Vera - 01.04.1983, Qupperneq 14
P 14
Víst viljwn við stjórna því, hvenœr eða hvort við eign-
umst börn. En höfum við líka rétt til að velja hvernig
barn? Er legvatnsprófið stórkostleg fyrirbyggjandi
heilsugœsla eða gróf misnotkun á tækninni? Verðandi
móðir veltir vöngum, án þess í rauninni að komast að
niðurstöðu. . .
— Bíðum við . . . já, þú ert orðin þetta gömul. Ættir kannski að
fara í legvatnsskoðun ...
Ég segi ekkert. Veit svo sem ekkert hvað ég á að segja. Bíð.
— Við bjóðum öllum konum, sem orðnar eru 35 ára upp á þetta.
Já, já, líklega. Fylgir ekki hætta á fósturláti?
- Líkurnar fyrir fósturmissi eru um 0.6%. Hins vegar eru líkurnar
fyrir vissum fósturskemmdum orðnar hærri á þessunt aldri.
Við ræðum málið, ég og læknirinn minn. Hvenær prufan er tekin,
hvernig, hvers vegna. Hann segir: Ég myndi láta gera þetta ef ég
væri kona. Án þess að vera að tala um fyrir mér, ekki sem læknir við
sjúkling heldur sem maður viö mann. Ég finn það.
Ég treysti lækninum mínum. Tvær meðgöngur nú þegar í hans
umsjá. Önnur afbrigöileg og endaöi meö keisaraskurði. Tvö heil-
brigð börn og það þriðja, ellefu vikna gamalt, inni í mér. Tilhlökk-
unarefni fyrir alla fjölskylduna og læknirinn minn óskaði mér til
hamingju. Okkur kemur vel saman, mérog þessum lækni.
Legvatnspróf. Því ekki það? Aörar konur gera þetta, eiginlega
hef ég lítið hugsað um það til þessa. Stórkostleg tækniframför —
fyrirbyggjandi. Já, því ekki það. Okkur kemur saman urn að ég fari
sem fyrst í sónarskoðun til aö staðfesta aldur fóstursins. Og ég á aö
panta annan sónartíma eftir þrjár vikur og legvatnsprófið um leið.
Á leiðinni heim gcfst tími til að hugsa málið. Pínu-pínulítill vafi gerir
vart við sig — eins og fyrsta hreyfingin, svona eins og fjörfiskur!
— Hann sagði að ég gæti farið í legvatnspróf.
Til hvers? Er eitthvað að?
Nei, nei. Pað er bara öllum konum, sem orðnar eru 35 ára boðiö upp
á þetta. Líkurnar á því að maður cignist mongolíta eru orðnar meiri
þá.
Já. Já, auðvitað. Mikið öryggi í því.
Já, segi ég og ekkert meira. Þetta var það sem ég hafði hugsað fyrst.
Um öryggið. Og kvíðaleysið. Vafi litli þegir.
Viku seinna fer ég í sónarinn. Fóstriö er 13 vikna gamalt. Fóstrið.
Heima er það kallað barnið! Ég ligg á bakinu og teygi hálsinn til að
sjá á skerminn. Hósta og það skoppar inni í mér. Ég sé þaö á
skerminum. Stórkostlegt tæki sónarinn. Mér er bent á höfuðið,
útlimina; sjáðu, þarna eru augun og nefið. Það hvarflar allt í einu að
niér, hvernig ég myndi bregðast við ef það vantaði t. d. hendurnar á
barnið. Ef ég sæi á því augljósan útlitsgalla. Hvernig myndi ég
bregðast við? Fengi ég að láta eyöa því?
Á eftir er ég send upp til að panta lcgvatnsprófið, sagt að tala við
R. Sest með henni inn á skrifstofu. Tárin í augunum á mér. Verð
óðamála: R., veistu að éger allsekkert viss um aðég vilji fara í þetta