Vera - 01.04.1983, Blaðsíða 22
VERKAMANP
& 22
Stjórn Verkamannabústaða bárust 685 um-
sóknir um tœplega 150 íbúðir, sem auglýstar
voru á síðasta hausti. Fulltrúi Kvennafram-
boðsins í stjórninni, Guðlaug Magnúsdóttir,
segir nánar frá . . .
Eiðsgrandaíbúðirnar og næstu framkvœmdir
Á Eiðsgranda eru nú í byggingu 176 íbúðir á vegum
Vb. Er áætlað að þær fyrstu veröi tilbúnar til afhendingar
um mánaðamótin apríl-maí nk. Að þeim áfanga loknum
verða 2463 íbúðir í Reykjavík sem heyra undir Vb.
Áætlað er að hefja byggingu 127 íbúða á þessu ári í
Ártúnsholti. Einnig hcfur stjórn Vb. sótt um að taka yfir
lóðir fyrir 12 íbúðir til viðbótar í Ártúnsholti og 27 íbúðir
við Neðstaleiti en þær lóðir voru upphallega ætlaðar fyrir
leiguhúsnæði Reykjavíkurborgar. Þar sem hætt var við
byggingu þess þótti æskilegt að lóðirnar féllu í hlut Vb. Ef
af þessu verður er líklegt að framkvæmdir þar hefjist
einnig á þessu ári.
Endursöluíbúðir
Aðalstarf stjórnar Vb. um þessar mundir er við úthlut-
un endursöluíbúða sem losna á þessu ári. Er gert ráð fyrir
að fjöldi þeirra verði á bilinu 130—150. Voru íbúðirnar
auglýstartil umsóknar í nóvembersl. meö umsóknarfresti
til 11. desember. Samtals bárust 685 umsóknir. Sýnir
þessi mikli fjöldi hversu alvarlegt ástand ríkir í húsnæðis-
málum í borginni. Er þaö ekki öfundsvert starf sem
stjórnin innir af hendi þessa dagana að reyna að meta
hverjir séu mest þurfandi fyrir íbúð — úr liópi þar sem
flestir eru mjög illa settir. Stærsti hluti umsækjenda eru
leigjendur á almennum markaði. Búa þeir flestir við
ótrygga leiguskilmála, háa mánaðarleigu og þurfa yfirleitt
að borga marga mánuöi fyrirfram. Einstæðar mæður með
börn eru mjög áberandi í þessum hópi og dæmigert fyrir
slíkar fjölskyldur eru tíðir flutningar, oft árlegir eða
meira. Hefur þetta í llestum tilvikum mjög slæm áhrif á
börnin, sérstaklega eftir að þau eru komin á skólaaldur
vegna þess að flutningur milli íbúða þýðir oft nýjan
bæjarhluta og þar af leiðandi nýjan skóla. Oft ná þessi
börn því aldrei aö festa rætur neins staðar og aðlagast
öðrum börnum.
Meðal umsækjenda eru einnig áberandi margir sem
búa hjá vandafólki, oftast foreldrum. Er það bæði vegna
þess að viðkomandi (reyndaroft heilar fjölskyldur) hefur
misst leiguhúsnæði og ekki getaö fengið eða ráðið við
annað. Einnig er hér um að ræða ungt fólk sem getur ekki
stofnað heimili vegna húsnæðisleysis en er þegar komiö
með barn eða börn á framfæri. Er víða af þessu mikið
þröngbýli.
Aðrir umsækjendur eru: