úr andlitum þess?
Pað hefur verið sagt, að orðin
séu til orðin til pess, að hylja
hugsanirnar. Pannig má eins
segja, að andlitið sé til pess að
hylja lyndiseinkanir manna.
Pegar maður ætlar að fara að
dæma lyndiseinkanir manna eftir
andlitsfalli, útliti, augum o. s.
frv., fer maður svo oft villur
vegar. Pað er sagt, aö sterkleg
haka sé merki ástríðu, blíðleg
augu og »madonnu«-andlit merki
hreinleik sálarinnar. Og svona
mætti lengi telja. Pessu er svo
auðvelt að dæina eftir, og marg-
ir gera það líka. En sannleikur-
inn er sá, að það er ekki nokk-
ur hæfa í þessu.
Sjái maður litla ljóshærða
stúlku með spékoppa í kinnun-
um, hreinblá augu, blíðlega og
sakleysislega, er alveg óhætt að
reiða sig á, að hún veit hvað
hún vill, og fær á endanum það
sem hún vill. Sjái maður karl-
mann, stóran, föngulegan, með
hvast augnaráð og arnarnef, er
óhætt að reiða sig á, að hann
lætur stjórnast af veikbygðri
konu, og svona mætti lengi upp
telja.
Einu sinni sátu tveir menn í
járnbruutarlest og voru að lesa
Reykvíkingur fæst:
hjá Snæbirni Jónssyni, Austurstr.
— Sigf. Eymundssyni, —
í tóbaksverzl. Bristol, Bankastr.'
hjá Ársæli Árnasyni, Laugavegi.
— Arinb. Sveinbjarnarsyni, Lvg.
— Lúðvíg Hafliðasyni, Vest. 11.
— Bókav. Porst. Gíslas. Lækjarg.
— Guðm. Gamalíelss. Lækjarg.
í Konfektbúðinni, Laugav. 12.
- Konfektgerðinni, Vesturg. 29.
í dagblaði. »Hver er þessi góð-
logi, bráðfallegi maður,sem mynd-
in þarna er af?« spurði annar.
»Pað er morðinginn — þú manst
— sá sem drap hana ömmu sína
með öxinni«, var svarið. A.
\
■---ooe------
Ern öldungur.
Englendingur einn, að nafni
C. M. Holloway, átti um dagirm
sjötugsafmæli. Tók hann sér
þennan dag göngutúr, er var
35 enskar mílur, eða viðlíka
langt og úr Reykjavík og austur
í Flóa; tók það hann átta stund-
ir. Petta var í sjötta skifti, að
hann fær sér svona göngu á af-
mælinu sínu.
<-> <<