Vera - 01.04.1983, Blaðsíða 15

Vera - 01.04.1983, Blaðsíða 15
prói'. Þegar ég sá fóstriö á skerminum, hugsaði ég bara, aö mér væri alveg sama þótt eitthvað væri að því. R. veit hvað ég meina. Hún er vön þessu. Margar konur hugsa sig tvisvar um. Eru hræddar við sjálfa ástunguna eða um hvaða áhrif hún hafi á fóstriö, eru hræddar við fósturmissi. Þeim óar líka ntörg- um við því hversu seint á meðgöngutímanum hægt er að taka sýni af legvatninu. Og ekki fyrr en tveimur vikum seinna kemur niðurstað- an. Atján vikur, það er nærri hálfur meðgöngutíminn! Og ef eitt- hvaö er að, þá er framkölluð fæðing. Svo seint. Hún rabbar um þetta, hvorki hveturmig né letur, upplýsiraðeins svo éggeti ákveðið ntig. Okkur kemur saman um að ég skuli panta tímann, ég geti þá alltaf afpantað ef í það fer. Og mér er boðið upp á tala við ráðgjafa, erfðafræðing, sent hefur fengist við ráðgjöf í þessunt málum. Ég þigg það. Viku síðar er ég enn komin, núna til að hitta erfðafræðinginn. Ég segi honum eins og er, að ég viti varla hvaðan vafi litli komi, hvað sé að angra mig, ég sé bara ósátt viö tilhugsunina. Hann segist bara munu byrja á byrjuninni og svo sjáum við til. Spyr um fjölskylduna, ættingja, sjúkdóma, heilbrigði, skrifar niður, hlustar, spyr enn. Þægilegur maður. Við virðumst hafa nægan tíma. Hann segir mér m. a. hvað lesa megi úr legvatnssýninu og að hverju sé leitað. Mongolisma og klofnunt hrygg. Kynið kentur fram. Þetta eru þær upplýsingar, sent þeir láta uppi. Læknastéttinni kemur ekki saman um hvort segja eigi frá öðrum atriðum. Nú — sé niðurstaðan nei- kvæð, er konunni skýrt frá því og henni boðið að láta framkalla fæðingu. Já, svarar hann þegar ég spyr, já, ég myndi vilja að konan mín færi í þetta próf. Við tölum um áhrif þess á aðra fjölskyldumeðlimi að eignast vangefið barn, á samband foreldranna, um erfiðleikana sem því eru bundnir hvað varðar aðstöðu og opinberan stuðning. Vafi litli inni í kollinum á mér er að taka á sig einhverja mynd. Ég held ég sé ekki hrædd við sjálft prófið. Ég er ekki hrædd við fósturlát af þess völdum. Ég er ekki eins kvíöin ogoft er látið í veðri vaka að við konur séum á meðgöngutímanum. Ég er ekki svo viss um að allar konur búi í rauninni við þungar áhyggjur út af því hvort barnið verður heilbrigt eða ekki. Ég veit ekki hvort það er möguleg fóstureyðing, sem ég er hrædd við heldur. Nei, það er eitthvað annað. Mér finnst þaö siðferðilega rangt aö tékka á barninu svona fyrirfram. Sortera þau „eðlilegu" frá þeim „óeðlilegu." Það er eitthvað rangt við að fyrirbyggja vandantálin á þann hátt. Hann skilur hvað ég á við. En þetta eru móralskar spurningar, jafnvel pólitískar. Læknum er auðvitað ekki gert að ræöa slíkt. Einhvern veginn get ég ekki farið beint heim. Þetta eru allt hlutir til að tala við aðra konu um. Helst aðra móður. Keyri heini til Þ. Margra barna móðir, það yngsta enn á brjósti. Fór sjálf í prófið. Hvers vegna? Öryggið. Segir ntér af foreldrum vangefins barns, hvað það gerði sambandinu, hvað það er erfitt. Tölunt um fóstur- eyðingar, um allt milli himins og jarðar, sem viðkemur meðgöngu, fæðingu, börnunum. Heima bíður kallinn. Hann segir sama og Þ. Hefur unnið með þroskaheftum börnum. Skilur og skilur ekki. Varla nema von. Ég skil þetta ekki alveg sjálf. Sá möguleiki, að barnið sé mongoliti er að verða raunverulegri. Verð sannfærö um að niðurstaða prófsins vcrði neikvæð og að ég þurfi að taka ákvörðun unt að láta fjarlægja fóstriö. Purfi er ekki rétta orðið, ég er auövitað ekki skuldbundin til þess. En myndi ég ekki velja þann kostinn? Ég berst fyrir frjálsum fóstureyðingum, rétti kvenna til að ráða því sjálfar hvenær þær eigi sín börn, eða hvort þær yfirhöfuð eignist nokkuð barn. Finnst mér ég verða að standa við þann rétt, gæti ég sjálf notfært ntér hann? En nei, það er raunar ekki þetta sem vefst fyrir mér. Ég hef þegar valið að eignast barnið. Sú ákvörðun hefur verið tekin. Af frjálsum og fúsum vilja. En hef ég líka rétt til að ákveða hvernig barn ég vil eiga? Líklega er það það, sem vefst fyrir mér. Það er skítt að eignast vangefið, fatlað, þroskaheft barn. Ekki kannski endilega barnsins vegna heldur vegna fordómanna, að- stöðuleysisins, hjálparleysisins. Ég minnist þess að sitja í heitum sundlaugarpotti í fyrrasumar og niður í pottinn kom karl með mongoliskt barn. Barnið naut þess að vera í heitu vatninu, en smátt og smátt tæmdist potturinn af heilbrigðu fólki. Þeir, sem komu og ætluðu ofan í, hört'uðu undan. Eins og barniö bæri smitandi sjúk- dóm, eins og það væri hættulegt. Mér sárnaði, bæði fyrir barnsins hönd og foreldranna. Hvað maður vildi ekki gera til að brjóta niöur fordómana, rjúfa einangrunina, bæta aðstöðuna. Hvort maður vildi ekki leggja sitt af mörkum til að jal'nstaða, ekki aðeins kynjanna, heldur einnig vanheilla og heilbrigðra, ungra og gamalla, ríkra og fátækra. Taka þátt í pólitískri baráttu til að slík jafnstaða geti orðið að raunveruleika. En hvernig? Með því að útrýma þeint. sem ekki munu fæðast „eðlilegir" í þennan heim? Dæma þá réttdræpa? Væri slíkt í rauninni nokkuð annað en viðurkenning á þeim viðhorfum, sem nú ríkja til vangef- inna, til „aumingjanna". Viðhorfum, sem maöur þykist þó vera að berjast gegn? Er rétta leiðin sú, að skera niður þá sem ekki njóta jafnréttis — er það rétta leiðin? Og hver er ég að dæma hver eða hvað er eðlilegt og hvað ekki? Mig ntyndi langa til að þora að taka hverju sem kemur. Innst inni langar mig til að neita mér um rétt til að velja mér barn — ég trúi því ekki að ég hafi þann rétt. Mig langar til að hafa samúð og samstöðu með þeim, sem bágt eiga, vegna þess að þjóðfélagið viðurkennir þá ekki, mig langar til að taka þátt í baráttu þeirra fyrir tilverurétti sínum. En hvernig mun ég geta það, ef ég hefi gert út af við einn þeirra? Samvisku minnar vegna? ►

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.