Vera - 01.04.1983, Blaðsíða 5
/ lesendabréfi í síðasla blaði Veru var stungið upp á því að í blaðinu yrðu tekin fyrir ýmis
tceknileg atriði til dœmis ísambandi við heimili og bíla. Veru leist vel á hugmyndina og ákvað
að fara afstað með stutta viðgerðarþœtti í þessu blaði. Fyrst verða tekin fyrir einföld atriði i
rafvirkjun og verður það efni þannig tekiðfyrir í nœstu blöðum Vertt. Guðrún Ólafsdóttir er
eina íslenska konan sem lokið hefur sveinsprófi í rafvirkjun og œtlar hún að skrifa dálkana
um rafvirkjun fyrir okkur. Guðrún vinnur heima um þessar mundir því hún á þrjú lítil börn
og hefur því nóg að gera heima fyrir. En hún grípur verkfœratöskuna ef rafmagnstœki
vinkvenna eða nágrannakvenna bila.
Verkfœri
Hverjum og einum er nauðsyn að fylgjast
með og geta bjargað sér ef um er að ræða
minni háttar biianir á raftækjum ogöllu sem
því fylgir. Við skulum byrja á því auðveld-
asta, sent er að setja kló á snúru. Verkfærin
þurfa ckki að vera margbrotin, aðallega
skrútjárn af minni gerðinni og hnífur eða
bítari (klíputöng) til að afeinangra leiðar-
ana (vírana) (aö afeinangra þýðir að taka á
plastið utan af vírnum).
'lTöLSK KLÓ
LE'mm
>£f>7£N'$£> KLÓ
)^{áTB.NStÍNGtAÍ^
Klær og snúrur
Á markaðinum eru aðallega þrenns
konar klær, eins og þær sem myndir 1,2 og 3
sýna. Ef skipta á um snúru á t. d. kaffivél,
straujárni, hraðsuðukatli og þess háttar
heimilistækjum, þarf snúran að hafa 3 víra,
þar af 2 leiðara og jarðvír en hann er gul-
grœnn að lit (sjá mynd 4).
Aðferð
Fyrst skrúfum við klóna í sundur. Tökum
því næst snúruna og byrjunt á að skera ysta
lag hennar (ca. 7 cm) af (sjá mynd 4). Sting-
um snúrunni undir spennuna ef hún er til
staðar (sjá myndir 1 og 2) og skrúfunt hana
fasta. Síðan afeinangrum við vírana (ca. 1
cm) og snúum upp á hvern vír fyrir sig (sjá
mynd 4). Við festum nú vírana á klóna. Það
er alveg santa hvoru megin þeir fara, aðal-
atriðið er að jörðin (gulgræni vírinn) sé
tengd á réttan stað (sjá myndir 1 og 2) og að
vírarnir séu fast skrúfaðir (togið í vírana til
öryggis). Ef klóin er án jarðtengingar er best
að klippa gulgræna vírinn burt (sjá ntynd 3)
en slíkar klær eru mest notaðar á lampa.
Þegar við höfum skrúfað vírana fasta og þar
með tengt þá skrúfum við klóna saman og
stingum í samband.
5 6