Vera - 01.04.1983, Page 18

Vera - 01.04.1983, Page 18
Er von á úrbótum? Reykjavíkurborg rekur núna fimm stofnanir, sem eru ætlaðar gamla fólkinu sérstaklcga: vistheimilið Dal- braut, vist- og hjúkrunarheimiliö á Droplaugarstöðum, legudeild í Hvíta bandinu og leiguíbúðir í Furugeröi og viö Norðurbrún. Margt af því fólki, sem er á þessurn stöðum, þarfnast umönnunar lækna og hjúkrunarfólks og þyrfti því að fá inni á sjúkrastofnunum. Þau 991, sem lagt hafa inn beíðni til Félagsmálastofnunar, eru auðvit- að ekki í þessum hópi, heldur bíður utan dyra eftir dval- arstað. Félagsmálastofnunin hefur kannað aðstæður þeirra — staöreyndirnar blasa við hér að ofan — og raðað í forgangsröð, um annaö er varla aö ræða, þegar úrræðin eru svo fá til handa svo mörgum. í þeirri rööun eru efst á blaði 92 einstaklingar, sem þurfa nú þegar að komast á sjúkrastofnun og 433, sem eitthvað verður að gera fyrir annað. En hvaö er hægt að gera? í sumar verður B-álma Borgarspítalans opnuð, en þar veröur sérstök deild fyrir gamla fólkið með 53 rúmum. í vor verður boðið út nýtt vistheimili og má gera ráö fyrir að byggingu þess Ijúki eftir 2—3 ár ef þokkalega er haldið á spöðunum. Á því vistheimili er hins vegar ekki gert ráð fyrir hjúkrun. FÓSTUREYÐINGAR afstaða félagsmálaráðs „Félagsmálaráð Reykjavíkur tekur eindregna afstööu gegn endurfluttu frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 25 frá 22.5. 1975 um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemis- aðgerðir. Félagsmálaráð telur brýnt, að félagslegar að- stæður verði bættar, þannig að sem fæstar fóstureyðingar þurfi að fara fram þeirra vegna og telur því þær breytingar sem frumvarp til laga um breytingar á lögum um al- mannatryggingar nr. 67/1972 felur í sér, vera til bóta í því efni. Hins vegar telur ráðið, að ekki verði framhjá litið, að nokkur hópur fólks býr nú við svo erfiðar félagsl. að- stæður, að núgildandi heimild til fóstureyðingar vegna félagslegra aðstæðna séu beinlínis nauðsynleg. Félagsmálaráð telur, að samstillt átak ríkis og sveitar- félaga þurfi til að ráða bót á, m. a. með því að rækja það varnaðarstarf, er lögin gera ráð fyrir, úrbótum á húsnæð- ismálum og frekari uppbyggingu dagvistunarstofnana. Enn fremur telur Félagsmálaráð Reykjavíkur nauðsyn- legt að hraðað verði framkvæmd 32. gr. laga nr. 25/1975 Og þar með eru upptaldar þær úrlausnir á vanda gamia fólksins, sent í bígerð eru. Að verða gamall Það virðist mikið til úr sögunni að ömntur og al'ar geti hreiðrað um sig í horninu hjá afkomendum sínum. Viö getum öll reynt að gera upp við okkur, hvernig sú breyt- ing varð, tlest okkar þurfa aðeins að leita til eigin kring- 4 umstæðna. Margar skýringar eru fyllilega réttmætar, aörar síður. En hverjar sem þær eru, svara þær því aldrei, hvers vegna hærri aldur barf svo oft að verða tími ör- byrgðar, húsnæðisskorts ou niðurlægingar. „Hiö opinbera" er stunduni kallað bákn og framlag okkar til þess álögur. En hið opinbcra er auðvitað ekkert annað en félagið, sem viö erum öll í og álögurnar okkar sameiginlegi sjóöur. Hvernig við deilum þeim sjóði. er spurning um hvað okkur skiptir mestu — uni forgangs- rööun. Einhvern veginn finnst manni, að gantla fólkið eit’i skilið að vera dálítið ol’ar í beirri röð. en raun sýnist bera vitni. GJ/Ms en þar er kveðið á um útgáfu reglugerðar um nánari framkvæmd laganna. Sú rcglugerð hefur enn ekki litið dagsins ljós. Við gerð þeirrar reglugerðar, sem lögin mæla fyrir um, verði höfð hliðsjón af framkvæmd fóstureyðinga af félagslegum ástæðum frá þeim tíma, er lögin tóku gildi. í því skyni er nauðsynlegt að gerð verði ítarleg rannsókn á því, hverjar í reynd hafa verið taldar félagslegar ástæður, þegar fóstureyðingar Itafa verið heimilaðar á grundvelli 9. gr. laganna." Þessi untsögn Félagsmálaráðs Reykjavíkur var sam- þykkt einróma í ráðinu þ. 20. jan. s. I. í ráðinu eiga sæti: Markús Örn Antonsson, Ingibjörg Rafnar, Anna K. Jónsdóttir og Margrét Einarsdóttir, öll frá Sjálfstæðis- flokki, Gerður Steinþórsdóttir, Framsókn, Guðrún Ágústsdóttir Alþýðubandalagi og Guðrún Jónsdóttir, Kvennaframboði. Þær þrjár síðasttöldu óskuðu enn fremur að þetta væri bókað sérstaklega: „Við erum sammála því áliti, sem hér hefur verið sam- þykkt svo langt sem það nær. Við teljum þó að á skorti í umsögninni skýra afstöðu til sjálfsákvörðunarréttar konunnar. Við teljum að enginn sé endanlega færari um aö meta hvort fóstureyðing af félagslegunt ástæðum eigi að fara fram en sú kona, sem í hlut á.“ Þessi bókun hlaut ekki stuðning frá öðrum en nefndum þremur konum.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.