Vera - 01.04.1983, Blaðsíða 27

Vera - 01.04.1983, Blaðsíða 27
Eftirfarandi pistill fjallar um stjórnarskrá Is- lands Og nokkrar þeirra beytinga sem eru fyrirhugaðar á henni. Pótt hann sé stílaður ti kvennaframboðskvenna á hann einnig fullt erindi til annarra lesenda Veru. Pað er von ritnefndar að hann geti vakið fólk til um- hugsunar og umræðu um þetta mál. Agætu kvennaframboðskonur. A félagsfundi 5. febrúar síðast liðinn var ákveðið að stofna hóp sem hefði það hlut- verk að athuga stjórnarskrá íslands og brcytingatillögur við hana. Ætlunin var að álit frá hópnum birtist í Veru, 2. tbl. 1983. Eg undirrituð gerðist hópstjóri þess hóps. Illa gekk að fá konur til starfa, þær voru ýniist störfum hlaðnar eða höfðu ekki áhuga á þessu máli. Nú, ég fékk þó tvær utan- félagskonur í lið með mér, þær Þórunni Hafstein lögfræðing og Guðnýju Höskulds- dóttur héraðsdómslögmann og bjóst alltaf við aö einhverjar kvennaframboðskonur bættust síðan við. Svo varð þó ekki og eftir þrjá fundi ákváðum við aö hætta störfum, því Ijóst var að álit frá hópnum gæti ekki talist álit frá kvennaframboðskonum. En þar sem ég tel nauðsynlegt að við í Kvenna- framboðinu gerum okkur grein fyrir þeim breytingum sem eru fyrirhugaðar á stjórn- arskránni set ég hér fram nokkra punkta til athugunar. Hvað er stjórnarskrá? Stjórnarskrá er sérstakur lagabálkur sem geymir grundvallarreglur stjórnskipunar- innar. Þessum reglum er fyrst og fremst ætlað að fastsetja æðstu stjórn ríkisins, tryggja stjórnfrelsi og réttaröryggi og setja beitingu ríkisvaldsins nokkrar hömlur svo þegnarnir verði ekki ofríki beittir. Stjórnarskrá geymir aðeins gagnorðar meginreglur en þeim reglum eru ætlaðir langir lífdagar. Stjórnarskrárákvæði eiga að standa af sér umhleypinga stjórnmála og tísku. Þau njóta því mun meiri helgi en aðrar réttarreglur. Kemur það bæði til af et'ni þeirra og eins því að aðrar réttarreglur í þjóðfélaginu, skráðar sem óskráðar, verða að eiga stoð í stjórnarskránni og mega alls ekki stríða gegn ákvæðum hennar. Helgi stjórnarskrárinnar birtist m.a. í því að breyt- ingar á henni eru mun torveldari en á al- mennum lögum. Þess er t.d. krafist hér á landi að löggjafarþing samþykki breyting- una tvisvar en milli þinga eiga almennar þingkosningar að fara fram. Tilgangurinn með þessu er að koma í veg fyrir vanhugs- aðar eða tilgangslausar stjórnarskrárbreyt- ingar. Nokkrar mikilvægar breytingar Nú stendur til að breyta þessum æðstu lögum okkar. Hér er ekki hægt að taka allar breytingatillögurnar fyrir en drepið verður á nokkrar þeirra. Fyrst má nefna að í breyt- ingatillögunum eru nýjar greinar um mann- réttindi, m.a. 62. og 63. grein. 62. grein hljóðar svo: ,,Allir skulu njóta frelsis, mannhelgi og jafnréttis að lögum.“ 63. grein er svo nánari útfærsla á mannréttind- um einstaklinga. í þessum greinum er því kveðið á um fullt jafnrétti allra. Eðlilegt virðist í fyrstu að allir muni fagna þessu. En svo þarf þó ekki að vera. Ef þessi grein er komin inn í stjórnarskrá eru nefnilega öll hugsanleg tímabundin forréttindi kvenna eða jákvæð mismunun úr sögunni — því eins og fram kom hér á undan mega engin lög stangast á við stjórnarskrána. Þessu ákvæði breytinganna þyrftum við að velta vandlega fyrir okkur. Fleiri greinar mannréttindakaflans eru þess virði að um þær sé rætt, t.d. 67. grein. Hún fjallar um friöhelgi heimilis og er hún gerö all ítarlegri í breytingatillögunum en hún er í núgildandi stjórnarskrá. í þessa grein er m.a. komið ákvæði um vernd upp- lýsinga um einkahagi manna og segir að slíkt ákvæði skuli sett í lögum. Þetta atriði er vafalaust til komið vegna tölvanna því nú er mun auðveldara en áður var að safna og geyma upplýsingar um einstaklinga. í breytingatillögunum er einnig mjög stór breyting, sem er lækkun kosningaaldurs úr 20 árum í 18 ár (30. grein). Vafalaust eru skiptar skoðanir um þetta atriði manna á meðal. Engin umræða liefur þó farið fram um það og tel ég það m.a. sýna að fyrirhug- aðar breytingar á stjórnarskránni hafa alls ekki verið kynntar þjóðinni nægilega vel. í 40. grein er sagt frá því hverjir eiga rétt á að bera upp frumvörp og þingsályktunartil- lögur á Alþingi. Samkvæmt bæði núgildandi stjórnarskrá og breytingartillögunni hafa þingtnenn, ráðherrar og ríkisstjórn þann rétt. Þarna mætti kannski bæta við að ein- staklingar eigi einnig rétt til að flytja frum- Vörp ef þeir hafi nægilega marga stuðnings- menn á bak við sig, t.d. 4-5000. í ljósi þess hversu fáar konur sitja á Alþingi gæti slíkt ákvæði orðið konum sérlega mikilvægt til að koma sameiginlegum hagsmununr kvenna í þessu landi á framfæri. Kjördæmamálið er sú breyting sem mesta umræðu hefur hlotið í fjölmiðlum. Þing- menn vilja flestir að alþingismönnum verði fjölgað úr 60 í 63. Mætti halda að þingmenn hugsi meira um eigin hag en það sem hagkvæmast er fyrir þjóðina enda virðist sem flokkar þeir sem nú sitja á Alþingi hafi samið um jafna skiptingu atkvæða sín á milli en ekki jafnan atkvæðisrétt allra íslendinga. Hvað sem unr það má segja þá er ljóst að alþingismenn eru starfsmenn íslensku þjóð- arinnar og venjulega eru það vinnuveitend- ur sem ákveða hvort fjölga þurfi starfs- mönnum en ekki starfsmennirnir sjálfir. Því varpa ég fram til umræðu þeirri spurningu hvort ekki vanti í stjórnarskrá okkar ákvæði unr að fjölgun þingmanna skuli bera undir þjóðaratkvæði. Að lokum Mörg fleiri atriði breytingartillagnanna er full þörf á að ræða, hvort sem manni virðast þau muni verða til góðs eða ills því eins og að framan sagði á stjórnarskrá að geta stað- ið lengi og því þarf að vanda vel gerð henn- ar. Því ættum við kvennaframboðskonur að ganga á undan í því skyni að kynna okkur og öðrum stjórnarskrána og fyrirhugaðar breytingar á henni. Vona ég að hvort sem stofnaður verði nýr hópur um stjórnarskrár- málið eða ekki þá muni einhver umræða, um t.d. ofangreind atriði, fara fram innan Kvennaframboðsins. Loks vil ég benda þeim sem hafa áhuga á að kynna sér núver- andi stjórnarskrá og breytingatillögurnar á að „Skýrsla stjórnarskrárnefndar um end- urskoðun stjórnarskrárinnar" hefur verið gefin út og hana getur hver sem er fengið ókeypis í Stjórnarráðinu. Sigurrós Erlingsdóttir.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.